Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.10.2005, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Örn Einarssonfæddist í Reykjavík 31. des- ember 1947. Hann lést af slysförum hinn 20. október síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Kristínar Þ. Otte- sen og Einars Sig- urðssonar. Systir Arnar er Þorbjörg, gift Páli Þórðarsyni og eiga þau þrjár dætur, þau eru bú- sett í Reykjavík. Örn hóf 1968 sambúð með Sig- ríði Númadóttur, f. 30. janúar 1948, á Miðgarði í Stafholtstung- um. Foreldar Sigríðar voru Númi Þorbergsson og Marta María Þorbjarnardóttir. Börn Arnar og Sigríðar eru: 1) Guðrún, f. 28.6. 1968, dóttir hennar er Sara Böðvarsdóttir, f. 29.11. 1994. 2) Þórdís, f. 15.3. 1976, maki Sig- urþór Kristjánsson, dóttir þeirra er Sif, f. 13.8. 1997. 3) Einar Örn, f. 21.8. 1980, maki Dagmar Mýr- dal Harðardóttir, sonur þeirra er Örn, f. 26.4. 2005. 4) Sigríður, f. 4.10. 1983, maki Davíð Sigurðsson, sonur þeirra er Kristófer Daði, f. 6.4. 2004. Örn ólst upp hjá foreldrum sínum að Miðgarði. Örn og Sigríður hófu bú- skap að Miðgarði 1968. Örn stundaði sjómennsku tíma- bundið með bú- skapnum. Örn og Sigríður hættu fjárbúskap haustið 1999 og hóf Örn sjálfstæðan rekstur sem girðingarverktaki vorið 2000 og stundaði það til hinsta dags. Örn tók virkan þátt í sveitastjórnarmálum og var lið- tækur bridge spilari. Örn var alla sína tíð mikill hestamaður og hafði það markmið í ræktun sinni að rækta hinn fullkomna reiðhest, öskuviljugan, taumlétt- an, þýðgengan töltara og rúman á skeiði. Útför Arnar fer fram frá Reykholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi minn. Aldrei bjóst ég við því að þú yrðir tekinn svona snemma og snögglega frá okkur. En þó hefði ég aldrei viljað breyta neinu í sambandi við stundir okkar saman. Lífið verður mjög erfitt án þín en við verðum bara að vera sterk og halda áfram. Eins og þú sagðir alltaf, „þetta er bara búið og gert og það verður bara að hafa það“. Við áttum óteljandi góðar stundir saman og oft var mikið hleg- ið og gert grín. Manstu hvað við hlógum mikið þegar við Davíð vor- um að gefa í lambahúsinu og Davíð datt í gegnum jötugólfið, ég nánast hljóp heim til að segja þér þetta og við hlógum þangað til tárin runnu niður kinnarnar. Ég veit að þessi saga er ekki viðeigandi en ég man þegar við vorum í Kaupfélaginu og Númi afi var nýdáinn og það kom maður til okkar og sagðist sam- hryggjast okkur, nema hvað að þú varst eitthvað annars hugar og sagðir hátt og snjallt, „þakka þér kærlega fyrir og sömuleiðis“. Ég man að ég átti mjög erfitt með að halda andlitinu þangað til að við vor- um komin út, þá fórstu að tala um hvað maðurinn var skrítinn á svip- inn og hvað hann hlyti að hafa tekið dauða Núma afa nærri sér. Ég sagði þér hvernig þú hafðir svarað honum og við hlógum nánast alla leiðina heim. Þessar sögur eru bara brota- brot af öllum okkar góðu stund- um,og langt frá því að vera þær fyndnustu. Við hlógum svo mikið saman, varla leið sá dagur að við náðum ekki eitthvað að grínast sam- an. Við riðum nú mikið út saman, pabbi minn, og þú kenndir mér allt sem ég kann í sambandi við hesta. Ég mun alltaf bera mikla virðingu fyrir þér elsku pabbi og ég mun allt- af virða þínar skoðanir. Ég mun sakna þín svo