Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 67
nættis. Gestasöngvari á laugardagskvöld er Herbert Guðmundsson. Mannfagnaður Borgfirðingafélagið í Reykjavík | Félagið efnir til afmælishófs á Hótel Sögu 19. nóv. Allir Borgfirðingar velkomnir. Miðasala í síma 822–5609 fyrir 1. nóv. Félagsvist, annar dagur í fjögurra daga keppni verður spiluð í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á morgun, kl. 14. Fréttir Geðhjálp | Stofnfundur aðstandendahóps Geðhjálpar verður haldinn sunnudaginn 30. október kl. 14, í húsnæði samtakanna á Túngötu 12 í Reykjavík. Yfirskrift fundarins er Fram í dagsljósið. Meginmarkmið hóps- ins er að berjast fyrir því að þeir sem þjást af geðsjúkdómum og aðstandendur þeirra njóti sömu mannréttinda og virðingar og aðrir í samfélaginu. Kvennaskólinn | Kynningarfundur fyrir unglinga sem áhuga hafa á borgaralegri fermingu og aðstandendur þeirra verður kl. 11–12, í Kvennaskólanum, Fríkirkjuvegi 9 nýbyggingu, 1. hæð. Næsta fermingar- námskeið Siðmenntar verður kynnt og gerð grein fyrir væntanlegri athöfn. Kvikmyndasafn Íslands | Kvikmyndin Árshátíð slökkviliðsmanna eftir Milos For- man. Fyrsta af þremur kvikmyndum sem Friðrik Þór Friðriksson hefur valið á vetrar- dagskrá safnsins. Sýningin fer fram í Bæjarbíói kl. 16. Sjá www.kvikmyndasafn.is OA-samtökin | OA fundur fyrir matarfíkla kl. 11.30 – 12.45, í Gula húsinu Tjarnargötu 20. Nýliðamóttaka kl. 11. Fyrirlestrar Sagnfræðistofnun HÍ | Árlegur minning- arfyrirlestur Jóns Sigurðssonar. Fyrirlesari er brasilíski sagnfræðingurinn Patricia Boulhosa. „Gamli sáttmáli: Fact or fabri- caton“. Fyrirlesturinn verður fluttur í Öskju, N-132 kl. 15. Café Rosenberg | Tilfinningatorg verður á Café Rosenberg 30. okt. kl. 16. Guðfinna Svavarsdóttir heldur fyrirlestur: Það fer meiri orka í að bæla tilfinningar heldur en að tjá þær og einnig svokallaða ölduvinnu, þar sem gengið er útfrá því að tilfinningar hagi sér einsog öldur. Elísabet Jökulsdóttir tekur á móti gestum. Gigtarfélag Íslands | Áhugahópur GÍ um vefjagigt heldur fræðslufund 3. nóv., kl. 19.30 í húsnæði GÍ, Ármúla 5, 2. hæð. Sól- veig Hlöðversdóttir og Hulda Jeppesen sjúkraþjálfarar á Gigtarlækningastöð GÍ fræða um hvernig best sé að koma sér af stað í þjálfun og ekki gefast upp. Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Kristinn R. Þórisson flytur fyrirlestur er nefnist: Vél- vitund, meðvitund og sjálfsvitund í kjöt- vélum og vélmennum, en þar mun Kristinn greina frá nokkrum hugmyndum manna um meðvitundina út frá sjónarhóli gervi- greindarinnar og leitast við að sýna fram á hvernig hægt er að skapa meðvitund í vél- menni. Fyrirlesturinn er kl. 14–15. Málþing Lögberg HÍ | Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun HÍ efna til málþings í minningu Björns Guðfinnssonar málfræð- ings en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Fluttir verða fyrirlestrar sem tengj- ast starfi Björns, námsefni í málfræði, mál- lýskum, málvöndun o.fl. Málþingið fer fram kl. 10–16.30. Dagskrá á vefslóð: http:// imf.hi.is/. Námskeið Mímir – símenntun ehf | Námskeið um Sölku Völku eftir Halldór Laxness hefst 1. nóv. kl. 20-22 og verður á þriðjudögum í 4 vikur. