Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 11 FRÉTTIR Komdu í kaffi í kosningamiðstöð Kjartans! Kosningamiðstöð Kjartans Magnússonar borgarfulltrúa er í Síðumúla 13. Það eru allir velkomnir í kaffi og meðlæti milli kl. 13.00 og 18.00 í dag og á sunnudag. Það skiptir máli hverjir veljast í borgarstjórn og það gefst gott tækifæri til þess að kynnast Kjartani og stefnumálum hans yfir kaffitári. Barnahornið er svo sívinsælt hjá ungviðinu. Kosningamiðstöð Kjartans Magnússonar, Síðumúla 13, sími 5 530 530 www.kjartan.is SAMTÖK sveitarfélaga á Norður- landi vestra og Svæðisráð Svæð- isvinnumiðlunar Norðurlands vestra standa fyrir málþingi um at- vinnumál á Norðurlandi vestra. Yf- irskrift málþingsins er Norðurland vestra 2020 og verður það haldið föstudaginn 4. nóvember í Verinu, húsnæði Háskólans á Hólum á Sauðárkróki kl. 10.30–17. Á málþinginu er ætlunin að vekja fólk til umhugsunar um hvernig at- vinnulífið á Norðurlandi vestra kemur til með að þróast á næstu 15 árum. Fyrirlesarar munu fjalla um leiðir sem líklegar eru til árangurs. Stefnumótun fer síðan fram í um- ræðuhópum. Samhliða málþinginu er sýning sem varpar ljósi á þróun atvinnulífsins síðustu 15 ár. Það getur einnig að líta framtíðarsýn atvinnurekenda á Norðurlandi vestra er byggist á nýrri könnun sem gerð var í tengslum við mál- þingið. Skráning í síma 455 6040 eða á ssnv@ssnv.is til 3. nóvember. Málþing um at- vinnumál á Norð- urlandi vestra HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær Írana á fimmtugsaldri í 30 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi hér á landi þegar lögregla var með hefðbundið eft- irlit á dvalarstað hælisleitenda í Reykjanesbæ. Maðurinn játaði sök. Í dómi héraðsdóms segir, að í vörslum mannsins hafi fundist falskt danskt vegabréf sem hafi borið með sér að vera gefið út á manninn, en vegabréfið reyndist vera falsað með þeim hætti að skipt hafði verið um upplýsingasíðu vegabréfsins. Gunnar Aðalsteinsson héraðs- dómari dæmdi málið. Verjandi var Ásbjörn Jónsson hdl. og sækjandi Eyjólfur Kristjánsson fulltrúi sýslu- mannsins á Keflavíkurflugvelli. 30 daga fangelsi vegna falsaðs vegabréfs PRESTSVÍGSLA verður í Dóm- kirkjunni, á morgun, sunnudaginn 30. október, kl. 16. Þá vígir biskup Íslands cand. theol. Hólmgrím Elís Bragason, sem ráðinn hefur verið héraðsprestur í Austfjarðaprófasts- dæmi. Séra Davíð Baldursson, prófast- ur Austfjarðaprófastsdæmis, lýsir vígslu. Vígsluvottar auk hans verða dr. Einar Sigurbjörnsson prófessor, séra Guðmundur Karl Ágústsson sóknarprestur og séra Sigurður Kr. Sigurðsson sóknarprestur. Séra Karl V. Matthíasson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, org- anisti er Marteinn H. Friðriksson dómorganisti. Prestsvígsla í Dómkirkjunni VERSLUNIN Blómaval kveður í dag heimkynni sín til þrjátíu og fimm ára við Sigtún, en verslunin verður opnuð í 4.000 fermetra húsnæði við hliðina á Húsasmiðjunni í Skútuvogi í dag kl. 9. Hið nýja húsnæði er að sögn eigenda Blómavals hátæknilegt og er m.a. þak- gluggum og gardínum stýrt af tölvu sem tekur tillit til vindáttar, kulda og ljóss. Tengibygging verður milli Blómavals og Húsasmiðjunnar, svo segja má að Skútuvogur 16 verði eitt stórt versl- unartorg. Segja forsvarsmenn fyr- irtækjanna að nú eigi því viðskiptavinir eftir að geta sótt nánast alla vöru og þjónustu fyrir heimilið undir eitt þak. Í tilefni af flutningunum hafa Steinn Logi Björnsson, forstjóri Húsasmiðj- unnar, og Magnús Jóhannesson, for- maður Skógræktarfélags Íslands, skrif- að undir samstarfssamning, sem gerir Skógræktarfélaginu kleift að hefja framleiðslu á íslenskum jólatrjám. Í dag kl. 17 verður einnig kveikt á öll- um jólaljósum Blómavals og einnig verða tendruð ljósin á stærsta jólatré landsins, sem er 17 metrar á hæð. Boðið verður upp á heitt kakó og vöfflur og munu barnabókahöfundar lesa upp úr bókum sínum fyrir börnin. Morgunblaðið/Golli Hin nýja verslun Blómavals er nátengd Húsasmiðjunni og myndar með henni nokkurs konar heimilisþarfatorg. Blómaval flyst í Skútuvoginn Á ÁRUNUM 1996–2004 voru ætt- leiðingar hér á landi 411 talsins. Í 174 tilvikum var um að ræða stjú- pættleiðingu en frumættleiðingar voru 237. Þetta kemur fram í hefti, sem mannfjöldadeild Hagstofu Íslands hefur sent frá sér. Frumættleiddir Íslendingar voru 57 en frumættleiðingar frá útlönd- um voru 180. Undanfarin þrjú ár hafa langflest ættleidd börn komið frá Kína, 46 stúlkur og einn dreng- ur. Ef litið er til áranna 1996–2004 hafa börn frá Indlandi verið flest, þaðan hafa á þessu níu ára tímabili komið 60 stúlkur og 32 drengir. Stjúpættleiddir einstaklingar eru alla jafna eldri en frumættleiddir og meðalaldur þeirra sem voru stjúpættleiddir á árunum 1996– 2004 var 21,8 ár. 411 ættleiðingar frá 1996–2004
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.