mikið og það mun vera mjög erfitt að geta ekki leitað til þín með vandræðin, eins og þegar ég fékk ekki inni í skólanum í haust og þú keyrðir bara út á Akranes og talaðir við skólastjórann og komst svo til mín í apótekið og sagðir mér að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af skólanum meir, það væri búið að redda þessu. Svona varstu pabbi minn, þú gerðir allt fyrir mig og stóðst alltaf við bakið á mér. Núna skaltu ríða út, hafa gaman og spila bridge í himnaríki þangað til að ég kem, við hittumst aftur og förum í skeiðkeppni, hlæjum og höf- um gaman. Kveðja Sigríður Arnardóttir. Jæja, pabbi gamli, hér skiljast leiðir. Ég er svo þakklátur fyrir sumrin sem við höfum eytt saman síðastliðin fjögur ár. Það var svolítið merkilegt með okkur að við vorum yfirleitt aldrei sammála um hvernig best væri að gera hlutina í upphafi verks, en þegar á leið enduðum við alltaf á sömu línu og gilti þá einu hvor okkar hafði haft rétt fyrir sér í upphafi. Við áttum líka margar góð- ar stundir upp á Arnarvatnsheiði í girðingatúrunum og þó svo ekki færi nú mikið fyrir hestaáhuganum hjá mér kom það ekki að sök. Ég er mjög þakklátur fyrir að þú náðir að kynnast nafna þínum, hann líkist þér meira og meira með hverj- um deginum sem líður, sú stund kemur að hann spyr um afa sinn og þá mun ekki skorta sögurnar af þér. Ég vona að þér líði vel hvar sem þú ert og ég veit að þú vakir yfir okkur. Þú skilur eftir þig stórt skarð í lífi okkar allra, skarð sem aldrei verður hægt að fylla í, það er sagt að tíminn lækni öll sár en ég veit að ég mun aldrei gleyma þér, pabbi minn. Einar Örn Arnarson. Ég trúði þessu ekki þegar Sigga hringdi í mig og sagði mér að þú værir farinn. Þá fór ég að rifja upp stundirnar sem við áttum saman. Ég gleymi því aldrei þegar ég hitti þig fyrst á Geirmundarballi í Borg- arnesi og þú sagðir að þér litist bara vel á mig vegna þess að ég var ekki hærri en þú. Ég man líka síðustu stundina sem við áttum saman þegar við vorum í skúrnum að ganga frá kjötinu, sú stund er mér afar kær og er ég mjög þakklát fyrir hana. Ekki hefði mig grunað að það yrði í síðasta skipti sem ég myndi sjá þig. Alltaf gat maður leitað til þín ef mann vantaði ráð eða hjálp. Örn, ég kveð þig með mikilli sorg í hjarta og miklum söknuði en eins- og sagt er þeir deyja ungir sem guð- irnir elska. Dagmar Mýrdal Harðardóttir. „Ertu komin tuðran þín.“ Þetta var venjulega það fyrsta sem þú sagðir við mig þegar ég kom inn um dyrnar í Miðgarði og skipti þá engu hvort ég var bara barn eða langt komin á þrítugsaldurinn. Þú sast inni í eldhúsi, með neftóbaks- baukinn í annarri hendinni, vasa- klútinn í hinni og tuggðir á þér vör- ina á meðan þú spurðir frétta að sunnan. Allt frá því ég var krakki og vel fram á fullorðinsár var ég þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að koma í Miðgarð til ykkar Siggu um leið og sauðburður byrjaði á vorin. Hjá ykkur dvaldi ég svo í góðu yfirlæti fram á haust, ásamt því að koma til ykkar öll páskafrí og áramót. Þetta var alveg frábær tími og flestar æskuminningar mínar tengjast þér og Miðgarði á einn eða annan hátt. Ég man að einu sinni fórum við Þórdís með þér að Kaðalsstöðum og á meðan þú spjallaðir við Steina heitinn, klifruðum við og lékum okk- ur á