Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.10.2005, Qupperneq 10
RÁÐHERRAFUNDUR BASREC- ríkjanna var haldinn í Reykjavík í vikunni, en BASREC er heiti á orku- málasamtarfi ríkja í Eystrasalts- ráðinu. Andris Piebalgs, orkumála- stjóri Evrópusambandsins, ávarpaði fundinn. Hann kynnti sér einnig nýt- ingu jarðvarma hér á landi, orkuver og vetnisverkefni Íslendinga. Sjálfur segist Piebalgs í samtali við Morgunblaðið vinna að verkefn- um innan ESB sem tengjast háu ol- íu-, gas- og orkuverði í heiminum. Hann segir að fulltrúar ESB séu að reyna að bregðast við því, m.a. með því að ræða við stóru olíuríkin eins og við Rússland, Noreg og fleiri lönd og hvetja þau til að auka olíufram- leiðslu sína. Hann segir að ESB þurfi m.ö.o. að glíma við það vandamál sem fylgi aukinni þörf fyrir orku en minni orkuframleiðni. ESB vilji því m.a. auka orkunýtnina. Piebalgs fjallaði m.a. um svæða- samstarf í orkumálum á fundi BAS- REC, en ESB styður slíkt samtarf. Á ráðherrafundinum var m.a. rætt um alþjóðasamning BASREC sem kveður á um stofnun sjóðs til að fjár- magna aðgerðir á svæðinu á grund- velli Kyoto-bókunarinnar. Pétur Örn Sverrisson, lögfræðingur í iðnaðar- ráðuneytinu, segir að með samn- ingnum séu BASREC-löndin að ganga á undan með góðu fordæmi, þ.e. með samningnum fái þau fjár- magn til að fylgja áætlunum Kyoto- bókunarinnar eftir. Íslendingar leggja fram fjármagn til þessa verk- efnis. Ráðherrar funda vegna BASREC Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra og Andris Piebalgs. 10 LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Helgi Björns laus úr viðjum erkitöffarans UM áramót mun göngudeild psori- asis-sjúklinga á Akureyri verða lok- að. Deildin hefur verið rekin af Sjálfsbjörg en nú er svo komið að flestöll tæki eru úrelt og því ekki stætt á að hafa deildina áfram opna. Segir Valgerður Auðunsdóttir, for- maður Samtaka psoriasis- og exem- sjúklinga (SPOEX) að þetta sé stór- mál fyrir sjúklinga fyrir norðan þar sem sjúkdómar taki sér ekki frí. Samtökin hafi fundað með forsvars- mönnum sjúkrahússins fyrir norðan og líti þeir jákvætt á að taka að sér göngudeildina en af því geti ekki orð- ið fyrr en 2007. Því munu úrræði fyr- ir sjúklinga fyrir norðan verða af skornum skammti eftir áramótin. Í dag er alþjóðlegi psoriasisdag- urinn og segir Valgerður að með- ferðarúrræði á Íslandi séu ekki nægilega góð og berjast samtökin fyrir því að meðferðarúrræði hér- lendis verði þau bestu sem völ er á. Segir hún að ný laser-meðferð sé til dæmis ekki greidd niður af Trygg- ingastofnun og eins þurfi að berjast fyrir því að ferðakostnaður í Bláa lónið sé greiddur niður því hann sé oft mikill fyrir buddur sjúklinga. Að- spurð um hvort sjúklingar fyrir norðan geti notað lónið í Mývatns- sveit segir Valgerður of snemmt að segja til um það, reynslan verði að leiða það í ljós. Þá bendir Valgerður á að á Íslandi séu um 9.000 psoriasissjúklingar og af þeim sé um þriðjungur haldinn psoriasis-gigt á mismunandi háu stigi. Af þeim eru um 10% með alvar- lega gigt og oft vill þessi þáttur psoriasissjúkdómsins gleymast. Tengsl psoriasis og hjartasjúkdóma Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem alþjóðasamtök psoriasissjúk- linga birta í dag benda til þess að af- gerandi tengsl séu á milli psoriasis og hjartasjúkdóma. Eru tengslin tal- in erfðafræðileg og leiddi rannsókn- in í ljós að fólk undir 40 ára aldri með psoriasis á háu stigi reyndist vera með kólesteról langt yfir meðallagi og var ekki unnt að skýra ástæðu þessa með hefðbundnum kólester- ólvandamálum, svo sem reykingum, hreyfingarleysi og lélegu mataræði. Því benda niðurstöður til þess að psoriasissjúklingar lifi við aukna hættu á að fá hjarta- og æðasjúk- dóma. Alþjóðlegi psoriasis-dagurinn haldinn hátíðlegur í dag Göngudeild á Akureyri lokað um áramótin Morgunblaðið/Árni Sæberg Valgerður Auðunsdóttir, formaður SPOEX, og Albert Ingason meðstjórn- andi kynna helstu baráttumál sem samtökin hafa á stefnuskrá sinni. SAGNFRÆÐISTOFNUN Háskóla Íslands heldur árlegan minning- arfyrirlestur Jóns Sigurðssonar í dag, laugardag. Fyrirlesari þetta árið er brasilíski sagnfræðing- urinn Patricia Boulhosa sem heldur fyrirlestur með titlinum „Gamli sáttmáli: Staðreynd eða tilbúningur?“ í stofu N-132 í Öskju á Háskólalóðinni og hefst hann kl. 15.00. Boulhosa hefur sérhæft sig í ís- lenskri mið- aldasögu og hlotið dokt- orsgráðu frá Cambridge- háskóla 2003 fyrir ritgerðina „Icelanders and the Early Kings of Norway: the Evidence of Legal and Literary Texts“. Hún vinnur nú við kennslu í norrænni víkingaaldarsögu í sama háskóla. Boulhosa hefur bent á þá stað- reynd að hvergi sé minnst á Gamla sáttmála í lagatextum frá 13. og 14. öld, heldur spretti hann fram alskapaður á 15. öld. Hefur hún varpað fram þeirri kenningu að Gamli sáttmáli sé ekki frá 1262 heldur sé hann til- búningur spunameistara 15. ald- ar. Patricia Boulhosa Var Gamli sáttmáli tilbúningur? edda.is Leikandi vísur og litríkar myndir 1. sæti Barnabækur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 19. – 25. okt. Fornt og frægt kvæði Í Völuspá segir völva frá því hvernig heimurinn var skapaður, og síðan norrænu goðin og fyrstu mennirnir. Hér gera Þórarinn Eldjárn og Kristín Ragna Gunnarsdóttir þetta forna og fræga kvæði aðgengilegt fyrir börn á öllum aldri í leikandi vísum og litríkum myndum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.