Morgunblaðið - 31.10.1999, Side 18
18 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Frá Nesjum í Hornafirði, um 1912, 34x103 sm.
Þ J ÓÐ ARGERSEM AR
MYNDLIST
LISTASAFIV ÍSLAIVDS
VATNSLITAMYNDIR ÚR
SKAFTAFELLSSÝSLU
ÁSGRÍMUR JÓNSSON
Opið alla daga frá 12-17. Lokað
mánudaga. Til 28. nóvember. Að-
gangur 300 krónur.
ÞAÐ er stöðugt að verða degin-
um ljósara, hvílíkum fjársjóði
frumherjar okkar í sígildum
módemisma skiluðu til þjóðarinnar
í listsköpun sinni. Skýrist ekki ein-
ungis í því, að mun betur er búið að
myndverkum þeirra en fyrrum,
heldur stórum frekar vegna þess
að tækniframfarir og hraðinn í nú-
timanum hefur gert þessi verk að
ómetanlegri geymd. Sjónrænni
sagnfræði af þeirri gráðu, sem
fæsta dreymdi um miðbik aldar-
innar, vafalítið minnst þá sjálfa. Þá
voru fjarlægðimar meiri, fegurðar-
matið annað, víðáttumar og kyrrð-
in ekki orðin að nær óhöndlanlegri
útópíu víðast hvar í heiminum.
Tvö atvik á seinni helmningi ald-
arinnar gerbreyttu ásýnd heims-
ins, hið fyrra er hæsti tindur jarð-
ar var klifínn af þeim Englend-
ingnum Edmund Hillary og sherp-
anum Bhutia Tensing Norgay, hið
seinna er mannað geimfar lenti á
tunglinu. I báðum tilvikum fóm
magnaðir hrollkenndir straumar
um sérhvern mann og heimurinn
ekki samur. Þessi atburðarás,
sögulegu hvörf og yfirgengilegu
tækniframfarir er í kjölfarið
fylgdu, voru sem vítamínsprauta
sem hafði gagnger áhrif á hugsun-
arhátt manna svo og allar greinar
lista um leið. Sannar svo ekki verð-
ur um villst að ytri atburðarás er
öflugast þeirra eldsneyta sem
knýja andlegar og skapandi hrær-
ingar áfram.
Það er þannig farið með mig og
bersýnilega marga aðra, að eftir
því sem hátækninni vex fiskur um
hrygg með ógnarhraða, verður
fortíðin meiri og dulúðugri galdur.
Jafn óhöndlanlegur, dulúðugur og
fjarlægur og framtíðin var áður,
jafnvel svo að endaskipti hafa orð-
Stóralág í Hornafírði, 1912, 41x101 sm.
ið á hugtökunum, enda tíminn
stöðugt afstæðari og óræðari, veg-
ferð mannsins óvissari.
Það er eins og forsjónin hafi
kallað Asgrím Jónsson til starfa í
upphafi aldarinnar til að varðveita
þá sýn sem við mönnum hafði blas-
að allt frá landnámi, og áður en
tækniöld tæki að breyta ásýndinni.
Asgrímur þannig verið réttur mað-
ur á réttum tima og í þessu tilviki
hárréttur. Ekki er hægt að mála
slíkar myndir lengur, frekar en
þær sem Caspar David Friedrich
og margir fleiri gerðu um sína
daga, heimurinn annar, forsend-
urnar aðrar, andrúmið horfið og
menntunargrunnurinn glataður.
Það er að öllu samanlögðu þetta
sem átt hefur mestan þátt í endur-
mati á list gærdagsins og fyrri
alda og hér voru það skondið nokk
heimsþekktir núlistamenn sem
áttu stærstan hlut að máli. Öðru-
vísi mér áður brá geta nú ýmsir
sagt eftir niðurrifstilburði fyrri
kynslóða. A sýningu framrásar
róttækra núlista á öldinni í nýja
Þjóðlistasafninu í Berlín, og sem
nú stendur yfir, eru m.a. tvær
myndir eftir nefndan Caspar Da-
vid Friedrich, svona sem
stikkprufa til samanburðar! Hefði
ekki getað gerst fyrir aðeins örfá-
um árum.