hestakerrunni á hlaðinu. Svo datt Þórdís á beislið á kerrunni og fékk gat á hausinn. Þú hlóst alltaf jafn mikið að því þegar þú varst að segja okkur frá þessu, hvað ég grét hátt og mikið þegar þetta gerðist, því til þess að þú kæmist með Þór- dísi til læknis í Borgarnesi, varðstu fyrst að fara með mig heim í Mið- garð. Þú varst yfirleitt alltaf í góðu skapi, gerðir grín og gast séð spaugilegu hliðarnar á hlutunum en þú áttir það nú líka til að bölva hressilega ef hlutirnir gengu ekki alveg eins fyrir sig og þeir áttu að gera að þínu mati. Ég sagði þér oft að þú værir uppáhalds frændi minn og þú verð- ur það um ókomin ár, þótt mér hafi samt oftar fundist ég vera eins og eitt af börnunum frekar en litla frænka þín. Söknuðurinn er sár, en minning- arnar margar og mun ég geyma þær í hjarta mínu á meðan ég lifi. Ég kveð þig, elsku Öddi minn, með þessum línum úr Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. þín, Arna. Í æskuminningu okkar systranna var bara til ein sveit og þar bjuggu Öddi frændi, Sigga, afi og frænd- systkini okkar. Í sveitinni var oftast líf og fjör og þó sérstaklega í kring- um heyskap og réttir en það þótti okkur skemmtilegasti tími ársins. Við sviplegt fráfall Ödda gerir mað- ur sér grein fyrir hvað lífið er hverf- ult og erfitt er að koma hugsunum á blað. Við viljum minnast glaðbeitts manns sem gat auðveldlega séð spaugilegar hliðar á ýmsum málefn- um og rekið upp hrossahlátur af minnsta tilefni. Öddi var einstakt góðmenni og alltaf tilbúinn að að- stoða þá sem þess þurftu. Hann las mikið, var vinnuþjarkur, mikill mat- maður og listakokkur. Okkur systr- um þótti til dæmis merkilegt að karlmaður gæti gert svona góðar sósur og hann kunni meira að segja að gera karamellur sem á okkar mælikvarða var sko toppurinn. Undanfarin ár hefur ferðum okk- ar í sveitina fækkað og samskiptin að sama skapi minnkað. Þrátt fyrir það mun Öddi frændi alltaf eiga sér- stakan sess í huga okkar og við kveðjum hann með söknuði. Því senn er árið á enda runnið. Og ótalmargs er að sakna. Liðin augnablik aldrei framar af eilífðarsvefninum vakna. Þau hurfu sum eins og hvítir svanir með hljóðnandi söng í geiminn. En skugginn og bergmálið eitt varð eftir af öllu, sem kvaddi heiminn. (Þorsteinn Valdimarsson.) Sigrún og Kristín. Í minningu vinar og frænda. Sem ungur drengur átti ég því láni að fagna að hafa sveitavist hjá frænku minni, Kristínu, og Einari í Miðgarði á árunum 1963–1966. Vist- in í Miðgarði var góður skóli fyrir ungan dreng og í dag bý ég vel að þeirri reynslu. Í Miðgarði var mér treyst til ábyrgðarstarfa og hlaut ég að launum bæði hvatningu og lof auk þess að fá ótrúlega gott að borða. Í sveitinni breyttist matvand- ur strákur af mölinni í pattaralegan ungling á skömmum tíma. Obba og Öddi, frændsystkini mín í Miðgarði, tóku mér vel og Örn frændi kenndi mér að veiða á stöng, umgangast hesta og pínulítið að rífa kjaft. Minnisstæðir eru mér reiðtúr- ar á hestamannamót í Faxaborg þar sem sungnar voru hestavísur af hjartans lyst. Í fallegri sveit var Norðurá sundriðin og klárarnir tóku á skeið á árbökkunum. Öddi var bæði skemmtilegur og yndislega stríðinn og þrátt fyrir aldursmun á okkur frændunum reyndist hann mér góður vinur. Hann tók mig með norður yfir heiðar