Andvari - 01.01.1913, Page 95
1911 og 1912.
33
um að gá vel að merkjum og senda mér þau, og
svo var eg sjálfur við merkingarnar á »Tlior« sum-
arið 1904 og 1905; einnig útvegaði eg Hansen skip-
stjóra pláss á botnvörpung 1909 til merkinga. Loks
hefi eg samið skýrslu um afdrif rannsóknanna að
nokkru ieyti (sjá síðar).
Merkingarnar byrjuðu á Skjálfanda og á Aust-
íjörðum 1903 og var þeim svo haldið áfram þar og
á Skagafirði og Eyjafirði 1904 og 1905. Var bæði
merkíur þorskur og skarkoli. Skýrslu um þessar
merkingar gaf Dr. Schmidt árið 19071). Svo var
merkingunum haldið áfram á báðum fiskategundun-
um á Skjálfanda, við Vestfirði og á Faxaflóa 1908
og á Faxailóa 1909. Þar sem merki frá þessum
merkingum liættu að koma í marz 1911, þá var á-
litið, að tími væri kominn til að birla skýrslu um
afdrif þeirra, ásamt skýrslu um þau merki frá eldri
merkingunuin, sem höfðu komið eftir að Schmidt
gaf sína skýrslu. Þessa skýrslu fól Schmidt mér að
sernja í sumar er leið, þar sem hann taldi mig mál-
efninu sérstaklega kunnugan, og er hún nú í prent-
un (á ensku)2).
Eg ætla nú að gefa mjög stutt yfirlit yfir þessar
merkingar og bæta svo við nokkrum hugleiðingum,
sem afdrif þeirra gefa tilefni til, en vísa um leið þeim,
sein meira vildu vita, í skýrslurnar, sem eg nefndi;
þær eru eða verða lil á Landsbókasafninu.
a. Skarlcoli. Árið 1903 voru merktir á Skjálf-
1) Mavking experiments on Plaice and Cod in Icelandic
AVaters. Meddelelser fra Kommissionen for Havundersögelser.
Serie: Fiskeri. Bd. II. Nr. 6, 1900.
2) Continued marking experiments on Plaice and Cod in
Icelandic Waters: Sama ritsafn, 1913
Andvari XXXVIII.
3