Andvari - 01.01.1913, Blaðsíða 89
27
1911 og 1912.
þó hafa Norðmenn fundið hér síldir, sem liafa verið
eluri, en þó mjög fáar, t, d. eina 16 vetra og aðra
19 vetra, og má því líklega ætla, að aldurinn fari ekki
mikið fram úr þvi, og ef til vill er það óvanalega
hár aldur, en 13 vetra síldir líta úl fyrir að vera al-
gengar; eg hefi fundið 4, eins og áður er sagt. Hin
stærsta þeirra var 39 cm. löng og sömu stærð
höfðu hinar umgetnu gömlu síldir náð, og stærri
síldir en það hafa þeir ekki fundið hér; en stærsla
sildin, sem hér liefir verið mæld (það var gert á
»Thor« við Norðurland), var 40 cm„ og er það meiri
stærð, en dæmi eru til um síld annarsstaðar.
Ýmsan annan fróðleik má fá viðvikjandi lííi síld-
arinnar úr þessum athugunum mínum, en eg læt
þetta nægja að svo stöddu. Eg ætla þó að bæta
því við, að það má nú lesa allmargt á einu hreist-
urblaði af síld. Eg fann t. d. dálítið af hreistri af
síld, er veiðzt hafði í Grindavík í byrjun ágúst 1910,
í hát, sem sildin var veidd á; sást það á hreistrinu,
að síkl þessi hafði verið vorgotin og 5—6 vetra og,
eftir aldrinum að dæma, hefir hún þá verið 30—33
cm. löng, enda sögðu menn þar, að það hefði verið
»stór millisí 1<1«, og stóð það nokkurn veginn heima«.
Að lokum skal eg minnasl stuttlega á hinar áð-
ur umgetnu rannsóknir Norðmanna á síld, er þeir
söfnuðu hér við land, á Patriksfirði, í Faxaflóa og
úti fyrir Norðurlandi sumurin 1908 og 1909. Þeir
höfðu til rannsóknar 1664 síldir, smásíld, miðlungs-
síld og stórsíld, og er skýrt frá árangrinum í um-
getnu riti, bls. 102—126. Þeir liafa eigi að eins fund-
ið aldur þeirra, heldur einnig reiknað út lcngd hverr-
ar síldar á hverju aldursári, gefið til kynna þyngd