Andvari - 01.01.1913, Page 207
Fiskisýningin
145
Noiðmenn sýndu, hvernig þeir skæru beitu á
handfæri á djúpfiskimiðum. Hún er skorin í langar
ræmur, og er neðri endinn inargklofinn og sýnisl i
sjónum líkt og angar á kolkrabba; beilan er skorin
úr flökum af smálúðum. Líklegt er að þetta sé
veiðnara en hafa beituna heila.
Margskonar tilbúin beila var sýnd, en aðallega
l'yrir silung og lax til skemtiveiða.
Auðvitað mætti skrifa um og lýsa mörgu fleira
lilheyrandi þessari deild, en það yrði alt of langt
mál, enda tók eg eftir fáu öðru, en liér er drepið á,
sem inér fanst ástæða til að ininnast á.
3. deild.
Útbúnaður íiskimanna, sérstaklega sjó-
fatnaður.
Matvælaútgeið skipa.
Litun, börkun og gegnsýring (Impreg-
nering) til viðhalds veiðarfærum.
Vélar, likön, teikningar o. fl. tilheyr-
andi þessari deild.
Mikið var sýnt af klæðnaði sjómanna, og vóru
víða mannamyndir úr vaxi í fullri stærð klæddar
sjómannafötum. Málti þar sjá danslta, norska, sænska,
islenzka og færeyiska sjómenn í ýmsum slellingum.
Flestir vóru þeir í olíufatnaði; þó var einn klæddur
blásleinslituðum sauðskinnsfötum íslenzkum, og virt-
usl þau alls ekki standa á baki þeim útlendu. Dönsk
olíuklæði fengu gullmedalíu, frá þeim Harrsen Schlier,
Kastrup Værk Amager; samt sem áður virtist mér
sænskur og norskur olíufatnaður eins góður. Sér-
staklega leizt iriér vel á föt frá Norrköpings Regn-
klader & Preseningsfabrik Aktiebolag. — Það er
Andvari XXXVIII.
8. flokkur:
9. flokkur:
10. flokkur:
11. flokkur:
10