Morgunblaðið - 26.03.1983, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1983
9
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 187. þáttur
Ragnar Lár á Akureyri
sendir mér bréf sem svo hefst,
að slepptum ávarpsorðum:
„Vegna atvinnu minnar hef
ég góðan tíma til að hlusta á
útvarp. Ekki fer hjá því að ég
„reki eyrun“ í ambögur þeirra
sem mál sitt flytja í þessum
fjölmiðli. Stundum punkta ég
þessar ambögur hjá mér á
blað, en hef ekki lagt mig mjög
eftir að skrá flytjendur. Þær
setningar, eða setningabrot,
sem hér fylgja, hef ég lengi
ætlað mér að senda þér og læt
nú loks verða af því. Ég læt
þau höfundarnöfn fylgja sem
ég er viss um.“
Eftir að setningar hafa verið
til tíndar, segir Rangar: „Að
sjálfsögðu ætlast ég ekki til að
þú nafngreinir þessa flytjend-
ur, en allar eru þessar setn-
ingar rétt eftir hafðar.
Ekki veit ég hvort þér er
nokkur akkur í þessum setn-
ingum, en þér er velkomið að
nýta þær og taka til meðferðar
ef þú villt."
Nærri má geta hvort mér er
ekki akkur í bréfi eins og
þessu, og er slíks getið í þætt-
inum fyrir skemmstu. Ég færi
Ragnari Lár þakkir og fjalla
nú um það sem hann sendi
mér, eftir því sem ég get.
1) „... að nú sé farið að
sverma að þeim.“ Þetta var úr
lýsingu á kappleik. Hér er um
dæmigerðan samruna (conta-
mination) að ræða. Maðurinn
ruglar saman sögnunum að
þjarma og sverfa. Við þjörmum
að einhverjum, ef við leikum
hann grátt, og það er farið að
sverfa að einhverjum, sem
báglega er staddur. Danska
tökusögnin að sverma (fyrir
einhverjum) merkir allt ann-
að. Karlmenn sverma fyrir
stúlkum sem þeir eru skotnir í.
2) „ ... prófkjör og allskyns
þessháttar." Ég veit ekki
hvernig ég á að skilgreina
þennan hrærigraut. Líklega
hefur maðurinn ætlað að
segja: Prófkjör og annað þess
háttar eða prófkjör og annað
þess kyns. Þetta er líklega
annað dæmi um samruna.
3) „ ... fyrir Jónu Jónsdóttir."
Mjög algeng málvilla, ségir
Ragnar. Já, það er víst mjög
algengt að menn beygi skakkt
orðin faðir, bróðir, systir, móð-
ir og dóttir. Beyging þessara
frændsemisorða er þó mjög
einföld, og skiptir engu hvort
þau eru karlkyns eða kven-
kyns. í nefnifalli eintölu enda
þau á ir, en í öllum aukaföllun-
um, alltaf endranær, á ur, það
er föður, bróður, systur, móður
og dóttur. Menn gera þá eitt-
hvað fyrir fóður sinn eða dóttur
og menn leika eitthvert lag
fyrir Jónu Jónsdóttur.
4) „Árlega stöðvar lögreglan
hundruðir bifreiðastjóra." Hér
er um að ræða breytingu á
kyni orðsins hundrað, þá sem
ég á ákaflega bágt með að
sætta mig við. Ég vil hafa orð-
ið hundrað hvorugkyns eins og
verið hefur um aldir. Mér er að
vísu ljóst að þúsund er haft
bæði í kvenkyni og hvorugkyni
og talið vítalaust mál, hvort
sem er, þó að ég segi skilyrðis-
laust mörg þúsund. Hér mun
því um að ræða leiðinlega
áhrifsbreytingu frá orðinu
þúsund og sennilega líka
kvenskynsorðinu milljón,
fleirtala milljónir.
5) „ ... að margt var ábóta-
vant.“ Og hvað eftir annað hef-
ur Ragnar sams konar dæmi.
