Morgunblaðið - 26.06.1984, Page 22
VL
»»* t.t.t.t.M.^.v.MAWíwiwwiwwwwwiiwwaiywCTwi'iTnwwiaini i M.wj .v. 5 v.-v •;
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1984
iMtogiitiÞfatoífe
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 275 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakiö.
Carrington
ÍNATO
Baly frjáls ferða sinna
í Vestur-Þýskalandi
Hlaut eins árs skilorðsbundinn dóm fyrir samskonar brot í Köln
Þýska flutningaskipid Eliza Heeren í Reykjavíkurhöfn
Igær tók Carrington lávarð-
ur við framkvæmdastjóra-
störfum í höfuðstöðvum Atl-
antshafsbandalagsins í Bruss-
el af Joseph Luns sem stjórnað
hefur starfinu þar síðustu 13
ár. Luns setti sinn persónu-
lega svip á bandalagið og ekki
er vafi á því að Carrington á
eftir að gera slíkt hið sama. Á
starfstíma Luns hefur reynt á
samstarf aðildarríkja NATO
með margvíslegum hætti.
Slökunarskeiðið svonefnda var
að hefjast þegar hann hóf
störf, það náði hámarki
sumarið 1975 með undirritun
lokasamþykktarinnar í Hels-
inki. Þetta tímabil notuðu
Sovétmenn markvisst til að
koma ár sinni fyrir borð bæði
með smíði nýrri og fullkomn-
ari vígvéla og valdabrölti í
Asíu, Afríku og Suður-Amer-
íku. í desember 1979 sam-
þykktu NATO-ríkin að efla
kjarnorkuvarnir sínar í
Vestur-Evrópu og eftir að
Ronald Reagan varð forseti í
Bandaríkjunum í ársbyrjun
1981 hefur tónninn í garð Sov-
étmanna almennt harðnað.
Framkvæmd ákvörðunar
NATO frá 1979 hefur gengið
eftir þrátt fyrir mikinn undir-
róður og áróður gegn henni.
Joseph Luns hefur hvað eftir
annað sagt það síðustu mánuði
að vegna þess hvernig banda-
lagsríkin hafa staðið saman að
framkvæmd þess máls yfirgefi
hann embætti sitt sáttur við
menn og málefni.
Eins og af þessu stutta yfir-
liti sést hefur Joseph Luns
verið framkvæmdastjóri
NATO bæði á slökunar- og
hörkuskeiði í samskiptum
austurs og vesturs. Luns hefur
þó alla tíð verið í hópi þeirra
sem telja hörkuna affarasælli
til að ná árangri í samskiptum
við Sovétmenn en slökun og
undanlátssemi. Hefur hann
löngum verið ómyrkur í máli
um framferði Kremlverja inn-
an Sovétríkjanna og utan.
Enginn þarf að efast um að
Carrington lávarður átti sig á
því að hið eina sem Kremlverj-
ar setja nú traust sitt á er
hernaðarmátturinn. En Carr-
ington hefur gerst talsmaður
þess meðal annars í athyglis-
verðri ræðu sem hann flutti í
apríl 1983 í London, að Vestur-
lönd missi aldrei sjónar á
nauðsyn þess að geta rætt við
kommúnistaríkin um sameig-
inleg hagsmunamál. Sam-
skipti austurs og vesturs séu
meira virði en bókhaldslegt
uppgjör í hótunartón á því
hvor eigi fleiri kjarnorku-
sprengjur.
Athyglisverðir hlutir eru að
gerast í viðræðum Vestur-
Evrópuríkja um leiðir til að
styrkja eigin varnir. Líklegt
þykir að Carrington lávarður
verði áhugasamari um þennan
þátt varna Atlantshafsbanda-
lagsins en Luns og geti
kannski af þeim sökum lent í
vandræðum í Washington, þar
sem margir þingmenn eru í
vafa um að Evrópumenn leggi
nægilega mikið á sig í þágu
hervarna. Á næstu vikum og
mánuðum verður fróðlegt að
fylgjast með því hvernig Carr-
ington fetar þann nýja stíg á
alþjóðavettvangi sem hann
hefur einróma og gagnrýnis-
laust verið fenginn til að
þræða í þjónustu 16 ríkja.
Mitterrand
í Moskvu
*
Iþjóðfélagi þar sem lygin er
talið haldbesta vopnið til að
ná völdum og áhrifum jafnt
innan lands sem utan hrökkva
ráðamennirnir harkalega við
þegar þeir eru í veislum
ávarpaðir af hreinskilni og
einurð. Þetta gerði Francois
Mitterrand, forseti Frakk-
lands, þegar hann talaði í
kvöldverðarboði í Kremlar-
kastala t síðustu viku og gerði
ill örlög Andrei Sakharov að
umtalsefni í óþökk gestgjaf-
anna.
Raunar segir það mikla sögu
um þær skrautumbúðir sem
menn hafa valið utan um sam-
skipti austurs og vesturs að
allir skuli hrökkva jafn mikið
við og raun ber vitni þegar
forseti Frakklands segir það
sem honum býr í brjósti
opinberlega í Moskvu. Kreml-
verjar eiga það alls ekki skilið
að vestrænir stjórnmálamenn
setji upp silkihanskana hvort
heldur þeir eru að þakka fyrir
matinn 1 veislum eða endra-
nær. Mitterrand er maður að
meiri eftir að hafa boðið
hræsni og leikaraskap í sam-
skiptum við kommúnistaríkin
byrginn með ræðu sinni.