í skemmtiferð með ungmennafélaginu þar sem tjaldað var og gist í Vaglaskógi. Lengi var þessi ferð í minnum höfð hjá okkur frændunum. Örn var mik- ill áhugamaður um hesta og góður reiðmaður. Hann var laginn við tamningar og unun að sjá hann um- gangast hestana. Það er eftirsjá í góðum dreng, kæri frændi og vinur, þakka þér vinskap þinn og góðar stundir. Kristín frænka, Einar, Sigríður og börn, ykkur sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Ísleifur Ottesen. Hann Örn vinur minn er látinn. Ég bara trúi þessu ekki, sagði ég við konuna mína þegar hún hringdi í mig og sagði mér að Örn, minn góði vinur frá barnæsku, væri látinn. Maður í blóma lífsins hrifinn á brott frá fjölskyldu og vinum. Mikill samgangur var alltaf á milli Miðgarðs og Bakkakots. Oft gistum við hvor hjá öðrum þegar við vorum litlir og þá var margt brallað. Örn var virkur í félagsmálum, var lengi í Ungmennafélagi Stafholts- tungna og aðalhvatamaður að stofn- un Björgunarsveitarinnar Heiðars. Við vorum mörg ár spilafélagar í Bridsfélagi Borgarfjarðar og saman unnum við marga sæta sigra. Löngum stundum gátum við setið saman eftir spilakvöldin og flett spilum fram og aftur og spáð í sagn- irnar. Ég mun alltaf muna síðasta spilið sem við spiluðum saman þegar við settum í 7 lauf á örfáum sek- úndum. Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á, í víðáttu stórborgarinnar. En dagarnir æða mér óðfluga frá og árin án vitundar minnar. Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk, að dáinn sé vinurinn kæri. Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk, að í grenndinni ennþá hann væri. Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd, gleymd ekki hvað sem á dynur, að albesta sending af himnum send, er sannur og einlægur vinur. (Höf.ók.) Elsku Sigga og fjölskylda. Góður eiginmaður, faðir og afi er fallinn frá. Hans verður sárt saknað. Við Kata biðjum góðan Guð að gefa ykk- ur styrk í sorginni. Guð blessi ykk- ur. Kristján F. Axelsson. Æskuvinur minn og nágranni, Örn Einarsson, er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Er ég sest hér nið- ur, til að skrifa nokkur fátækleg minningarorð, hellast yfir mig minn- ingar frá liðinni tíð. Eitt af sameiginlegum áhugamál- um okkar var hestamennska og voru ófáar stundirnar sem við sátum og töluðum um hross og hrossa- rækt. Við vorum ekki alltaf sammála en virtum skoðanir hvor annars. Fyrir nokkrum árum fórum við saman á námskeið í gæðingadómum og störfuðum við það í nokkur ár. Eftir að því lauk, gerðumst við öfl- ugir brekkudómarar svo eftir var tekið. Örn hafði yndi af lestri góðra bóka og kunni að segja skemmtilega frá, hvort sem um bundið eða óbundið mál var um að ræða. Ein- staklega bóngóður var hann og var alltaf mættur ef á þurfti að halda og vílaði ekki hlutina fyrir sér. Hann undi sér einna best ríðandi út í nátt- úrunni og var Arnavatnsheiðin hon- um einkar hugleikin, en þar sá hann um viðhald girðinga til margra ára. Hann var virkur í félagsmálum, spil- aði bridge og hafði mikinn áhuga á pólitík. Örn var góður heim að sækja og tóku þau Sigga alltaf höfð- inglega á móti ef gest bar að garði. Elsku Sigga, Gunna, Þórdís, Ein- ar Örn, Sigríður, tengdabörn, barnabörn, foreldrar og aðrir að- standendur, við Kristín og fjölskyld- ur okkar, sendum ykkur okkar dýpstu samúð og megi góður Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Jóhannes, Stafholtsveggjum. