RM: Ritlist og myndlist - 01.06.1947, Page 6
Þá er í ráði að birta öðru hvoru myndir af listaverkum. Verða
þær prentaðar á sérstakan pappír og til þeirra vandað eftir föngum.
Myndunum munu fylgja stuttar greinar um myndlist.
*
RM mun jafnan flytja nokkurt íslenzkt efni. Birtir verða stuttir
úrvalskaflar úr bókmenntum fyrri alda, ljóðum og lausu máli,
skreyttir myndum. Lögð verður áherzla á það að afla ritinu nýrra
íslenzkra smásagna. Ljóð verða einnig birt, eftir því sem efni standa
til.
Þegar hefur verið leitað til ýmissa fremstu þýðenda okkar og rit-
liöfunda um stuðning við ritið. Hafa flestir tekið þeirri málaleitan
vel.
RM er algerlega óbáð rit. Þeir, sem að því standa, hafa mismun-
andi skoðanir um stjórnmál, bókmenntir og listir. Hitt er markmiðið,
að ritið verði frjálslynt og víðsýnt, en engum kreddum bundið. Reynt
verður að lála bókmenntalegt og listrænt gildi ráða mestu um efnis-
val, en ekki liitt, hvaða stefnur eða vinnuaðferðir listamennirnir að-
hyllast.
Ú tgefendur
4