Morgunblaðið - 01.12.1971, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER .1971
Sjötug i gær:
Hallfríður Jónsdóttir
VIÐ höf'um ávallt kallað hana
„Fríðu fræinku“ — ég og flest-
allt mitt fólk — og bak við þetta
orð felst einhver dýpri merking
en frændsemin ein saman, og
veldur því það frjálsa, vinhlýja
viðmót og góðhugur, sem ein-
kennir þessa konu og stafar
hressandi andvara og bjarma af
gleði yfir til nærstaddra sam-
ferðamanna.
Hallfríður er Eyfirðingur að
ætt og uppruna, komin í föður-
kyn — annars vegar af svo
nefndri Gunnlaugsætt úr Hörg-
árdal — en hins vegar út af hinni
talsvert kynsælu Myrkár-Helgu
— var hún amma hennar í föður-
ætt.
Hallfriður missti föður sinn
ung að árum og tregaði hann
mjög, ólst hún upp með móður
sinni, Sigrúnu Sigurðardóttur frá
Öxnhóli, dugmikilli konu. Flutt-
ust þær mæðgur til Akureyrar
og bjuggu þar við fremur ó'hæg-
an efnahag.
Eftir að hafa dvalizt í vistum
bæði á Akureyri og nágrenni —
oft á góðum heimilum, þar sem
margt mátti læra — lá leiðin til
Reykjavíkur, og þar mun gæfu-
sól hennar hafa hafizt í hádegis-
stað, er hún giftist Kristni Sim-
onarsyni, sem ávallt hefur reynzt
henni hinn trausti lífsiförunautur,
hvað a'ldrei hefur þó gerr birzt
en í langvarandi sjúkdómslegu
Hallfríðar, er hlauzt af slysi fyr-
ir hartnær þremur árum. Svo
erfið og tvísýn hefur baráttan
iöngum verið, að nánustu vinir
hennar hafa oft örvænt um bata.
En allan þennan erfiða tíma hef-
ur Hallfríður varðveitt glaðlyndi
sitt og barnslegt trúartraust á
það góða — á iíf og bjarta fram-
tíð — þótt örgeðja sé að eðlis-
fari. Og þótt með óiíkindum sé
hefur margur heilbrigður sótt að
sjúkrabeði hennar djörfung og
styrk í eígin lífsbaráttu. Án efa
hefur margt gerzt hið innra, sem
engar sögur fara af. Hinu má
heldur ekki gleyma, að ávallt hef
ur hún notið umhyggusamrar
ástúðar eiginmanns síns og fjöl-
margra vina. Hygg ég að aldrei
hafi liðið svo heimsóknartim'i til
sjúkilinga, að ekki sæist Kristinn
Simonarson sitja við sjúkrabeð
konu sinnar færandi blórn og
annað, er glatt gæti, og miðlaði
ró af sínu aikunna geðsmuna-
jafnvægi.
Loksins er vonin orðin að
vissu, að þvi er séð verður, og
sigur unninn. Friða frænka er
fyrir skömmu laus við sjúkra-
beð og komin heim. Hækjan er
að vísu enn við rúmgaflinn, og
húsfreyjan þarf umfrarn allt
kyrrð og ró. í>að vona ég að
vin'r hennar skilji.
Al'lir kannast við afturbatann,
og kannski hafa þessi öldruðu
hjón aidrei verið hamingjusam-
ari en einmitt nú. Um margt
hafa þau verið gæfumanneskjur.
Þau hafa jafnan verið vinsæi og
notið þess að geta veitt, og þau
eignuðust kjördóttur, sem var
þeim sannur sólargeisli öll sín
bernskuár. Því gieyma þau
aldrei.
Nú og framvegis mumu vin-
hlýjar blessunaróskir berast
þeim víða að. Fyrir mína hönd
og fjölskyldu minnar sendi ég
þeim hjónum innilegustu ham-
ingju- og blessunaróskir með
þökk fyrir allt.
Fríða frænka hefur ávalit ver-
ið ung, og þótt hún verði hundr-
að ára hvað ég vona henni end-
ist heilsa til, veit ég, að hún
verður aldrei gömul.
Guðnnindur L. Friðfinnsson.
BRIDGE
LOKIÐ er 12 umferðum á Evr-
ópumótinu í bridge, sem fram fer
í Grikklandi. íslenzka sveitin hef
ur hlotið 116 stig af 240 möguleg-
um eða tæplega 50%. Sveitin hef-
ur unnið 6 leiki, en tapað 6 leikj-
um. Sveitinni gekk illa í byrjun
keppninnar og tapaði 5 fyrstu
leikjunum, en í síðustu 4 leikjun-
um hefur gengið mun betur og
að 12 umferðum loknum er Island
í 11.—13. sæti áf 22 þátttakend-
um.
Eins og fyrr segir er 12 um-
ferðum lokið og hafa úrslit í
ieikjum íslenzku sveitarinnar
orðið þessi:
ísland Frakkland 9- -11
— — Ítalía 0- 20
— Tyrkland 4 16
— Bretland 1- 19
— Júgóslavía 1 19
— ísrael 19 1
— Ungverjaland 16- 4
— V-Þýzkaland 2- 18
— Austurriki 12 8
— Pólland 18 2
— — Finnland 20 0
— Spánn 14 6
ítalska sveitin er efst með 224
stig, en Bretland er í öðru sæti
með 204 stig. Danmörk hefur 156
stig og er í 3. sæti, svo augljóst
er, að annað hvort ítalia eða
Bretland hljóta Evrópumeistara-
titilinn að þessu sinni. Báðar
þessar sveitir hafa sýnt mikla
yfirburði fram yfir aðra kepp-
endur og er mjög óvenjulegt að
tvær sveitir hafi um miðbik
keppninnar náð svo miklu for-
skoti eins og þessar tva:r sveitir
hafa nú.
Skák Friðriks
gegn Tal
EINS og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu vann Friðrik Ólafs
son Mikhail Tal í fyrstu umferð
Alékinemótsins í Moskvu. Vann
Friðrik, sem hafði hvítt, skákina
í 22 leikjum. Þetta er fyrsta skák
in, sem Friðrik Ólafsson vinnur
gegn þessum fræga sovézka skák
manni, sem er fyrrverandi heims
meistari. Hér fer skákin á
Hvítt: Friðrik Ólafssor
Svart: Mikhaii Tal
1. d4 Rf6
2. c4 c5
3. Rf3 cxd
4. Rxd f e«
5. Rc3 Bb4
6. Rb5 0-0
7. a3 Bxc3t
8. Rxc3 d5
9. Bg5 h6
10. Bxf6 Dxf6
11. e3 Hd8
12. cxd exd
13. Dd4 Og5
14. h4 Df5
15. Bd3 De6
16. 0-0-0 Rc6
17. Df4 d4
18. exd IIxd4
19. Dc7 Bd7
20. Hhel Df6
21. He4 Hc8
22. Dxd8t
Svartur gaf