Þetta er ópersónulegt orða-
samband. Rétt er að segja að
mörgu eða mér sé ábótavant.
6) „Þeir eiga mörg góð lög sem
er tileinkað sólinni." Kemur nú
rétt einu sinni geld þolmynd,
sem ég ræddi hvað mest um
fyrir skemmstu. Hér á auðvit-
að að segja: sem eru tileinkuð.
Lögin (hvorugkyn fleirtölu)
eru tileinkuð sólinni. Eitt lag
er hins vegar tileinkað henni.
Ragnar er með annað heldur
ófrýnilegt dæmi um ranga
þolmynd:
„Afgangur kryddsmjörsins er
smurt á kjúklinginn,“ og var
þetta tvítekið, svo að ekki hef-
ur það verið tilviljun. Hér á
annað hvort að segja að kjúkl-
ingurinn sé smurður með af-
gangi kryddsmjörsins eða að
afgangi kryddsmjörsins sé
smurt o.s.frv.
7) „ ... laukurinn skrældur."
Ómyndarsögnin að skræla
(skralla) er algerlega þarflaus
í máli okkar. Við flysjum lauk,
kartöflur og annað.
8) „ ... fyrir unglingum. Þau
vita.“ Sagt oftar en einu sinni,
segir bréfritari. Það er trúlegt,
því að þetta er algeng málvilla.
Unglingar er karlkynsorð;
menn rugla þessu víst í hugan-
um saman við börn og segja
þau í stað þeir um unglingana.
9) „Unga fólkinu finnst því
vanta súrefni." Hvað eftir ann-
að má heyra þess konar tal í
útvarpinu. Hér á að vera: það
vantar o.s.frv. Mig vantar
eitthvað, þig vantar þetta, þau
vantar; ekki: mér, þér eða þeim
vantar.
10) „ ... svo allir skilji hvað að
sér snýr í þeim efnum." Hér á
að vera hvað að þeim snýr.
Að lokum þessi andkanna-
lega klausa, höfð eftir kunnum
stjórnmálamanni: „ ... sem
hver einasti landsmaður getur
átt allt sitt undir högg að
sækja." Geta menn spreytt sig
á að lagfæra þetta.
29555 — 29558
Skoðum og verömetum eignír samdægurs
Opiö í dag ffrá kl. 1—3
Engihjalli
2ja herb. 65 fm íbúö á 7. hæö.
Verð 920 þús.
Gaukshólar
2ja herb. 64 fm íbúö á 3. hæð.
Bílskúr. Verö 830 þús.
Óðinsgata
3ja herb. 65 fm íbúð í risi.
Endurnýjaö gler og gluggar.
Verð 750 þús.
Hagamelur
3ja herb. 80 fm íbúö á 3. hæð.
Aukaherb. í risi. Verö 1150 þús.
Álfhólsvegur
3ja herb. 80 fm íbúð á 1. hæö.
Bílskúr. Verö 1300 þús.
Nýbýlavegur
3ja til 4ra herb. 80 fm íbúö á 2.
hæð. Lítið undir súö. Verö 950
þús.
Blöndubakki
3ja herb. 95 fm íbúð á 3. hæð.
Aukaherb. í kjallara. Verö 1200
þús.
Engihjalli
3ja herb. 95 fm íbúð á 3. hæð.
Verö 1100 þús.
Skálaheiði
3ja herb. 70 fm íbúö í risi. Verö
900 þús.
Spóahólar
3ja herb. 97 fm íbúö á 3. hæð.
Vandaðar innréttingar. Suöur
svalir. Góö teppi. Sjónvarpshol.
Verð 1200 þús.
Góðar innréttingar. Bílskúr 30
fm. Verö 1700 þús.
Háaleitisbraut
5 herb. 122 fm íbúð á 2. hæð
sem skiptist í 3 svefnherb., 2
saml. stofur. Stórar suður sval-
ir. Bílskúr. Æskileg makaskipti
á 3ja til 4ra herb. íbúö i Reykja-
vík eða Kópavogi.
