Morgunblaðið - 31.10.1999, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 31. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BAKSVIÐ
SKOÐANAKANNANIR í Ástralíu
benda nú til þess að andstæðingar
tillögunnar um lýðveldi séu fleiri
en stuðningsmennirnir; svo gæti
því farið að konungdæmið ynni
óvæntan sigur en lengi var talið að lýðveldið
fengi afgerandi meirihluta. Ekki er þó allt
sem sýnist í þessum efnum og aðrar kannan-
ir sýna að allt að 65% þjóðarinnar vilja frem-
ur lýðveldi en margir eru ósáttir við að for-
setinn verði ekki þjóðkjörinn.
Nýlendutímabilinu lauk formlega í Ástral-
íu árið 1901 þegar stofnað var sambandsríki
sem minnir að uppbyggingu á Kanada.
Landið hefur á tuttugustu öld orðið sjálf-
stætt í öllu sem máli skiptir, tengslin við
konungdæmið breska eru því aðeins tákn-
ræn. Nær helmingur landsmanna á ættir að
rekja til annarra landa en Bretlands og á því
erfitt með að skilja tUfinningar þeirra sem
hylla bresk, söguleg gildi.
ERLENT
WANTED
The Monarchy.
MISSING IN ACTION IN THE
Republic Debate.
IF FOUND, CALL THE MONARCHISTS
AND LET THEM KNOW.
TELEPHONE 1800 822 229.
Reuters
Skipverjar á ástralska herskipinu HMAS Adelaide greiða atkvæði utankjörstaðar í vikunni í þjóðaratkvæðinu um stofnun
lýðveldis, en kosningarnar verða 6. nóvember. Skipið var statt í Hong Kong.
Lýðveldissinnar segja að stuðningsmenn konungdæmis hafi ekki viljað hampa konungs-
fjölskyldunni í kosningabaráttunni vegna þess að hún njóti orðið lftillar virðingar í
Ástralíu. Hér lýsa þeir eftir Elísabetu drottningu og Karli ríkisarfa á veggspjaldi.
Sérstakt stjórnlagaþing, sem samdi tillög-
una um lýðveldisstofnun í Canberra í fyrra,
ákvað að forsetinn yrði kosinn á þingi og yrði
að fá þar tvo þriðju hluta atkvæða. Þetta
hafa margir gagnrýnt harkalega og hefur því
myndast undarlegt bandalag. Annars vegar
eru þeir sem vilja einfaldlega ekki breyta
neinu og hins vegar þeir sem eru hundóá-
nægðir með að við drottningu taki það sem
kallað hefur verið niðrandi „forseti pólitíkus-
anna“. Hinir síðarnefndu vilja fella hug-
myndina í von um að borin verði upp síðar
tillaga þar sem komið verði lengi'a til móts
við óskir þeirra. Hinir fyrrnefndu vona að
falli tillagan muni hugmyndin verða gleymd
næstu áratugina.
Hægt er að stinga upp á hverjum sem er
til að gegna embættinu en forsætisráðherra
og leiðtogi stjórnarandstöðu munu ákveða
hverjir verða í framboði. Forsætisráðherra
getur hvenær sem er vikið forsetanum ef
hann telur þjóðarhag krefjast þess; hinn
síðarnefndi verður því svo háður ríkis-
stjórninni að hann verður ekkert annað en
kjölturakki hennar, segja þeir sem vilja
fella tillöguna. Hvað verður um stöðugleik-
ann í embætti þjóðhöfðingjans, spyrja
menn, og hvaða aðhald mun hann veita
ráðamönnum ef svona er í pottinn búið?
Þetta sé ekki lýðveldi heldui- „eins og að
leika fótbolta án bolta“.
Þegar spurt var hvers vegna ekki mætti
leyfa þjóðinni að kjósa forsetann beinni
kosningu var svarað að þá gæti komið upp
stjórnarfarskreppa. Forsætisráðherra, sem
ekki er þjóðkjörinn, myndi hugsanlega hafa
minni myndugleika en þjóðkjörinn forseti ef
þeir yrðu ósammála.
