Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
57
Dý sumarleyfishugmynd: England - meginlandið,
LUXUSSIGLING INNIFALIN
VIÐKOMUSTAÐIR
ERLENDIS
Sem gefur að skilja voru við-
komustaðir m/s Eddu vand-
lega valdir, svo farþegar yrðu
sem best settir til að halda
áfram ferðinni.
Newcastle er miðsvæðis í Bret-
landi, og þaðan eru daglegar
ferjusiglingar til Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur. Sjálf er
Newcastle stórborg og þar er
hvað best að versla í allri Evr-
ópu.
Hin rómaða ferðamannapara-
dís Vatnahéraðið (Lake Dist-
rict) er í örskots fjarlægð og í
norðri skosku hálöndin. I suðri
eru allir ensku baðstrandabæ-
irnir (s.s. Brighton) og auðvitað
sjálf heimsborgin London.
Loks má geta þess að ekkert er
því til fyrirstöðu að sigla með
m/s Eddu til Newcastle og
koma með henni heim aftur frá
Bremerhaven.
Bremerhaven er ákjósanlegur
upphafsstaður Evrópuferðar.
Skammt undan eru borgir fjörs
og iðandi mannlífs t.d. Amster-
dam í suðri og Kaupmannahöfn
í norðri. Einnig er stutt á frægar
slóðir: Rínardal, Moseldal og
Alpana, svo dæmi séu tekin.
Aksturtil Rivierunnar, Ítalíu eða
Austurríkis er ekki meira mál en
milli Reykjavíkurog Egilsstaða.
( rauninni á ekkert að geta
takmarkað ferðafrelsið nema
lengd sumarfrísins, og farþeg-
um er frjálst að velja sér þá
heimferð með m/s Eddu sem
best hentar.
2-51-66
Vinsamlegast
færió það inn á
minnisbiað símasktárinnar.
FARSKIP
Aðalstræti 7 Reykjavík
ACILUN
SUMARIÐ
1985
KOMU-OG
BROITfARAR-
TÍMAR
Tll Reykjavíkur miðvikudaga 20:00
Frá Reykjavík miðvikudaga 24:00
Tll Newcastle laugardaga 10:00
Frá Newcastle laugardaga 12:00
Til Bremerhaven sunnudaga 10:00
Frá Bremerhaven sunnudaga 14:00
Til Newcastle mánudaga 10:00
Frá Newcastle mánudaga 12:00
Næsta sumar heldur Farskip hf. uppi reglubundnum
siglingum milli íslands, Englands og meginlands Evr-
ópu. M/S Edda fer frá Reykjavík hvern miðvikudag frá
1. júní til 17. september.
Edda getur flutt 900 farþega í
hverri ferð. Einnig rúmar hún
160 bíla, þannig að stór hluti
farþeganna getur tekið fjöl-
skyldubílinn með. Og það sem
meira er: Séu fjórir farþegar
eða fleiri saman um bílinn verð-
ur hann fluttur án gjaldtöku,
jafnvel þótt einhverjir hinna
fjögurra séu börn allt niður ( 2ja
ára að aldri og ferðist á lægra
gjaldi en fullorðnir. Séu færri
farþegar saman um bílinn
greiða þeir flutningsgjald fyrir
hann og fer það eftir fjölda
þeirra. Einnig geta hópar lagt í
utanlandsferð og flutt hóp-
ferðabíl með m/s Eddu.
Erlendar viðkomuhafnir eru
Newcastle í Englandi og
Bremerhaven í Þýskalandi. Far-
þegar geta farið frá borði í ann-
arri þeirra og um borð þar aftur,
eða í hinni eftir eigin óskum.
Þannig geta þeir t.d. farið eins
konar hringferð um Bretland og
meginlandið. Að sjálfsögðu
ráða þeir einnig hve margar
vikur líða milli brottfarar og
heimkomu. Aðeins þarf að
gæta þess að panta allar ferðir
með nægum fyrirvara, því bú-
ast má við að margar ferðir
seljist upp löngu fyrir brottför.
Fargjald verður mjög hóflegt
þannig að það á ekki að verða
hindrun þess að menn geti veitt
sér ánægjulegt sumarfrí. Sé
bíllinn með er ekkert því til
fyrirstöðu að stinga tjaldinu og
eldunaráhöldunum í skottið.
Tjaldsvæði eru mjög fullkomin
ytra.
Hápunktur ferðarinnar getur þó
verið sjálf sjóferðin, lúxussigl-
ing á vel búnu lystiskipi. Ekki
spillir að útgerðin er íslensk og
íslenskir peningar í fullu gildi
urh borð, bæði innan landhelgi
og utan hennar sem í erlendum
höfnum.
Allar tímasetningar hér að ofan
eru staðartímar.
Farþegar án ökutækja komi til
skips minnst 2 klst. fyrir brottför.
Akandi farþegar mæti við skip
minnst 1 Vz klst. fyrir brottför.
Hópferðabifreiðar séu við skip
minnst 2 klst. fyrir brottför.
I Bremerhaven liggur m/s Edda
við Columbus Quay. Reglu-
bundnar járnbrautarferðir eru
milli skips og brautarstöðvarinn-
ar í Bremerhaven.
( Newcastle (North Shields)
liggur m/s Edda við Tyne
Commission Quay u.þ.b. 13 km
fyrir austan miðborgina. Beinar
vagnferðir eru frá skipshlið til
aðalbrautarstöðvarinnar.
( Reykjavík liggur m/s Edda við
Kleppsbakka í Sundahöfn.
m/s EDDA
M/S Edda er 7800 tonna lúx-
usferja byggð í Frakklandi
1972 skv. ströngustu kröfum
Lloyd’s. Hún getur gengið 20
sjómílur á klukkustund og er
búin stöðugleikauggum.
Edda getur flutt í hverri ferð
900 farþega og um 160 bíla.
( 200 farþegaklefum skipsins
rúmast 440 farþegar og 120 í
þotustólum, en þar að auki eru
seld þilfarspláss. í meiri hluta
klefanna er hreinlætisaðstaða.
Um borð er bæði vandað veit-
ingahús og veitingabúð, einnig
þjónustumiðstöð þar sem er
banki og símstöð, verslanir,
þ.á.m. fríhafnarverslun, kvik-
myndasalur, sundlaug og
saunaböð. Þá má nefna spila-
víti, dansstað, þar sem hljóm-
UM BORÐ í LYSTISKIPI:
sveit skipsins leikur, og diskó-
tek sem jafnframt er nætur-
klúbbur. Barir eru 6 talsins. Sér-
stakt leiksvæði er fyrir börn og
barnagæsla er á staðnum.
Læknisþjónusta er auk þess í
skipinu.
OPNAÐ
Skrifstofur í Aðalstræti 7.
Veitum allar upplýsingar um ferðir
m/s Eddu, tökum við farpöntunum
og gefum út farseðla.
Síminn er 25166.
FARSKIP