Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 118
56
Bréf
landsins innbyggjendur megi þar af hefndir liljóta,
frá hverju guð yður og alla oss bevari.
Gerum nú því elcki verk drottins sviksamlega,
heldur sjáum til, að vér, sem nú erum settir yfir hið
minna, megum þá síðar meir setjast yfir það meira,
og ganga inn í vors herra fögnuð.
Svo er nú þessi maður guði og yður afhentur
til þeirra aðgjörða og réttar, er heilagur andi gefur
ráð til, en kirkjan tekur af honum sitl varðhald og
ábyrgist yður, hvern hún hefur geyint hingað til, upp
á rétt vegna óguðlegs l'ramferðis, hvar á guð alls-
mektugur honum og öðrurn bót vinni.
Guði almáttugum séuð þér og allir vær trúlega
befalaðir. Amen.
Skálholti 27. Junij 1646.
Brynjólfur S(veins)s(on) R.
guðs og kirkjunnar þjenari1).
Bréf frá síra Hallgrími Péturssyni,
ritað á Kalastöðum 9. Júlí 1671, til Þormóðar sagna-
ritara Torfasonar, mestmegnis um efni Völuspár
og um norræna tungu2).
Eptir afskript sira Eirílts Kúlds 1868 í safni Jóns Sigurðs-
sonar 272. 4to, og segir Jón afskript þessa komna frá „síra Ei-
riki Kúld '°lo 1868“. Síra Eiriknr mun án efa liafa ritað þetta
upp úr söfnum Gísla Konráðssonar, eins og flestan annan fróð-
leik, sem menn feingu frá honum. — Þegar þetta bréf er ritað,
yar Þormóður á ferð hér á landi, og hefir ekki lagt héðan fyrri
en síðast í Júlí. Það var á þessari för á leiðinni til Danmerkur,
sem Þormóður komst í vígsmálið í Sámsey.
1) „Um Svein skotta gekk dómur á Alþingi, oghonumþar
refst Anno 1646, 30. Junij“, setur séra Jón á spássíu, og kemur
það hoim við Alþingisbók þess árs.
2) Það eru full rök til þess, að Brynjólfur biskup hefir
1663 feingið síra Hallgrím til þess að gera skýringar yfir vísurn-
ar í Olafs sögu Tryggvasonar fyrir Þormóð Torfason, þó að ekki
sé auðbent á, hvar þær skýringar sé nú að finna.
<