Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 216
154
Fiskisýningin
ýms björgunartæki og margt ileira, og frá sumu
þessu hafa þeir skýrt, þeir herrar B. S. og B. I3., t.
d. um björgunarbát frá Gautaborg með fullum út-
búnaði.
Eg heíi nú talið upp allar deildir aðalsýningar-
innar, og skiftingu þeirra í flokka, og hefi eg gjört
það til þess, að menn gætu séð, hve afar fjölskrúðug
og yfirgripsmikil sýningin var, en alls ekki séð mér
fært, að minnast á nema mjög fá atriði.
I3á er að eins eftir að minnast á gangvéla og
bátasýninguna, og jafnvel þó það væri nrjög mikill
hluti sýningarinnar, þar sem 200 vélar (motorar)
af ýmsri gerð voru sýndir í einu húsi, auk 60—70
skipa og báta, finn eg samt enga þörf, nema að eins
að minnast á þessa grein sýningarinnar, vegna þess,
að lierra Bjarni Þorkelsson og herra Bjarni Sæm-
undsson hafa svo ýtarlega lýst henni í sýningarskýrsl-
um sínum, og hefi eg engu við það að bæta, euda hef
eg enga sérþekkingu í þeirri grein. Gjarnan hefði eg
viljað geta bent mönnum á, hvaða vélar væru beztar
og hentastar fyrir okkur, en því miður verð eg að við
urkenna, að eg er jafnófær til þess, og eg var áður en
eg fór för þessa, enda er það örðugt og getur ver-
ið varhugavert, að mynda sér fastar skoðanir, eða
fella nokkurn dóm uin gæði vélanna, þó maður haíi
séð þær ganga undir beztu skilyrðum og hvað þá,
þegar um annan eins fjölda var að ræða og maður
varð altaf fyrir nýjum áhrifum, ýmist frá einstök-
um mönnum, sem þar voru lil að mæla með sínum
vélum, eða frá prentuðum bæklingum, sem lágu í
bunkum á sýningarsvæðinu. Mín skoðun er, að
menn ættu, hver og einn, sem mesl að halda við
þær vélar, er þeir hafa notað og eru orðnir kunn-