Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 43 UMRÆÐAN HINN 24. október sl. var kvennafrídagurinn endurvakinn en þá voru 30 ár liðin frá því konur tóku sér frí og söfnuðust saman á baráttufundi á Lækj- artorgi. Konur voru hvattar til að leggja niður störf kl. 14.08 en þá hafa þær unnið fyrir launum sínum, ef litið er til þess að at- vinnutekjur kvenna eru 64,15% af at- vinnutekjum karla. Markmið fundarins nú voru þau sömu og fyr- ir 30 árum að sýna fram á verðmæti vinnuframlags kvenna fyrir íslenskt atvinnulíf. Skemmst er frá því að segja að þátttakan sl. mánudag fór fram úr björtustu vonum og er mikilvægur vitnisburður um samtakamátt kvenna. Samstaða kvenna á kvennafrídeginum fyrir 30 árum hafði mikil og góð áhrif á jafnrétt- isbaráttuna og það er alveg ljóst að margt hefur áunnist á þeim 30 árum sem liðin eru frá fyrsta kvennafrídeginum, konur láta til sín taka á öllum sviðum mannlífs- ins og jafnræði innan veggja heim- ilanna er miklu meira en það var fyrir 30 árum. Þrátt fyrir að margt hafi breyst til batnaðar varðandi stöðu kynj- anna er enn töluvert í land að konur njóti fulls jafnréttis á við karla. Kynbundinn launamunur mælist enn töluverður og er það óþolandi ástand að konur og karlar skuli enn ekki fá greidd sömu laun fyrir jafnverðmæt og sam- bærileg störf líkt og jafnréttislöggjöfin kveður á um. Launmisrétti er ekki einkamál þeirra einstaklinga sem fyrir því verða heldur verður samfélagið í heild sinni að taka á þessu meini. Í því sambandi er mikilvægt að at- vinnurekendur setji sér skýr mark- mið og leiðir til að uppræta kyn- bundinn launamun á vinnustöðum. Árið 2001 lét jafnréttisnefnd Hafn- arfjarðarbæjar vinna fyrir sig könnun á launum karla og kvenna sem starfa hjá Hafnarfjarðarbæ. Niðurstöður þeirrar könnunar sýndu kynbundinn launamun á heildarlaunum starfsmanna, án kennara, upp á 12,3%. Frá þeim tíma hefur verið unnið að því að uppræta kynbundinn launamun og þá einkum með innleiðingu starfs- mats vegna flestra starfa hjá bæn- um. Óformlegar launakannanir inn- an Hafnarfjarðarbæjar á síðustu misserum gefa þó ákveðna vís- bendingu um að enn sé óútskýrður launamunur á milli kynjanna hjá Hafnarfjarðarbæ. Af þeirri ástæðu ákvað bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 25. október sl. að koma á fót starfshópi sem er ætlað það hlutverk að fara kerfisbundið í gegnum launakerfi bæjarins til að kanna hvort þar sé að finna kyn- bundinn launamun vegna sambæri- legra starfa og ef um slíkt er að ræða að leggja fram tillögur um leiðir til að útrýma þeim mun. Starfshópurinn skal skila grein- argerð og tillögum fyrir lok árs 2005. Bæjarstjórnin samþykkti jafnframt að unnin skyldi önnur heildstæð launakönnun á meðal starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar á árinu 2006. Það er von mín að með þessum aðgerðum náum við að vinna endanlega bug á kynbundn- um launamun hjá Hafnarfjarðarbæ á næstu misserum. Útrýmum kynbundnum launamun Lúðvík Geirsson skrifar um að- gerðir til að uppræta launamun kynjanna hjá starfsfólki Hafn- arfjarðarbæjar ’Það er von mín að meðþessum aðgerðum náum við að vinna endanlega bug á kynbundnum launamun hjá Hafn- arfjarðarbæ.‘ Lúðvík Geirsson Höfundur er bæjarstjóri í Hafnarfirði. Eggert B. Ólafsson: Vegagerðin hafnar hagstæðasta tilboði í flug- vallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru sam- an fjórir valkostir fyrir nýjan inn- anlandsflugvöll. Jónína Benediktsdóttir: Sem dæmi um kaldrifjaðan siðblindan mann fyrri tíma má nefna Rocke- feller sem Hare telur einn spillt- asta mógúl spilltustu tíma... Prófkjörsgreinar á mbl.is www.mbl.is/profkjor PRÓFKJÖR Gísli Freyr Valdorsson styður Kjartan Magnússon í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Leifur Helgason og Viðar Hall- dórsson styðja Jón Kr. Óskarsson í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Heimir L. Fjeldsted styður Kjartan Magnússon í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Sturlaugur Þor- steinsson styður Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.