Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 66

Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Reuters Alsæl Braxton á Soul Train Lady of Soul-verðlaunahátíðinni. Toni Braxton heiðruð TONI Braxton var heiðruð á ár- legri verðlaunahátíð Soul Train Lady of Soul sem haldin var á sunnudaginn. Henni voru afhent verðlaun sem kennd eru við drottn- ingu sálartdnlistarinnar, Arethu Franklin, og eru veitt besta skemmtikrafti ársins. Að því loknu steig Braxton á svið og tók lagið, léttklædd að vanda, í félagi við sæg af vöðvastæltum karlmönnum sem hnykluðu vöðva og dilluðu sér í takt við tóná Iagsins „He Wasn’t Man Enough”. Mary J. Blige vann tvenn verðlaun fyrir besta lag ársins, „All That I Can Say“, sem bæði var valið besta sálarlagið og besta rapplagið. Hraðlestrarnámskeið "»■► Ifissir þú að 97% þátttakenda eru mjög ánægðir með námskeið okkar og mæla með því? Vlssir þú að þátttakendur fjórfalda lestrarhraða sinn að jafnaði á námskeiðum okkar? "■^ Vissir þú að þeir sem ekki ná að tvöfalda lestrarhraða sinn fá námskeiðsgjaldið endurgreitt? Næsta námskeið hefst 13. september Skráning er í síma 565 9500 HRAÐLESTRARSKOLINN www.hradlestrarskolinn.is Kennsla hefst um miðjan september. B/rjendur og framhaldshópar fró 3. óra aldri. Afhending skírteina fer fram mánudaginn 11. sept. og þriðjudaginn 12. sept kl. 17.00—20.00. Félog ísl. listdonsoro MYNDASAGA VIKUNNAR Að fórna sér fyrir fjöldann Clan Apis eftir Jay Hosler. Gefin út af Active Synapse árið 2000. Bókin er kennslubók sem fjallar um ævi- skeið býflugu. Fæst í myndasögu- verslun Nexus VI. Frekari upp- lýsingar er að finna á www.jayhosler. com/clanapis.h tml. „EINN fyrir alla, en enginn fyrir einn,“ gæti verið lýsandi slagorð fyr- ir lifnaðarhætti býflugna. Þar skiptir einstaklingurinn litlu sem engu máli og eini tilgangur lífsins er að upp- fylla sitt hlutverk til þess að heildin nái að blómstra. Hver og ein fluga þekkir sitt hlutverk frá fæðingar- degi og er hin ótrúlega stærðfræði- lega nákvæmni sem flugumar nota við að byggja vaxkökurnar (hunangsgeymslurnar) einn af þess- um meðfæddu hæfileikum. Það veld- ur vissulega heilabrotum að dýr sem hafa heila á stærð við títuprjónshaus geti ráðið við jafn fíngerðar og hárnákvæmar byggingafram- kvæmdir eins og eru þarfar við byggingu býflugnabúa. Að ekki sé talað um þá furðulegu staðreynd að vísindamenn hafa átt erfítt með að sýna fram á það af hverju býflugan getur yfir höfíið flogið, því miðað við hlutfall þyngdar og vænghafs ætti hún ekki að haldast á lofti. Jay Hosler er prófessor í taugalíf- eðlisfræði og áhugamaður um myndasögur. Hann vann nýlega þrjú Eisner-verðlaun fyrir bók sína „Clan Apis“ sem er eins konar kennslubók um býflugur. Bókin er skrifuð með yngri lesendahóp í huga og segir ævisögu býflugunnar Nyuki. Við mbl.is og Síminn-GSM efna til spennandi getrauna- leiks á Formúla-1 vef mbl.is. Með þátttöku átt þú möguleika á að vinna ferð fyrir tvo til Spa t Belgfu á Formúla-1 kappakstur. Skjóttuí^^ úrsUtln SÍMtNN-GSM (SÍ eHÐÁ SKHIFS rOFAT W REYKJA VIKUR F0RMÚLAN Á mbl.is r v, HREIN ORKfl! Orkan I Leppin er öðruvísi samsett en orka I hefðbundnum orkudrykkjum. Hún er samsett úr flóknum kolvetnum (fjölsykrum) sem fara hægt út í blóðið og halda þannig magni blóðsykurs jöfnu og löngun I sykur minnkar. Líkaminn vinnur sérlega vel úr Leppin-orkunni og því veitir hún raunverulegt og langvarandi úthald. j> Leppin hentar öllum Leppin er bragðgóður svaladrykkur sem hentar öllum aldurshópum. Allir geta neytt þessa svalandi drykkjar til að bæta athyglisgetuna og til að auka og viðhalda orku I lengri eða skemmri tíma. kynnumst henni sem lirfu rétt áður en hún púpar sig og umbreytist í býflugu. Einstaklingshyggjan er sterk í söguhetjunni í byrjun og leit- in að tilgangi lífsins dregur hana áfram á vit ævintýranna. Þekking og lotning höfundarins í garð lífs og starfs býflugunnar skín í gegn og er sagan í raun þroskasaga Nyuki þar sem hún fínnur og sættir sig við sitt hlutverk í tilverunni. Nánast á hverri blaðsíðu er að finna einhvern fróðleiksmola um býflug- una, vafinn inn í þann umbúðapappír sem söguþráðurinn í rauninni er. Þjóðfélag býflugnanna er í raun hinn fullkomni sósíalismi þar sem þegnarnir lifa afar óeigingjörnu og einföldu lífi. Þó svo að bókin inni- haldi á engan hátt pólitískan áróður þá er skemmtilegt að sjá og læra að móðir náttúra þekkti hugtakið löngu áður en Karl Marx, Thomas Moore eða Plató lærðu stafrófið. Það væri alls ekki vitlaus hug- mynd að bæta þessari bók á bóka- lista líffræðinema menntaskóla landsins því hún fer mjög ítarlega of- an í lifnaðarhætti býflugunnar, er fljótlesin auk þess sem hún er líkleg- ast mun skemmtilegri lesning en all- ar þær bækur sem stuðst er við í kennslu í dag. Jay Hosler tekst merkilega vel að sýna fram á að það er ekki einungis miklu meira sem hægt er að læra um hegðun býflugunnar, heldur er líka heilmargt sem mannfólkið getur lært af henni. Birgir Örn Steinarsson Piparsveinunum í Back- street Boys fækkar óðum. Brian genginn út FYRST var það Kevin og nú er það Brian sem gengur út og giftist ástinni í lífí sinu. Þýðir bara eitt - að þeir eru einungis þrír eftir, Nick, Howie og A.J., sem hægt er að krækja í og freista þess að gera að sínum. Hinn 25 ára gamli Brian Littrell, aðalsöngvarinn í Backstreet Boys, gekk að eiga unnustu sína á laugardaginn en hin heppna heitir Leigh- anne Wallace og er þrítug lcikkona. Brúðkaupið fór fram í heimaborg brúðarinn- ar, Atlanta, að viðstöddum 300 gestum, þ. á m. félögum Brians í Backstreet Boys. Brúðurin var klædd satínkjól eftir Veru Wang en Brian og fylgdarsveinar hans voru allir í kolagráum smóking og með pfpuhatta á höfði. Gestimir í móttökunni sem haldin var á eftir sjálfri athöfninni þurftu allir að sýna sérstakt armband við inngöngu að sönnum rokk og ról-sið en stór og myndar- leg sveiflusveit sá um fjörið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.