Andvari - 01.01.1913, Síða 208
146
Fiskisýningin
liörmulegt, að íslendingar skuli ekki sjálíir geta
búið til olíufatnað handa sér. Islenzkir sjómenn
gætu ekki gert annað þarfara að vetrinum til, því
þá hefir fjöldinn af þeim lítið fyrir stafni; við það
sparaðist álitleg upphæð, og um Ieið vendust menu
á starfsemi, sem því miður vantar hjá fjöldanum.
Jafnvel þó fötin litu ekki eins vel út í byrjuninni
og þau útlendu, mundu þau reynast eins haldgóð,
því eg veit til, að þeim fáu, sem þelta hafa reynt,
hefir gefist það vel.
Stórir hlaðar af kexi af ýmsu tagi til skipa-
útgerðar vóru sýndir, og ógrynni af niðursoðnum
matvælum; þar vóru og mjög hentugir skápar til
þess að geyma matvæli i, kældir með ís; vóru þeir
úlbúnir Hkt og frystihús. Skápar af svipaðri gerð
gætu verið mjög hentugir á heimilum til matar-
geymslu.
Fátt sá eg á sýningunni, sem mér þótti álitlegra
en nýtt lilunarefni á net og veiðarfæri, sem kallað er
»CuprinoI«; það er eirsambland og líkist nokkuð blá-
steinslit, en getur þó hafl fleiri liti. Efni þetta liefir
verið undir rannsókn í 0 ár. Hingað til hefir reynsl-
an sýnt, að tjara og fernis verja að eins á tímabili
þá hluti frá fúa, sem það er notað á, og ýms áður
þekt eir- og arsenikefni, sem notuð hafa verið við
litun síldarneta o. 11., hafa eftir sluttan tíma leyst
upp í sjó og vatni, og þess vegna þurft að litast
aftur og aftur, og saml fúnað og orðið ónýt fyr en
af eðlilegu sliti. Eftir 6 ára reynslu er það sannað,
að »Cuprinol« hefir þá eiginlegleika, að það upp-
leysist ekki í vatni eða sjó, og ver algerlega fúa,
ef rétt litunaraðferð hefir verið höfð. Á sýningunni
vóru sýnd net, lituð með þessu efni, er legið höfðu.