Morgunblaðið - 29.10.2005, Side 64

Morgunblaðið - 29.10.2005, Side 64
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÞETTA ER EKKI BARA SPURNING UM GÆÐI... ... HELDUR MAGN LEIKHLÉ! ... ÞAÐ ER PADDA SEM ÞARF AÐ KOMAST YFIR VÖLLINN MAMMA, ÉG FÉKK HLUTVERK Í SKÓLALEIKRITI ÉG FÆ LÍKA AÐ SEGJA NOKKRAR LÍNUR EN FRÁBÆRT! ÞETTA ER MJÖG DRMATÍSKT LEIKRIT. ÁHORFENDUR MUNU GRÁTA HÁSTÖFUM ÁÐUR EN ÞAÐ VERÐUR HÁLFNAÐ HVAÐA LEIKRIT ER ÞETTA? „NÆRING OG FÆÐU FLOKKARNIR FJÓRIR“ OG ÉG LEIK LAUK BOLAR EIGA ÞAÐ TIL AÐ TAKA AF SÉR HRINGINN, ÞEGAR ÞEIR FARA Á BARI FYRIR EINHLEYPA VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ERT SVO GRÁÐUGUR? AF HVERJU LEGG ÉG LÍF MITT Í HÆTTU, VIÐ ÞAÐ AÐ RÆNA OG RUPLA. AF HVERJU?! AF HVERJU?! KRAKKANN VANTAR NOKKRA HLUTI FYRIR SUMARBÚÐIRNAR, SVO ÉG KOM VIÐ Í BÚÐ MÉR SEINKAR UM TVO TÍMA TVO TÍMA? SVO VIRÐIST SEM FLEIRI VANTI HLUTI FYRIR SUMARBÚÐIR SAMA HVERSU HRATT ÞÚ FLÝGUR... ... ÞÁ SLEPPURÐU EKKI FRÁ MÉR ÚFF! SVEFN ER NAUÐSYN Dagbók Í dag er laugardagur 29. október, 302. dagur ársins 2005 Víkverji brá sér íÞjóðleikhúsið í vikunni og sá nýjasta leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Hall- dór í Hollywood. Sýn- ingin var ágæt skemmtun en Víkverji hefði viljað sjá höfund- inn kafa aðeins dýpra í persónuna, þennan yf- irburðamann íslenskra bókmennta, og spyrja stærri spurninga um veru hans vestra, hvað knúði hann til far- arinnar og hvers vegna gekk rófan ekki? Þess í stað er einblínt á spjátr- ungsskap og hégóma hins unga og upprennandi afreksmanns og leik- húsgesturinn er í raun litlu nær um hvaða mann hann hafði að geyma á þessum mótunarárum. x x x Helsti kostur sýningarinnar er, aðdómi Víkverja, frammistaða að- alleikarans, Atla Rafns Sigurð- arsonar. Hann leikur skáldið á hóf- stilltum, útpældum nótum og vinnur leiksigur. Mörgum hefði hætt við of- leik en Atli forðast allar gildrur af fagmennsku og fumleysi. Víkverji hefur margoft séð Atla Rafn á leik- sviði og hann er tví- mælalaust vaxandi í sínu starfi. Á liðnu leik- ári fór hann á kostum sem hrottinn Kjartan í leikriti Hávars Sig- urjónssonar, Grjót- hörðum, eins ólíku hlutverki og hugsast getur. Gott ef hann fékk ekki Grímu- tilnefningu fyrir bragð- ið. Atli Rafn er án efa kominn í hóp okkar at- hyglisverðustu leikara af yngri kynslóðinni og gaman verður að fylgj- ast með næstu skref- um á ferli hans. x x x Víkverji hefur aldrei staðið á leik-sviði og engar líkur eru á því að hann leggi það á þjóðina úr þessu, að minnsta kosti ekki í burðarhlutverki. Hann á sér þó einn draum: Að koma fram sem statisti í leikriti í einu af at- vinnuleikhúsum þjóðarinnar. Helst myndi hann vilja ganga á ská yfir sviðið, t.d. stóra svið Þjóðleikhússins, í grænni Gefjunarúlpu og stinga við fæti á leiðinni. Þetta yrði að vera á óvæntu augnabliki í sýningunni. Ef svona hlutverk kemur upp mega menn hafa samband. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is               Textíllist | Hrafnhildur Sigurðardóttir veitti í fyrradag viðtöku norrænu textíllistaverðlaununum við hátíðlega athöfn í Borås í Svíþjóð, fyrst Íslend- inga. Það er Stiftelsen Fokus í Borås sem veitir verðlaunin sem talin eru þau virtustu á þessu sviði á Norðurlöndum. Verðlaunaféð nemur um tveimur milljónum íslenskra króna. Við sama tækifæri var opnuð sýning á verkum Hrafnhildar í Textilmuseet í Borås. Hrafnhildur heiðruð MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. (Lúk. 8,21.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.