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Borgarleikhúsið. Fyrirlesarar verða Halldór Guðmundsson, Silja Aðalsteinsd., Hrafn- hildur Hagalín Guðmundsd. og Edda Heið- rún Backman. Skráning í s. 580 1800 eða á mimir.is. Ráðstefnur Þjóðminjasafn Íslands | Vísindafélag Ís- lendinga og Þjóðminjasafn Íslands gangast fyrir ráðstefnu um jarð– og landfræðinginn Þorvald Thoroddsen (1855–1921). Fjallað verður um ævi hans og rannsóknir. Sýndir verða munir úr minjasafni Þorvalds í Þjóð- minjasafni Íslands. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fer fram 29. okt. kl. 13.30–17. Íþróttir Víkingur | Unglingameistaramótið í kumite (frjálsum bardaga) verður haldið í íþrótta- húsinu í Víkinni, 30. október kl. 10 og lýkur um kl. 14. Útivist Laugardalurinn | Námskeið fyrir byrjendur í Stafgöngu hefst 1. nóvember kl. 17.30, gengið er á þriðju– og fimmtudögum. Skráning og upplýsingar á www.stafganga- .is eða í símum 6168595/6943571. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 67 DAGBÓK Félagsstarf Barðstrendingafélagið | Félagsvist og dans í Breiðfirðingabúð í kvöld kl. 20.30. Dalbraut 18 – 20 | Tónlistarmaður- inn Björgvin Þ. Valdimarsson kemur í heimsókn kl. 10. Tungubrjótarnir verða gestir í síðdegiskaffinu n.k. föstudag kl. 15. Skráning hafin á Hall- dór í Hollywood. Fastir liðir. Uppl. í síma 588–9533. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Aðventuferð eldri borgara til Kaupmannahafnar. Síðustu forvöð eru nú að skrá sig í ferð 4.–7. desem- ber á vegum Emils Guðmundssonar og Félaga eldri borgara í Kópavogi og Selfossi. Skráning og nánari upplýs- ingar eru hjá félagsmiðstöðvunum. Einnig hjá Kolbeini Inga s: 482– 2002/697–8855 eða Þráni s: 554– 0999. Greiða þarf ferðina fyrir 4. nóvember. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur 30. okt. kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi. Árshátíð FEB verð- ur haldin 4. nóv. n.k. í Akogessalnum, Sóltúni 3, fjölbreytt dagsskrá: Veislu- stjóri Árni Norðfjörð, hátíðarræðu flytur Guðrún Ásmundsdóttir, dans- sýning, söngur o.fl. Skráning og uppl. á skrifstofu FEB s. 588–2111. Félagsstarf Gerðubergs | Opin list- munasýning Einars Árnasonar ,,Hjá- verk í amstri daga“ kl. 13–16. 2. nóv. kl. 14 verður kynning á nýju leiðakerfi Strætó, umsjón Björk Vilhelmsdóttir og Ásgeir Eiríksson. Fimmtud. leik- húsferð í Borgarleikhúsið ,,Lífsins tré“, skráning hafin á staðnum og s. 5757720. Hraunsel | Dansleikir á föstudögum, tvisvar í mánuði fram að áramótum. Ef undirtektir verða góðar þá verður því haldið áfram eftir áramótin. Sex dansleikir eru því framundan og munu hljómsveitirnar Caprí-trío, Sig- hvatur Sveinsson, „Hrókur alls fagn- aðar“ og Tríó Guðmundar Stein- grímssonar, leika tvisvar sinnum hver. Hæðargarður 31 | Út í bláinn kl. 10. Tölvunámskeið kl. 13. Uppl. í síma 568–3132. Félagsstarfið er öllum opið. Kirkjustarf Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund kl. 20. www.gospel.is. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is AFMÆLISSÝNING Torfa Jóns- sonar, myndlistar- og leturgerð- armanns, verður opnuð í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 15.00. Torfi hefur starfað sem bóka- hönnuður bæði hér heima og í Nor- egi. Sl. 13 ár hefur hann kennt kal- ligrafiu (leturgerð) á námskeiðum í Þýskalandi. Torfi hefur tekið þátt í fjölda sýn- inga bæði hérlendis og erlendis. Greinar um listaskrift hans hafa birst í erlendum ritum. Sýningin í Listasal Mosfellsbæjar er í tilefni 70 ára afmælis lista- mannsins. Hann er tengdur Mos- fellssveit frá 5 ára aldri, dvaldist þar sem barn