Barmahlíð
4ra herb. 115 fm íbúð á 2. hæð.
Verð 1500 þús.
Breiðvangur
4ra herb. 115 fm íbúð á 1. hæð.
Verð 1350 þús.
Fífusel
4ra herb. 115 fm íbúð á 1. hæð.
Sjónvarpshol. Verð 1200 þús.
Hrafnhólar
4ra herb. 105 fm íbúð á 2. hæð.
Verð 1200 þús.
Súluhólar
4ra herb. 115 fm íbúð á 3. hæð.
Bílskúr. Verð 1400 til 1450 þús.
Laus nú þegar.
Grænahlíð
5 herb. 140 fm íbúö á 1. hæö.
30 fm bílskúr. Fæst eingöngu í
makaskiptum fyrir góða sér
eign.
Háagerðí
202 fm raðhús á 3 hæðum.
Verð 2,3 millj.
Laugarnesvegur
2x100 fm einbýlishús. Bílskúr.
Verð 2,2 millj.
Eignanaust SUpho„iS.
Þorvaldur Lúöviksson hrt., Simi 29555 og 29558.
EIGNAÞJÓNUSTAN
FASTEIGNA- OG SKIPASALA
HVERFISGÖTU 98
(horni Barónstigs).
SÍMAR 26650—27380.
Lynghagi
Einstaklingsíbúö (kjallari) hent-
ar vel t.d. sjómanni eða skóla-
fólki. Verð 450 þús. Ákv. sala.
Krummahólar
2ja herb. 55 fm falleg íbúð á 1.
hæð. Verð 760 þús. Ákv. sala.
Sléttahraun Hf.
2ja herb. 65 fm góð íbúö á 1.
hæð. Bílskúr. Verð 950 þús.
Ákv. sala.
Hvassaleiti
4ra—5 herb. mjög góð íbúð á
4. hæð. Bílskúr. Ákv. sala.
Engihjalli Kóp.
3ja herb. 90 fm glæsileg íbúð á
7. hæð (efstu). Haröviðarinn-
réttingar í eldhúsi. góðir skápar
í herb. Tvennar svalir. Útsýni yf-
ir allt. Verö 1100—1150 þús.
Ákv. sala.
Nýbýlavegur Kóp.
6 herb. 150 fm sérhæö (efri),
mjög rúmgóð íbúð með miklu
útsýni. Stór bilskur. Verð 1850
þús. Ákv. sala.
Höfum kaupanda að góöri
3ja—4ra herb. íbúð á hæð í
vesturbænum.
Lögm Högni Jónsson hdl.
Sölum.: Örn Scheving.
Hólmar Finnbogason. Sími 76713.
Gt'xhn ihginn!
VESTURBÆR
100 FM NÝ ÍBÚÐ
Til sölu stór 3ja herbergja íbúö á 3. hæö
viö Boöagranda. Ein stór 3tofa, 2
svefnherbergi meö skápum. Parket á
gólfum. Lagt f. þvottavél í ibúöinni.
Laus fljótlega.
LAUGATEIGUR
SÉRHÆÐ + BÍLSKÚR
Mjög góö ca. 117 ferm. neöri hæö í
þríbýlishúsi sem skiptist í 2 stórar stof-
ur, rúmgott hol. 2 svefnherbergi, eldhús
og baö. Nýlegar innréttingar aö hluta
ásamt nýju gleri i gluggum. Stór bílskúr
meö gryfju fylgir. Gæti oröiö laust fljót-
lega.
ESKIHLÍÐ
4RA HERBERGJA
Mjög falleg og endurnýjuö íbúö, ca. 110
ferm. á 1. hæö. íbúöin skiptist m.a. í
tvær skiptanlegar stofur og 2 svefn-
herbergi o.fl. Gott gler.
SKAFTAHLÍÐ
5 herbergja
Ca. 120 fm íbúö á 1. hæö í fjölbýlishúsi.
