Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 61
-I MORGUNBLAÐIÐ I DAG BRIDS llm,\jón Uuilniiiiiilur Páll Arnarson BARRY Rigal segir frá þessari varnarþraut, sem kom upp á fyrri stigum Vanderbilt-keppninnar í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Kanadamaðurinn Joey Silver var í vestur í vörn gegn fjórum hjörtum. Lesandinn ætti að setjast í hans sæti: Suður gefur; allir á hættu. Noj-ður á AD3 ¥ G98642 ♦ 976 á 4 Vestur á 10654 *Á7 ♦ KG54 * KD7 Vestur Norðnr Austur Suður - - lgrand Pass 2 tíglar •Pass 3lyörtu Pass 4 hjörtu Allirpass Suður opnar á 15-17 punkta grandi og norður yf- irfærir í hjarta með tveimur tiglum. Stökk suðurs í þrjú hjörtu sýnir fjórlit í hjarta og mikinn geimáhuga. Silver kom út með iaufkóng og fékk áttuna frá makker, en sagnhafi drap á ás. Og spil- aði hjartadrottningu. Hvað myndi lesandinn gera? Allar hendur litu þannig út: Nofður á AD3 * G98642 ♦ 976 á 4 Vestur Austur á 10654 á KG72 v Á7 ¥5 ♦ KG54 ♦ 108 * KD7 * 1098532 Suður á 98 ¥ KD103 ♦ ÁD32 + ÁG6 Silver tók á ásinn og skipti yfir í spaða. Sagnhafi svínaði drottningunni, en austur drap og sendi tígul- tiuna í gegnum ÁD suðurs. Og nú getur sagnhafi ekkert gert; hann hlýtur að gefa tvo slagi á tígul. Á hinu borðinu dúkkaði vestur hjartadrottninguna í öðrum slag. Sagnhafi - sem reyndar var Barry Rigal - svínaði þá spaðadrottningu. Austur drap og spilaði tígli, en Rigal tók með ás, spilaði spaðaás og trompaði spaða. Sendi vestur svo inn á blankan hjartaás og beið eft- ir tíunda slaginum. Það er sama hvað vestur gerir - allt kostar slag: spaði í tvöfalda eyðu, tígull frá kónginum eða lauf frá drottningunni. E.S. Þetta er vel spilað og vörnin góð á hinu borðinu. Hins vegar þykir umsjónar- nianni laufátta austurs óþarflega lágt spil - tían befði verið skýrari, sem kall í spaða. Laufáttan neitar vissulega tíguláhuga (þá hefði austur sett lægsta spil- ið), en sýnir kannski ekki endilega spaðakóng - frekar hjartakóng! En það er kannski spurning um stíl og a.m.k. vafðist vörnin ekki fyrir Silver. Nd. Ég gleymdi flaut- unni minni, og hvað mcð það? Árnað heilla Q/\ ÁRA afmæli. í dag, ÖU þriðjudaginn 5. sept- ember, verður áttræð Bjarney Ágústsdóttir, Snæ- felli, Eyrarbakka. Hún tek- ur á móti vinum og vanda- mönnum laugardaginn 9. september kl. 15 í samkomu- húsinu Stað á Eyrarbakka. Ljósmynd: Sigríður Bachmann BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 8. júlí sl. af sr. Gísla Jónssyni Magðalena Magn- úsdóttir og Þorgeir Valur Pálsson. Heimili þeirra er að Garðhúsum 51, Reykja- vík. Hlutavelta Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu 6.800 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Edda Jónsdóttir, Sigurbjörg Lára Kristinsdóttir, íris Björg Kristinsdóttir og Stella Björg Kristinsdóttir. Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 6.000 kr. til styrktar Barnaspítala Hringsins. Þær heita Ásta María Gunn- arsdóttir, Ásdís Magnúsdóttir, Hrönn Ómarsdóttir og Áslaug Inga Kristinsdóttir. LJOÐABROT Á ÆSKUSTÖÐVUNUM Um ítra æskudaga ég átti lítinn hvamm þar sem að blómin brosa og brunar lindin fram. Þar undi’ eg allar stundir þar átti’ eg konungshöll sem skreytt var öll með skeljum og skein sem aprílmjöll. I hvammnum greri hrísia á hólnum ein hún bjó svo lág en limafógur mótijósisólarhló. Þar sat ég alsæll undir um aftans marga stund, er síðstu geislar glóðu sem gull á sævarlund. En einu mest ég unni - það allra hæst ég mat, og það var lítill þröstur sem þar á greinum sat. Hann söng svo sætt á kvöldum, þau sönglög man ég æ. Mér hrundu’ oft tár af hvarmi er heim ég gekk í bæ. Hann hreif mitt unga hjarta í helgri kvöldsins ró, og hóf minn anda’ í hæðir er hörpu blítt hann sló. Hann söng um sorg og gleði - hann söng mér vorsins óð. Á meðan nokkuð man ég ég man þau þrastarljóð. En nú er hríslan horfin, og hóllinn sandur ber, og höllin mín er hrunin - þar hrúga lítil er. En hvert er fuglinn floginn sem fyr hér átti skjól? Hann er víst löngu