að sumarlagi og settist síð- ar þar að um tíma. Á sýningunni sýnir hann vatns- litamyndir frá ýmsum tímum, blý- ants- og pennateikningar og kalli- grafíu. Afmælissýning Torfa Jónssonar SIGRÍÐUR Ágústsdóttir opnar í dag sýningu í Jónas Viðar Gallery, Listagilinu, Akureyri. Sigríður stundaði nám í leirlist í listaskólum í Frakklandi og Eng- landi á áttunda áratugnum. Hún hef- ur tekið þátt í sýningum víða, svo sem Noregi, Finnlandi, Danmörku, Belgíu, Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Póllandi, Egyptalandi og Bandaríkj- unum auk margra sýninga á Íslandi. Sigríður hefur verið búsett á Akureyri undanfarin sex ár og rekur vinnustofu ásamt fleiri myndlistar- konum í Kaupvangsstræti 10 í Lista- gilinu. Sýningin mun standa til sunnu- dagsins 13. nóvember. Opið er um helgar frá kl. 13–17 og eftir sam- komulagi í síma 895 8825. Sigríður sýnir hjá Jónasi Viðar VOVKA Stefán Ashkenazy og Vassilis Tsabropoulos leika rúss- neska tónlist fyrir tvö píanó í Tí- brárröð Salarins í dag kl. 16. Sal- urinn í Kópavogi státar af því að eiga tvo konsertflygla af bestu gerð og munu þessir tveir pían- istar taka þá til kostanna. Vovka Stefán lék fyrst á Tíbrártónleikum 1. nóvember 2002 og kemur nú öðru sinni og með honum margverðlaunaður grískur píanóleikari, Vassilis Tsabropoulos. Á efnisskránni eru fjögur verk rússneskra öndveg- istónskálda. Fantasía Scriabins er hugljúf tónsmíð, samin snemma á ferli hans. Svíta Rachmaninoffs op. 17 er líka verk ungs manns, en dansarnir op. 45 hans síðasta stórvirki. Vorblót Stravinskys olli uppþotum og ókyrrð þegar það var frumflutt í París 1913. Sinfón- ísku dansarnir og Vorblótið eru hvorutveggja stór hljómsveitar- verk, en njóta sín líka í þeim bún- ingi sem höfundar þeirra gerðu fyrir tvö píanó. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rússnesk tónlist fyrir tvö píanó BJÖRG Eiríksdóttir opnar sýn- inguna „Inni“ í sal Svartfugls og hvítspóa í dag klukkan 14. Sýningin stendur til og með 13. nóvember og verður opin alla daga frá 13–17. Þetta er önnur einkasýning Bjargar og önnur sýningin sem fer fram í nýjum, fallegum sal Svart- fugls og hvítspóa sem rekinn er af listakonunum Sveinbjörgu Hall- grímsdóttur og Önnu Gunnars- dóttur. Hann er í bakhúsi við Brekkugötu 3a rétt við Ráðhústorg á Akureyri. Í fjölda ára rak Svein- björg Svartfugl í Listagili ásamt fleiri listamönnum. Björg hefur tek- ið þátt í nokkrum samsýningum og aðallega notað málverk og textíl sem miðil. Á sýningunni að þessu sinni verða málverk og ljósmyndir. Björg sýnir á Akureyri Fréttasíminn 904 1100 Drepfyndinn og rómantískur gamanleikur. Ertu nokkurn tímann alveg viss? Miðasala: 4 600 200 / www.leikfelag.is Fim 27.okt kl. 20 UPPSELT Fös 28. okt kl. 20 UPPSELT Lau 29. okt. kl. 20 UPPSELT Sun 30. okt. kl. 20 AUKASÝN.UPPSELT Fös 4. nóv. kl. 20 UPPSELT Lau 5. nóv kl. 20 UPPSELT Lau 5. nóv. kl. 23.30 AUKASÝN.örfá sæti laus Sun 6. nóv. kl. 20 AUKASÝN.í sölu núna Lau 12. nóv. kl. 21. UPPSELT Fös 18.nóv kl. 20 örfá sæti laus Lau 19. nóv kl. 19 örfá sæti laus Lau 19. nóv kl. 22 örfá sæti laus Sun 20. nóv kl. 20 UPPSELT “hættulega fyndið” - “hröð og þétt” - “fólk æpti í lokin” - “meistaralegt” - “aðra eins snilld hef ég ekki séð í langan tíma” Tryggðu þér miða í tíma! Takmarkaður sýningartími! Miðasala opin 13-17 og allan sólarhringinn á netinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.