Stofa, boröstofa, 3 svefnherbergi. Suö-
ur svalir. Sórhiti.
EINBÝLISHÚS
LAUGARÁS
Til sölu einbýlishús á einni hæö, ca. 180
fm meö 1400 fm lóö. í húsinu eru m.a.
stórar stofur og 5 svefnherbergi. Þarfn-
ast lagfæringar. Verö ca. 3 millj.
LJÓSHEIMAR
3JA HERBERGJA
Ca. 85 fm ibúö á 4. hæö i lyftuhusi. Ein
stofa og tvö svefnherbergi o.fl.
FÁLKAGATA
3JA HERBERGJA
Ca. 70 fm ibúó á 1. hæö i eldra 3býlis-
húsi úr steini. Sér hiti. Verö ca. 920 þúa.
KARLAGATA
2 HÆÐIR + KJALLARI
Parhús sem er 2 hæöir og kjallari, 3x60
fm. I húsinu má hafa 1—3 íbúöir eftir
þörfum. Verö ca. 2,3 millj.
HAFNARFJÖRÐUR
3JA HERBERGJA
Ca. 97 fm ibúö á 1. hæð í 4býlishúsi, a.
10 ára gömlu viö Suöurgötu. Góöar inn-
réttingar. Þvottaherbergi í íbúöinni. Sór
hiti. Laus eftir samkl.
BARMAHLÍÐ
4RA HERBERGJA
Ca. 110 ferm íbúö á 2. hæö í fjórbýlis-
húsi. 2 stórar stofur, 2 svefnherbergi
m.m. Haröviöarhuröir og skápar. Nýtt
þak. Nýtt gler. Ný raflögn. Laus 1. okt.
Verö 1500 þúa.
NORÐURMÝRI
3JA ÍBÚÐA HÚS
Parhús, sem er 2 hæöir og kjallari. Hver
hæö um 60 ferm. A 1. og 2. hæö eru 3ja
herbergja íbúöir en einstaklingsíbúö,
þvottahús og geymslur í kjallara. Selst í
einu lagi.
ENGJASEL
RAÐHÚS
Fullbuiö endaraöhús, alls aö grunnfleti
210 fm. Bilskýlisréttur.
SÍMATÍMI í DAG
LAUGARDAG KL. 1—3.
FJÖLDI ANNARRA
EIGNA Á SKRÁ.
Atli Vannaeon lftjifr.
Suöurlandsbraut 18
84433 82110
Gíidan dagitm!
Opiö 1—4
Digranesvegur Kóp.
2ja herb. ca 65 fm góö ibúö á jaróhæö
i fjórbýli. Bílskúr fylgir. Möguleiki á
skiptum á 3ja—4ra herb. ibúó i Reykja-
vík. Verö 1050 þús.
Mánagata
2ja herb. ca. 55 fm íbúö i kjallara.
Ósamþykkt. Verö 600 þus.
Flyörugrandi
2ja herb. ca. 65 fm nýleg íbúö á jarö-
hæö. Rúmgóö stofa. Flisalagt baó.
Parket. Mjög góö sameign.
Nýlendugata
2ja herb. ca. 50 fm sér bakhús á róleg-*
um staö. Húsiö nýlega mikiö endurnýj-
aö. Möguleiki á skiptum á 3ja herb. ná-
lægt Hlemmi. Verö 750 þús.
Spóahólar
3ja herb. ca. 90 fm mjög falleg ibúö á 3.
(efstu) hæö í blokk. Fallegt eldhús og
gott útsýni. Veró 1200 þús.
Frostaskjól
3ja herb. mjög góö ca. 75 fm ibúö á
jaröhæö i tvibýlis steinhúsi. Agætar inn-
réttingar. Eldhús meö borökrók. íbúóin
er laus nú þegar. Verö 980 þús.
Krummahólar
3ja herb. ca. 90 fm glæsileg ibúð á
3. hæö (í enda) í lyftublokk. Vand-
aöar furuinnréttingar. Flísalagt
baö. 20 fm suðursvalir. Bílskýli.