liðinn ó h'fsins hverfihjól! Jónas Guðlaugsson. STJORIVUSPA eftir Frances Urake MEYJA Afmælisbam dagsins: Þú ert ævintýragjarn í eðli þínu oglíðurilla, efekki er von á einhverjum uppá- komum til aðkrydda daginn. Hrútur (21. mars -19. apríl) Allur er varinn góður. En stundum er allt í lagi að sleppa örlítið fram af sér beizlinu, ef menn bara muna að ganga hægt um gleðinnar dyr._____________________ Naut (20. apríl - 20. maí) Gættu þess að setja þig ekki á háan hest gagnvart sam- starfsmönnum þínum. Slík framkoma kemur þér bara í koll. Vertu bara Ijúfur og lítil- látur. Tvíburar . (21. maí-20.júní) Áfl Það er ekki um annað að ræða en ganga á hólm við ákveðið verkefni, þótt þú ber- ir einhvern kvíðboga fyrir þvi. Vertu rólegur, því vilji er allt sem þarf. Krabbi (21. júní-22. júlí) Þú hefur of lengi látið heilsu- far þitt reka á reiðanum og þarft nú að gera átak í þeim málum. Láttu þau hafa for- gang fram yfir önnur mál. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það er ekkert að því að leyfa barninu í sér að njóta sln. Gaman og leikir stytta fólki stundir og létta því lífið. Brostu baj'a á báða bóga. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Búðu þig undir að einhver tíð- indi úr fortíðinni taki sig upp og valdi skurki meðal fjöl- skyldunnar.XHafðu allt þitt á hreinu, þegar til kastanna kemur. Vo& 'tXK (23.sept.-22.okt.) Það er eitt og annað í gangi hjá þér og nú þarft þú að setj- ast niður, velja þau verkefni, sem þú vilt sjá í höfn og ein- beita þér að þeim. Sporðdreki ™ (23. okt. - 21. nóv.) MK Það er ekki auðvelt að um- gangast fólk árekstralaust og auðvelt að lyfta einum og kippa fótunum undan öðrum. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) mCr Þér mun veitast auðveldar að stjóma þínum mönnum ef þú kemur fram við þá eins og jafningja. Bezta stjórnunin er sú sem aldrei þarf að grípa til valdsins. Steingeit „ (22. des. -19. janúar) Frelsinu fylgir mikil ábyrgð, sem þú axlar um leið og þér er veitt frelsi og sjálfstæði í starfi. Nú er tækifærið að sýna hvað í þér býr. Vatnsberi f . (20. jan. -18. febr.) GsL: Ákveðin atburðarás, sem fer í gang í dag, mun verða þér hliðholl, ef þú gætir þess að skipta þér ekki af málum sem þér koma ekki við. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Langi þig til þess að létta á hjarta þínu, skaltu gæta þess vel fyrir hvers eyrum þú það gjörir. Mundu að sá er vinur sem til vamms segir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 61 fctra TRILLUR HJÓLABORÐ 0G VAGNAR ÁRVÍK ÁRMÚLA 1 • SIMI 568 7222 • FAX 568 7295 ÁRVÍK ÁRMÚLA1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295 •300° beygju- radíus Henta fyrir langa hluti ANTIK Stórkostleg antikverslun í Hafnarfirði - Ný sending Isiantik-Sjónarhóll Hólshrauni 5 (Fyrir aftan Fjarðarkaup), sími 565 5656 - www.islantlk.com VEFJAGIGT - SÍÞREYTA í Sjúkraþjálfun Styrks í Stangarhyl 7, mun Sigrún Baldursdóttir, sjúkraþjálfari, halda fræðslunámskeið í vetur um vefjagigt/sí- þreytu og leiðir til bættrar heilsu. Hópþjálfun fyrir fólk með vöðvagigt verð- ur einnig í boði á sama stað. Nánari upplýsingar og skráning í síma 587 7750. STYRKUB Landlæknisembættið Ungur var eg forðum, fór ég einn saman: þá varð eg villur vega. Auðigur þóttumst er eg annan fann: Maður er manns gaman Maður er manns gaman Vísdómur Hávamála er enn í fullu gildi og margt er þar sagt um mannlegt eðli. Gestrisni, vinátta, víðförli, hugrekki, hófsemi, glað- lyndi, viska, siðgæði, orðstír og varúð er lofsvert. Varast skyldi áhyggju, kvíða, áleitni, ámæli, græðgi, ofdrykkju, heimsku, ofmælgi og óvini. Vinátta og félagsskapur er öllum mönnum nauðsyn og mannrækt er einn mikilvægasti hluti heilsuræktar. Einlægni, gleði og ánægja ætti að móta samskipti við fjölskyldu, vini og vandamenn eins og allt samferða- fólk okkar. Höfum í huga í öllum samskiptum okkar að „eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt". Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.