Lýðveldissinnar eru margir sárreiðir og
segja að Howard og menn hans hafi ráðið því
hvemig tillagan var orðuð. Nú sé búið að
þvinga þá til að mæla með hugmynd sem
þjóðin sé ekki hrifin af. Niðurstaðan gæti
orðið sú að í reynd verði frestað að taka
ákvörðun sem líklegt er að memhlutinn vilji,
þ.e. að afnema konungdæmið.
Ónnur niðurstaða kemur
einnig til gi-eina. Ef tillagan
verður samþykkt gætu stuðn-
ingsmenn hennar reynt að fá
þingið til að breyta ákvæðun-
um um forsetakjör þannig að
hann yi-ði þjóðkjörinn.
Athyglisvert er að drott-
ingin og konungsfjölskyldan
voru lengst af ekki dregin inn
í áróður fylkinga, þegjandi
samkomulag var um að forð-
ast það. Umræðumar sner-
ust fyrst og fremst um for-
setaembættið og hvemig
kjósa ætti til þess. Nú hafa
stuðningsmenn lýðveldis
skyndilega skipt um gír.
„Við ætlum ekki lengur að
taka á þessu með silkihönsk-
um,“ sagði framkvæmda-
stjóri kosningabaráttu lýð-
veldissinna. „Fólk á eftir að
heyra heilmikið frá okkur um
möguleikann á því að Karl
konungur III og Camilla
drottning taki við.“ Birt eru
spjöld með mynd drottningar
og „lýst eftir“ konungdæm-
inu, stuðningsmenn þess
þannig hæddir fyifr að
hampa ekki Elísabetu og syni
hennar. Konungssinnar svör-
uðu með því að fordæma and-
stæðingana fyrir að draga
deilurnar niður í svaðið með
persónulegri illgirni.
Leikarar og íþróttakappar
Stjórnmálaskýrendur em
sumir á því að þorri Ástrala sé löngu búinn
að fá nóg af bresku konungsfjölskyldunni.
Uppákomumar í herbúðum Windsor-ættar-
innar á síðari árum, hjónabandserfiðleikar
Karls og annama barna Elísabetar, framhjá-
haldssögur og fleira hafi valdið mikilli þreytu
og fólk vilji innlendan þjóðhöfðingja. Þótt
drottning sé sjálf vinsæl dugi það ekki til.
En hver á að verða forseti? Breska blaðið
The Sunday Telegraph segir að í könnunum
um málið í Ástralíu beri mest á nöfnum
þekktra kvikmyndaleikara og íþróttamanna.
Má nefna Bryan Brown, Pat Rafter, Cate
Blanchett og, af minni alvöru, píanóleikar-
ann David Helfgott, sem frægur varð vegna
kvikmyndarinnar Shine um ævi hans.
„Ég myndi aldrei sætta mig við að Kylie
Minogue [þekkt dægurlagasöngkona og leik-
kona] yrði forseti Ástralíu,“ segir Kay
Masters, einn af talsmönnum lýðveldis. „Eða
einhver önnur fjölmiðlastjarna. Við yrðum
aðhlátursefni. En breska konungsfjölskyldan
er hreinasta háðung. Mér er sama hvað ger-
ist ef við bara losnum við hana.“
Deilan um lýðveldisstofnun í Ástralíu vek-
ur áhuga þeirra Breta sem vilja afnema kon-
ungdæmið og segjast þeir geta lært mikið af
þeim. Einkum að ekki megi falla í þá gryfju
að láta umræðumar um eftirleikinn stýra
öllu. Mikilvægast sé að fá því framgengt að
konungdæmið hverfi.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands,
hafi ratað á réttu leiðina í hliðstæðu máh er
hann fékk í gegn breytingar á lávarðadeild-
inni sem í reynd verða til þess að erfðaréttur
til þingsætanna leggst niður. Hann hafi lagt
áherslu á að fækka erfðaþingsætunum. Hvað
síðar verði gert við deildina skipti minna
máli.
WANTED
AUSTRALIA S NEXT KING
MISSING IN ACTION IN THE
REPUBLIC Debate.
If found. call the monarchists
AND LET THEM KNOW.
TELEPHONE 1800 622 229.
Ef ekkert er að ...
