Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 102
40
Fiskirannsóknir
Aflur á móti er vöxtur þess fisks, sem vex upp
i kaldari sjónum, norðan- og austanlands, alt að því
lielmingi seinni, og sjálfsagt hlýtur hann að verða
nokkuð eldri áður en hann verður æxlunarfær, eða
verða það minni vaxtar að jafnaði. Þegar hann er
orðinn það, hlýtur hann að leita til heitari sjávarins
til þess að hrygna, og það er skoðun mín, að allur
sá mikli urmull af smáum þorski, c. 70 cm. löngum,
sem safnast í nóvember —janúar, ásamt stærra þorski,
á bankana við Hornstrendur, út af Aðalvík og fvrir
vestan DjúpáJ, og botnvörpungarnir veiða þar svo
mikið af, sé fiskur, sem er í fyrsta sinn að yfirgefa
sjóinn við Norðurland, þar sem liann hefir alizt upp,
til þess að leita að lirygningarsvæðum í lieitari sjón-
um suður með, ásamt eldra (stærra) fiski, sem leitar
árlega norðurfyrir, hinn heitari tíma ársins, en er þá
að hörfa aftur frá Norðurlandi undan kuldanum,
sömuleiðis i hrygningarerindum.
3) sýna merkingarnar, hve mikið hefir veiðzt af
hinum merkta fiski. Það voru alls 77 fiskar, eða
6,8°/o að jafnaði, lægst 2°/o, í Héraðsllóa, hæst 15°/o,
í Faxaflóa. Þetta má lieita lítil veiði á móti því,
sem á sér slað í suðlægari liöfum. Við Færeyjar
hefir t. d. endurveiðzt alt að því 2/a (66°/o) af hin-
um inerktu fiskum. Þetta atriði, ásamt því, hve
fljótt þorskurinn lítur út fyrir að vaxa í heita sjón-
um, hin löngu frátök, sem oft verða um hrygningar-
tímann, sökum stórviðra, og svo atriðið, sem Schmidt
bendir á í skýrslu sinni, og eg hefi bent á áður, að
stór svæði eru í kringum landið, þar sem þorskur
er, en aldrei dregin botnvarpa (eða má draga), gefur
Ijós, að 11 /2 árs þorskur þar verður að jafnaði 25 cm., 2'jt órs
40 em., 3*/a 55 cm. og 4'/n 70 cm.