Morgunblaðið - 12.12.1982, Page 13

Morgunblaðið - 12.12.1982, Page 13
Allt undir einu þaki og allt á hagstæðu verði Kjörorð IKEA er: Vönduð húsgögn á vægu verði. Komdu í IKEA deildina og sjáðu úrvalið með eigin augum. Stílhrein og nútímaleg húsgögn, gæðaprófuð skv. stöðlum Rannsóknarstofnunar sænska húsgagnaiðnaðarins. IKEA er ekki bara húsgögn, heldur heill heimur af litríkum heimilismunum, gjafavörum og síðast en ekki síst, fallegum innréttingum í eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og víðar. Nú er kominn vandaður litprentaður IKEA bæklingur á íslensku. Hann er 84 síður og inniheldur nákvæmar vörulýsingar og upplýsingar um greiðslukjör og verð. Þú færð eintak í verslunum okkar. Verslið á einum stað -verslið tímanleqa til jólanna. Við höfum mesta úrval landsins af herraskyrtum, peysum og úlpum og margs konar öðrum herrafatnaði. Einnig bjóðum við vandaðan fatnað á dömur, þ.á.m. undirfatnað frá sænska fyrirtækinu Svegmark, fatnað fyrir unglinga og allan jólafatnað á börn á öllum aldri frá hinum þekktu C&A. Auk þess er ótrúlegt úrval af vetrarfatnaði, buxum og skóm á alla aldursflokka. ókadeildin okkar býður ykkur allar nýjar íslenskar bækur og fjölmargar eldri bækur, auk erlendra bóka á hagstæðu verði. Og að sjálfsögðu bjóðum við frábært úrval af jólaskrauti, jólapappír, kertum, aðventuljósum og fleira fallegu til jólanna. Sími póstverslunar er 30980. HA6KAUP Skeifunni15 HAGKAUP Skeifunni15 Pað er óneitanlega þægilegt að þurfa ekki að ösla krapið á milli verslana - að geta gert innkaupin á einum og sama staðnum. Hagkaup býður upp á geysilegt vöruúrval á lægsta mögulega verði. Opið á fimmtudögum til kl. 20.00 Opið á föstudögum til kl. 22.00 Matvörudeildin hefur tekið stakkaskiptum og við leyfum okkur að fullyrða að nú geta viðskiptavinir okkar verslað á mun þægilegri og sneggri hátt en áður. Hvergi er meira vöruúrval - hvergi er vöruverð hagkvæmara. ATH. Nú er sértilboð á bökunarvörum. Ileikfangadeildinni er gott úrval leikfanga fyrir börnin á afar hagstæðu verði. Við erum líka með margskonar aðrar gjafavörur fyrir alla aldurshópa, s.s. í IKEA smávörudeildinni og í búsáhaldadeildinni. Einnig vönduð handklæði, sængurver og dúka á góðu verði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.