Veró 1250 þús.
Leirubakki
3ja herb. ca. 90 fm íbúö á 3. hæö í góöri
blokk. Þvottur innaf eldhusi.
Karfavogur
3ja herb. ca. 90 fm mjög góö íbúö í
kjallara. Bílskúrsróttur. Ibúðin er öll
mikiö endurnýjuð.
Blikahólar
4ra—5 herb. falleg ibúö á 1. haBÖ í lyftu-
blokk. Góóar innréttingar Fallegt eld-
hús meö borökrók. Þvottur á hæöinni,
vestur svalir. Verö 1300 þús.
Efstihjalli Kóp.
4ra herb. ca. 100 fm rúmgóö ibúö á 1.
hæö í 3ja hasöa blokk. Verö 1300 þús.
Kóngsbakki
4ra herb. ca. 110 fm mjög góö íbúö á 3.
hæö. Flísalagt baö Rúmgott eldhús.
Sér þvottur. Verö 1300 þús.
Dalaland
Glæsileg 4ra herb. ca. 100 fm íbúö á 2.
hæö (efstu) í 2ja hæöa blokk. Þvottur á
hæöinni. Suöur svalir. Vandaöar sér-
smiöaöar innréttingar. Verö tilboö.
Þinghólsbraut Kóp.
5—6 herb. einbýlishús ca. 155 fm. Inn-
byggður bílskúr. Stór ræktuö lóö. Leyfi
fyrir stækkun. /Eskileg skipti á góöri 3ja
herb. ibúö aöeins i Kópavogi.
Bárugata
4ra—5 herb. aöalhæö (1. hæö) i þribýlis
steinhúsi. Góöur bilskúr fylgir. Verö
1600 þús.
Þverbrekka Kóp.
4ra—5 herb. góö íbúö á 6. hasö i lyftu-
blokk. Skipti mögjleg á parhúsi eöa
minni séreign í Vesturbæ Kópavogs.
Veró 1250 þús.
Háaleitisbraut
5 herb. ca. 117 fm sérlega góö ibuö
á 1. hæö í blokk. Bílskúr meö raf-
lögn fylgir. Skipti æskileg á 3ja
herb. ibúö i Reykjavik. Verö 1750
þús.
Leifsgata
Hæö og ris ásamt bilskúr. Alls 6 herb.
um 130 fm. Gestasnyrting og baöherb.
Eldhús meö borökrók. Skipti möguleg á
4ra—5 herb. eign í Vesturbæ. Veró
1550 þús.
markadswónustan
INGÖLFSSTRA.TI 4 . SIMI 26911
Róbert Aml Hreiðarsson hdl.
Opiö í dag 10—13
Hraunbraut
á jaröhæð meö sér inngangi i tvibyli 2ja
herb. 50 fm ibúö. Öll endurnyjuö. Akv.
sala. Verö 800—850 þús. Möguleiki á
verðtryggöum kjörum meö lægri útb.
Víðimelur
á 2. hæö 50 fm 2ja herb. íbúö. Gæti
losnað fljótlega. Verö 800 þús.
Eyjabakki
Hugguleg 95 fm ibúö á 2. hæö. Verö
1150 þús. Skiptu möguleg á 2ja herb.
íbúö.
Hvassaleiti
Mjög hugguleg rumlega 100 fm ibúö
meö bilskúr. Akv. sala. Laus fljótlega
Lækjarfit
á miöhæö smekkleg tæplega 100 fm
ibúö, 4ra herb. Verö 1,2 millj.
Dalaland
4ra herb. ibúö rúmlega 100 fm á 2.
hæö.
Blikahólar
á 3. hæö, efstu. Vönduö 45 fm ibuó.
Innbyggóur bilskúr. Utsýni.
Johann Daviðsson. simi 34619, Agúst Guðmundsson. simi 41102
Helgi H Jonsson. viðskiptafræðingur