Alræðisstjórnir bregðast
ætíð eins við þegar menn
mæla sannleikann innan
landamæra þeirra: þær reyna
að koma í veg fyrir að þegn-
arnir heyri hann. í Moskvu
var reynt að fela hugrekki
Mitterrands með sama hætti
og ræður Ronald Reagans,
Bandaríkjaforseta, voru stytt-
ar þegar hann var í Kína á
dögunum.
„SKIPSTJÓRINN á Eliza Heeren var
á engan hátt að framkvæma fyrirmæli
þýskra stjórnvalda, er hann neitaði í
Esbjerg að framselja Miroslav Baly.
Slík fullyrðing er algjörlega til orðin í
hans eigin hugskoti, því þýsk stjórn-
völd myndu aldrei styðja við eða
hylma yfir afbrot og refsivert athæfi,"
sagði Heins Pallasch, sendiráðunaut-
ur í Þýska sendiráðinu í samtali við
blm. Morgunblaðsins í gær, er hann
var spurður um afstöðu þýskra stjórn-
valda í máli Balys, þýska stroku-
mannsins, sem grunaður er um fálka-
eggjaþjóf naö hér á landi, og strauk
með þýska flutningaskipinu Eliza
Heeren.
Hann kom með skipinu til Ham-
borgar í Vestur-Þýskalandi á mið-
nætti í fyrrakvöld, þar sem þýsk
lögregla tók hann í vörslu sína, en
hann var síðan látinn laus úr haldi
lögreglunnar fyrir hádegi f gær,
þegar lögreglan hafði staðreynt að
hann hefði þýskan ríkisborgararétt,
og hélt hann þá áleiðis til Kölnar.
„Það er ekkert hægt um það að
segja, hvað þýsk stjórnvöld gera,
eða þýskir dómstólar," sagði Pall-
asch jafnframt, „því þýskir dóm-
ÞAÐ GENGUR kraftaverki næst að
Jörgen Eiríksson, 11 ára drengur úr
Keflavík, skyidi sleppa lifandi er hann
féll úr 30 metra háu bjargi í sjó fram,
fyrir hálfum mánuði.
Jörgen var að leik með bróður
sínum og vini í Bjargvík við Kefla-
vík og voru þeir að tína fýlsegg.
Nokkrum eggjum höfðu þeir náð
þegar Jörgen kom auga á egg niðri í
bjarginu, þar sem það gnæfir 30
metra yfir sjó. Jörgen og Eiríkur
Þór, bróðir hans, fikruðu sig niður
fyrir bjargbrúnina. Þeir stóðu hlið
við hlið á mjórri syllu, en skyndi-
lega skrapp steinn undan fæti Jörg-
ens og hann steyptist aftur fyrir sig.
stólar einir geta um það dæmt hvort
Baly hefur til sakar unnið sam-
kvæmt þýskum lögum. Það gæti
verið spurning um það, hvort það að
Baly var dæmdur í eins árs fangelsi
í Köln skilorðsbundið, fyrir sams-
konar brot, þ.e. að stela fálkaung-
um, geri það að verkum, að hann
hafi brotið skilorðið."
Er blm. Morgunblaðsins ræddi
Honum sagðist svo frá: „Ég vissi
ekkert hvað hafði skeð, allt í einu
var ég kominn í sjóinn. Ég náði ekki
andanum en gat samt synt í land.
Það var ekki hægt að komast upp,
bjargið var svo bratt, svo ég varð að
ganga dálítið langt þangað til ég
komst upp. Á leiðinni rann ég og
rak höfuðið í og það varð að sauma
tvö spor í sárið. Annars fann ég ekki
til og ég var ekkert hræddur." Hið
sama er víst ekki hægt að segja um
bróður hans, Eirík Þór, 7 ára , sem
hafði klifrað upp á bjargbrúnina
aftur þegar hann sá á eftir Jörgen i
sjóinn. „Ég hélt að hann væri dáinn
og kallaði það til Gests, sem var
við Seeler, varðstjóra í Hamborg-
arlögreglunni í gær, sagði hann að
lögreglan hefði tekið Baly i sína
vörslu á miðnætti í fyrrakvöld, en
honum hefði svo verið sleppt úr
haldi laust fyrir hádegi í gær, þegar
lögi-eglan hafði sannreynt að hann
væri þýskur rikisborgari. Aðspurð-
ur um afbrotaferil Balys í Þýska-
landi sagði Seeler einungis: „Slíkar
með okkur. Við hlupum þangað sem
við sáum niður og þá sá ég að Jörg-
en hreyfði sig í sjónum og svo kom
hann gangandi til okkar."
Eftir að Jörgen var kominn á
þurrt eftir 400 metra göngu í fjör-
unni, bar að menn af golfvelli, sem
er þarna nálægt. Kallað var á
sjúkrabíl og var drengurinn fluttur
í sjúkrahúsið í Keflavik, Kom þá í
ljós að hann hafði fengið snert af
heilahristing en var alheill að öðru
leyti, nema hvað hann hafði fengið
skeinu á höfuðið, eins og áður er
sagt. Jörgen kvaðst ekki ætla oftar í
fýlseggjaleiðangur i bjargið, hann
væri búinn að læra af reynslunni.
Bræðurnir Jörgen, t.v. og Eiríkur Þór Eiríkssynir. Jörgen bendir í átt að bjarginu þar sem hann féll niður.
Keflavík:
Drengur féll 30 metra í
bjargi, slapp lítt meiddur