Fegurð og mögn öræfanna eru
áþreifanlegar stærðir og viðmið
sem allir þykjast geta viðurkennt í
dag, en hins vegar skulu menn
fara afar varlega í að spá í fegurð-
arskyn fortíðar. Islendingar hafa
verið flestum öðrum þjóðum iðnari
við að valta yfir hið liðna og mis-
þyrma landinu, sem sér stað enn
þann dag í dag og trúlega betur en
nokkru sinni í sögunni. Hér á von-
andi sitthvað eftir að koma í ljós,
en ekki hefur það fólk verið sneytt
fegurðarskyni sem fyrrum hélt til
Vesturheims, þráði þó jafnan átt-
hagana sem áttu hug þess allan
þrátt fyrir fyrrum kulda, vosbúð
og kröpp kjör. Og sjálf tungan ber
þess vitni að það hefur verið til
staðar, því engir varðveita á þenn-
an veg máltilfinningu sem ekki eru
í tilfinningatengslum við náttúru-
sköpin, það segja okkur jafnframt
ljóð góðskáldanna um sköp jarðar,
glóbreiður og heiðar himinbrautir.
Óbyggðirnar, tign og birtumögn
landsins, eru dýrustu fjársjóðir
þjóðarinnar, þær ólu að vísu með
sér hjátrú og drauma en þaðan
komu líka árnar og beljandi jökul-
fljótin sem fluttu með sér jafnt líf
sem dauða. Enginn Islendingur
hefur skjalfest þessi birtumögn
betur til þessa en Asgrímur Jóns-
son í vatnslitamyndum sínum, sem
gerir þær að ómetanlegum ger-
semum.
Hinar kristalstæru vatnslita-
myndir Asgríms hafa ekki svo lítið
af blæ árdagsins yfir sér, eru laug-
aðar óskilgreindum ferskleika sem
gagntekur skoðandann, hvort
heldur hann sé með báða fætuma í
fortíðinni eða er framtíðinni vígður
af lífi og sál. Eitt er alveg klárt, að
slík list er hafin yfir allan aldur
líkt og öll mildl sköpun, er í kjarna
sínum jafn fersk núlist og sú er
sýningarstjórar austan hafs og
vestan rembast eins og rjúpa við
staur að kynna heiminum. Yfir-
burðirnir sem menn viðurkenna
loksins og meira en fúslega, eru
þeir að hér er ekki um tilbúna list
að ræða heldur sjálfsprottna þörf
til tjáningar og eðlisbundna ást á
viðfangsefninu. Þessi yfirhafni
tærleiki er jafn hreinn, falslaus og
laus við tilgerð og naumhyggja nú-
tímans eða sú viðleitni að lyfta
hvunndeginum á stall. Með einu
mikilvægu og gegnumgangandi til
viðbótar, sem er þetta dularfulla
eitthvað sem enginn fær skilgreint
en allir með ratsjána í lagi skynja
þó sem hluta allífsins og er í eðli
sínu kjarni allrar sköpunar, jafnt í
náttúrunni sem mannheimi.
Bragi Ásgeirsson
BÆKLR
Sagnfræði
HÁNDSKRIFTSAGENS SAGA
- i politisk belysning eftir Sigrúnu
Davíðsdóttur. Dönsk þýð. Kim Lem-
bek. 408 bls. Odense Universitetsfor-
lag. 1999.
HANDRITAMÁLINU er end-
anlega lokið. Þar með er kominn
tími til að skrá sögu þess. Eða sú
er ætlan Sigrúnar Davíðsdóttur.
Hún hefur skoðað og skyggnt all-
ar hliðar málsins í þaula - svo
mjög að telja má að verkefnið sé
þar með tæmt í eitt skipti fyrir öll.
Þetta rit hennar má með réttu
kallast stórverk, bæði að inntaki
og umfangi. Eftir að forsagan hef-
ur verið rakin og málið sjálft kem-
ur á dagskrá fjallar bókin bæði
um faglega og pólitíska þáttinn en
þó mun meira um hinn síðartalda
þar sem Islendingar sóttu á en
Danir þæfðust fyrir. Deilan var
þannig háð á tvennum vígstöðv-
um. Stundum leit út fyrir að þetta
yrði endalaust þrátefli. Málið
mundi aldrei leysast. Saga þess
hlaut því að verða í meira lagi
langdregin þegar hún loks yrði
skráð.
Skemmtilestur getur þetta fjög-
ur hundruð blaðsíðna rit því tæp-
lega kallast. Þetta er fræðirit í
orðsins strangasta skilningi. Sig-
rún magnar ekki upp
neina spennu framar
því sem efni standa
til. En hún segir líf-
lega frá og varpar oft
ljósi á mannlegu hlið-
amar sem alltént
mega sín nokkurs.
Jafnvel í hinni hörðu
pólitík! Að lestri lokn-
um er maður að sjálf-
sögðu stórum fróðari
um málið sem slíkt,
faglegu rökin og til-
finningahitann jafnt
og pólitísku framvind-
una sem fór allt eins
fram á bak við tjöldin;
ennfremur um fólk það, karla og
konur, sem mest kom við sögu. Til
að bæta um betur að því leytinu
eru í lokin birtar æviskrár nokk-
urra „af bogens hovedpersoner".