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum.) Það var dimmur dagur þegar við fengum fréttirnar að hann Örn væri dáinn. Örn var hörkumaður og átti ég síst von á því að hann yrði tekinn frá okkur svo snemma. Ég hugsa til baka og minningarnar eru margar. T.d. Þegar Örn setti mig á merina sína bara til að leyfa mér að finna hve frábær tilfinning það er að sitja á harða skeiði, þetta er eins og að fljúga sagði hann, og að sjálfsögðu var það rétt. Og sumarið þegar við Þórdís vorum í Miðgarði, þá var mikið riðið út. Þá var einnig smíð- aður heitur pottur, þar sem ýmis- legt var rætt og sagðar sögur af hinu og þessu. Og berjaferðirnar vestur á firði þar sem Örn týndi 50 lítra meðan við hin böggluðumst með einhverja 10 lítra, að sjálfsögðu voru þetta allt aðalbláber, því þú vildir ekkert annað. Sérstaklega er mér ofarlega í minni þegar við kom- um öll saman um jólin síðustu til að mála nýja hesthúsið þar sem Erni leið einna best með öpunum sínum. Það er margs að minnast og spurn- ingarnar eru margar og endalaust hægt að rifja upp góðar minningar. Það var gott að fá að kynnast þér, Örn, og þér fylgir mikill söknuður. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Sigurþór Kristjánsson. Örn er dáinn. Samfélagið sem hann lifði í er harmi lostið. Erni kynntist ég í gegnum pólitík- ina. Hann var einn af þeim mönnum sem gerði það þess virði að vasast í þeim málum og á ég honum margt að þakka af þeim vettvangi. Hann var litríkur og skemmtilegur kar- akter. Góður maður. Mér er mjög minnisstæður reið- túr sem ég fór í með Erni og Flemming vini hans um Stafholt- stungurnar. Þar var Örn sem kóng- ur í ríki sínu og stoltið var ósvikið þegar hann gekk með mig uppá hól einn nálægt Miðgarði þar sem út- sýnið um Borgarfjörðinn var stór- fenglegt. Þessa minningu mun ég ávallt geyma. Við fráfall Arnar er samfélagið okkar fátækara. Mestur er vitaskuld missir fjölskyldunnar; eiginkonu, barna og þeirra fjölskyldna og for- eldra Arnar. Ykkur öllum votta ég mína dýpstu samúð. Erni votta ég virðingu mína og þakka samfylgd- ina. Hólmfríður Sveinsdóttir. Það var að vorlagi fyrir rúmum þremur árum að ég kynntist Erni Einarssyni. Örn var þá bæjarfulltrúi í Borgarbyggð, hafði tekið þátt í stofnun Borgarbyggðarlistans fjór- um árum áður og nú var komið að mér að boða fagnaðarerindið á þeim vettvangi. Örn hugðist draga sig í hlé. Þetta var um margt eftirminni- legur tími. Í raun er þetta algjörlega ógleymanlegt. Örn varð kosninga- stjóri fyrrnefnds framboðs, hann leiddi mig gegnum kosningar til sveitarstjórnar hér í Borgarbyggð í kosningabaráttu sem fór í handa- skolum. Þar var hinsvegar ekki við Örn að sakast, það eina sem ekki fór úrskeiðis var sennilega þegar upp var staðið valið á kosningastjóran- um. Kosningar sem í kjölfarið fylgdu fóru sömu leið, í vaskinn. En allt um það hélt veröldin braut sinni á leið um víddir alheimsins og vinur minn Örn brosti í kampinn! Hann var vaskur maður, hafði hljómmikla rödd og var létt um hlátur, sagði gamansögur og gaf heilræði sem ÖRN EINARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.