Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 16
X
Björn Jónsson
Kosinn á
ping.
árinu, þegar hann fór heim aftur og liætti við nám-
ið að fullu).
Strandamenn kusu hann til að sitja á al-
þingi 1879, í stað Torfa Einarssonar, sem
þá var látinn. B. .1. virðist hafa látið þar
lítið yfir sér. Hann var i landsreikninga-nefndinni
og fáeinum öðrum, tók ekki oft lil máls, og talaði
stutt og gagnort, þá sjaldan er hann gerði það. Með-
al annars hélt hann þar örstutta en ágæta ræðu með
lej'sing á sóknarbandi, enda var hann jafnan með
hinu fjdsta frelsi í öllum andlegum málum.
Hann ritaði úllendar fréttir í ísafold, með-
an hann var í Kaupmannahöfn, einkar
ítarlegar, enda var því við brugðið, hve vel
hann var að sér í því, sem þá var að gerast í heim-
inum.
Utlendar
fréttir.
Á þeim árum (1882) lét hann iíka í ísa-
máljð told td sin taka um eitt mal, sem mjog
misjafnt var litið á, bæði hér á landi og
með löndum í Kaupmannahöfn.
Dr. Hjaltalín hafði fengið lausn frá landlæknis-
embætlinu sumarið 1881. Jónas Jónassen, liéraðs-
læknir Reykvíkinga, var settur í hans stað, og um
stund var gengið að því vísu, að honum mundi verða
veitt embættið. En þá tóku nokkurir íslendingar í
Höfn, þar á meðal B. .1., að leggja kapp á að koma
að dönskutn manni, sem Schierbeck hét, manni, sem
kunnur var að því að hafa lagt sérstaka stund á
handlækningar, enda fengu því framgengt. Þessu
kunnu margir illa, þar á meðal ísafold, sem þá var
undir ritstjórn Eiríks Briem. Blaðið ílulti ritstjórn-
argrein um málið 25. marz 1882, og hélt því frarn,
að yfirleitt hefði ekki getist vel að fá hingað danska