Andvari - 01.01.1913, Page 53
Björn Jónsson
XLVII
þingiskjörnir og ráðherra íslands oddamaður. Málið
var felt í neðri deild með rökstuddri dagskrá frá
Skúla Thoroddsen með 12 atkv. gegn 11.
Eg skal ekkert um það dæma, hvort málið hefir
komið til þingsins með þeim hætti, eða verið svo
tryggilegt, að von hefði verið eða æskilegt, að þingið
hefði samþykt það. Um það má vitanlega deila enn,
eins og deill var um það þá. En ómótmælanlega
sýnir sú barátta, sem B. J. hóf í því máli, í hverja
átt hann vildi beina sjálfstæðisbaráttunni, tafarlaust,
þegar hann var kominn að völdum. í raun og veru
vakti fyrir honum alveg það sama eins og nú vakir
fyrir mönnum um eimskipafélagið, sem verið er að
reyna að koma á fót: að íslendingar geti sjálfir ráðið
samgöngum sínum við önnur lönd. Nú eru menn
að eins orðnir það stórhugaðri en fyrir 4 árum, að
þeir hyggjast að koma upp eimskipafélagi án nokk-
urs bandalags við útlenda menn. Og svo stórhuga
hafa menn nú orðið langmest fyrir þá sök, að nú er
tiltölulega sæmilegur friður í landinu, þar sem því
var aftur á móti fyrir 4 árurn haldið í sífelduin loga
með fiokkaæsingum og blaðailldeilum.
Um ráðherra-athafnir B. J. ætla eg sem minst
að dæma að þessu sinni. Ætti að gera það hlut-
drægnislaust og með fullum rökum, þyrfti til þess
miklu meira rúm en Andvari getur veitt, enda ekki
tími til þess kominn. Þær voru sumar mikið deilu-
efni með þjóðinni. Og eg ætla ekki að gera þessa
ritgjörð að neinni deilugrein.
Langmestum ofsa olli bankamálið, afsetn-
ing Landsbankastjórnarinnar 1909 — sem
von var. Hvernig sem dómur sögunnar kann að
verða um það mál — dóm meirihluta rannsóknar-
Bankamálið.