Andvari - 01.01.1913, Page 200
Fiskisýningin í Kaupmannahöfn
sumarið 1912.
Eftir
Pórð Giunnarssoii í Höfða.
Þar sem eg er einn af þeim fáu íslendingum,
sem fór að sjá fiskiveiða og vélasýninguna í Kaup-
mannaliöfn á næstliðnu sumri, og hafði styrk til far-
arinnar úr landssjóði, finn eg mér skylt að skýra frá
því helzta, er fyrir mig bar þar. Frásögn mín verð-
ur því miður stutt og ófullkomin, sem orsakast með-
al annars af því, að eg hafði afar-nauman tíma á
sýningunni. Eg hafði ákveðið að fara með Thore-
félagsskipinu Ingólfi, er átti eftir áætlun að vera í
Kaupmannahöfn 4. ágúst, en varð svo mjög á eftir
tímanum, að hann kom þangað ekki fyr en sunnu-
daginn 18. ágúst, og hafði eg því að eins 6 daga til
að skoða og kynna mér alt, scm þar var að sjá. Og
mjög þótti mér leitt, að landar mínir, er sótt höfðu
sýninguna, voru komnir heim, því eg hafði hugsað
mér að fá ýmsar bendingar hjá þeim, er flýtt gætu
fyrir mér að velja úr það, er vert væri að skoða, og
þýðingu hefði fyrir fiskiveiðar okkar íslendinga, þar
sem þeir liöfðu liaft svo góðan tíma, og gátu borið