„Ef ekkert er að hvers vegna þá að laga
það?“ spyrja samt margir
Ástralar. Þeir eiga við að
tengslin við breska konung-
dæmið hafi undanfama ára-
tugi ekki verið nema til góðs.
Óþarfi sé að taka áhættuna
og vitlegra að hugsa sig um
tvisvar. Bent er á að Ástral-
inn sir William Deane er
landstjóri sem er embættis-
heiti æðsta fulltrúa drottn-
ingar og sagt að hann gegni í
reynd embætti þjóðhöfð-
ingja. Þjóðhöfðinginn sé því
Ástrali. En á móti er spurt
hvers vegna John Howard
forsætisráðherra ætli þá að
setja Ólympíuleikana í Sydn-
ey á næsta ári en ekki sir
William. Hefð er fyrir því að
leikana setji þjóðhöfðingi
gestgjafanna.
Rök þeirra sem vilja binda
enda á tengslin era meðal
annars þau að erfðaréttur tfl
embættis þjóðhöfðingja sé
ekkert annað en úreltar mið-
aldaleifar. Þessi skipan mála
sé auk þess í engu samræmi
við nútímalega jafnræðis-
hyggju Ástrala og þótt þeh
njóti í reynd fulls sjálfstæðis
sé kominn tími tfl að taka
skrefið til fulls. Lýðveldis-
stofnun sl „hugmynd sem
orðin er tímabær, ekki með
því að efna til uppþota eða
uppreisnar heldur vegna gild-
is hennar sem slíkrar", sagði í
leiðara dagblaðsins Sydney
Morning Herald nýlega.
Enn aðrir benda á að Ástralar hafi aðal-
lega hagsmuna að gæta í samskiptum við
Asíulönd; margir spá því að Austur-Asía
verði þungamiðjan í efnahagsmálum heims-
ins á næstu öld. Eðlilegt sé að hrista af sér
síðustu hlekkina sem tengi landið við gamla
kúgunarstefnu sem margir Asíumenn geti
enn ekki fyrirgefið. Ástralía eigi ekki að
verða útvörður löngu dauðs heimsveldis.
Frjálslyndi flokkurinn, sem er til hægri í
Ástralíu, er við völd en deilurnar ganga
þvert á flokksbönd. Þannig era ráðherrar
ríkisstjórnar Johns Howards ýmist með til-
lögunni eða á móti. Sjálfur lýsti forsætisráð-
herrann í vikunni yfir eindreginni andstöðu
sinni við að gerðar yrðu breytingar á kerfi
sem reynst hefði vel og stuðlað að stöðug-
leika. Verkamannaflokkurinn er í stjórnar-
andstöðu og forystumaður hans, Kim Be-
azley, vill lýðveldi.
Howard hafði áður tekið undir með Be-
azley og beðið samþingmenn sína að halda
málinu utan við flokkapólitík. Frjálslyndir
yrðu að gera það upp við eigin samvisku
hvernig þeir greiddu atkvæði. Hefur yfirlýs-
ing hans í vikunni því valdið írafári, ekki síst
í ríkisstjórninni og flokknum vegna þess að
Howard er greinilega að reyna á síðustu
stundu að hafa úrslitaáhrif á niðurstöðuna í
trausti þess að vaxandi líkur séu á að mjótt
geti orðið á mununum.
Klofningur í röðum lýðveldissinna
Verði tillagan samþykkt er ekki búið að
svara öllum spurningum um framhaldið og á
því hamra stuðningsmenn konungdæmisins.
Og klofningur í röðum lýðveldissinna hefur
átt mikinn þátt í að snúa taflinu við í barátt-
unni.
Kosið um lýðveldi 1 Astralíu
Ognað með Karli
III og Camillu
drottningu
*
Astralar munu um næstu helgi halda þjóðaratkvæða-
greiðslu þar sem ákveðið verður hvort stjórnarfarsleg
tengsl við Bretland verði rofín, Elísabetu drottningu
þakkað fyrir vel unnin störf og stofnað lýðveldi. Ekki
er gert ráð fyrir forseta með raunveruleg völd, hann
verður aðeins þjóðartákn og kosinn af þingmönnum.