Æviskrámar hefðu að sönnu mátt
vera nokkru fyllri úr því farið var
að taka þær saman á annað borð.
Frá upphafi var litið á handrita-
málið sem lokakafla sjálfstæðis-
baráttunnar. Skylt er - þegar það
hefur nú verið farsællega til lykta
leitt - að meta það út frá forsend-
um síns tíma. Því vitaskuld hefur
margt breyst í hinu menningar-
lega og pólitíska um-
hverfí frá stríðslokum,
sumt meira að segja
gerbreyst. Sigrún rek-
ur gang málsins ná-
kvæmlega frá upphafi
til enda en það var
nokkuð lengi að þok-
ast af stað. Síðan mið-
aði því áleiðis, hægt og
bítandi, stundum afar
hægt, þar til ríkin
komu sér að lokum
saman um lausn sem
flestir, þeir sem létu
sig málið á annað borð
varða, töldu viðunandi.
Frá upphafi var þetta
ekki aðeins tilfinningamál heldur
líka metnaðarmál. Og ekki varð
lausnin auðveldari fyrir vikið!
Menntamenn beggja þjóða höfðu
sig mjög í frammi. Meðal þekktra
Dana, sem studdu málstað Islend-
inga, má nefna eðlisfræðinginn
heimskunna, Niels Bohr. Stuðn-
ingur slíkra manna vegur alltaf
þungt. Ennfremur Bent A. Koch,
sem var ritstjóri Kristeligt Dag-
blad. Hann var sannarlega í hópi
traustustu Islandsvina í Dan-
mörku, bæði fyrr og síðar. Má þá
ekki gleyma að nefna Bodil Beg-
trup sem gegndi hér sendiherra-
stöðu frá 1949 til 1956 og margir
minnast sem þá voru komnir til
vits og ára.
Andstæðinga megin voru fáir
harðskeyttari en Christian
Westergárd-Nielsen sem skildi og
talaði íslensku og vissi manna best
hvers konar verðmæti þarna var
um að tefla. Hann hafði áður verið
vinsamlegur íslendingum en sneri
nú við blaðinu. Handritin gat hann
síst hugsað sér að missa!
Westergárd-Nielsen og aðrir slík-
ir bentu á að afsal löglega feng-
inna safngripa tíðkaðist hvergi á
byggðu bóli. Þar að auki gæti af-
hending handritanna haft ófyrir-
sjáanlegt fordæmisgildi; önnur
ríki kynnu með sama rétti að
leggja fram kröfur á hendur
dönskum söfnum. Margur há-
skólaborgarinn fylgdi
Westergárd-Nielsen að málum.
Islenskir stjórnmálamenn fóru
með löndum fyrst í stað en hertu
róðurinn þegar málið tók að þok-
ast í áttina.
Áiið 1951 var Sigurður Nordal
skipaður sendiherra í Kaup-
mannahöfn. Nordal var þá orðinn
hálfsjötugur, hafði látið af há-
skólakennslu fyrir allnokkrum ár-
um og sinnti eingöngu ritstörfum.
Hann var kunnugur mönnum og
málefnum í Danmörku frá náms-
árum sínum þar. Hann naut afar
mikillar virðingar, bæði hér
heima og erlendis. Hann hafði
verið í hópi þeirra Islendinga sem
mótmæltu „hraðskilnaði“ 1944.
Það var talið mundu styrkja stöðu
hans gagnvart Dönum sem enn
voru gramir Islendingum vegna
aðskilnaðarins „under besættel-
sen“. Þar að auki var Nordal
gæddur persónutöfrum umfram
flesta sína samtíðarmenn eða eins
og Bodil Begtrup orðaði það í
bréfi „en af de fineste og
moi'somste personer, som findes
heroppe". Og fullvel kunni Nordal
skil á verðmæti þessara fornu
gersema ekki síður en
Westergárd- Nielsen! Allt um það
fékkst málið ekki til lykta leitt í
sendiherratíð Nordals. Islending-
ar urðu að þreyta Dani nokkur ár
í viðbót. En þegar það að lokum
leystist og fallist var á að afhenda
Islendingum þorra handritanna
mátti segja að deilumál Dana og
íslendinga teldust endanlega til
liðna tímans.
Það hefur sannarlega verið þol-
inmæðisverk að draga saman efni
í rit þetta og raða saman brotun-
um svo úr yrði þessi heildstæða
og merkilega saga. Höfundurinn
og útgefandi geta vel við unað.
Erlendur Jónsson
Handritin heim
Sigrún Davíðsdóttir