Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNB LAÐIÐ HESTAR M Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Eftir spennandi keppni í úrslitum A-flokks, frá vinstri: Fannar og Hafsteinn, Roði og Halldór, Draupnir og Erling, Alrekur og Sigurbjöm, Prins og Al- exander, Lilja og Tómas, Brynjar og Sveinn og „grillhafinn" Vignir á Klakki sínum. Meistaramót KPMG og Andvara Hugmyndaauðgi á hestamóti Meistaramót Andvara hafa í gegnum tíðina verið að tryggja sig í sessi sem eitt af skemmtilegri mótum ársins. Um helgina fylgdist Valdimar Kristinsson með einu af því best heppnaða sem haldið hefur verið til þessa þar sem úrvals hestar í toppformi háðu harða keppni. Krummi frá Geldingalæk og Jón Olsen áttu góðan dag í forkeppni en urðu að gefa eftir sigursætið í úrslitum þrátt fyrir frábæra yfirferð þar sem níur voru á lofti. GÆÐINGAKEPPNI meistaramót- anna hefur verið nokkuð frjálsleg þótt heldur hafi hún færst nær hin- um viðurkenndu reglum Landsam- bands hestamannafélaga en ýmis- legt er þó frábrugðið. Keppt er á beinni braut og fetinu sjeppt og heimilt er að nota písk. Áður var knöpum leyft að mæta hjálmlausir til leiks en nú var komin á hjálma- skylda. Þá er oft bryddað upp á ýms- um nýjungum sem mönnum dettur í hug hverju sinni og er það gott framlag í þróunaferli gæðinga- keppninnar, að reyna ýmislegt sem annars er ekki leyft samkvæmt reglum. Þátttaka í mótinu var að venju góð og þar á meðal voru frábærir hestar í báðum flokkum í feikna góðu formi flestir þeirra. Sigurbjöm Bárðarson mætti öðru sinni á tæpri viku til leiks með Valiant frá Heggstöðum í B-flokkinn. Voru þeir í öðru sæti eft- ir forkeppni en aðeins 0,004 stigum á þeim og Jóni Olsen og Krumma frá Geldingalæk sem vora með af- bragðsgóða sýningu í forkeppni. Krammi var hinsvegar ekki alveg sjálfum sér líkur í úrslitum á hægu tölti og brokki og féllu þeir niður í þriðja sætið. Yfirferðin var hinsveg- ar feikna góð hjá Kramrna og þar bar hann höfuð og herðar yfír keppi- nautanna enda hófu dómarar níurn- ar á loft þeim til handa. En það vora hinsvegar Ragnar Ágústsson og Hrólfur frá Hrólfs- stöðum og sem skutust í annað sætið og vora vel að því komnir. Hrólfur er um margt athygliverður hestur, fótaburður og rými eins og best verður á kosið en kannski helst höf- uðburður sem hamlar enn betra gengi. Hæga töltið hjá klárunum í úrslit- um var mjög gott. Þarna vora einnig ungir áhugaverðir hestar eins og Djákni frá Búðarhóli, Sólon írá Stykkishólmi og Stóri Rauður. Allir ættu þeir að geta látið meira að sér kveða á komandi áram. Klakkur frá Búlandi og Vignir Jónasson gerðu sér lítð fyrir og sigr- uðu í A-flokki þriðja árið í röð og hlutu enn eitt grillið að launum enda hafði Vignir á orði þegar honum var afhent grillið „Ha, enn eitt grill“. Hann ætti því að geta boðið vand- kvæðalaust í stóra grillveislu. Þótt Klakkur væri ekki alveg eins sann- færandi og hann hefur verið fyrr í sumar var þetta nokkuð létt og ör- uggt hjá þeim félögum. Fengu þeir meðal annars um eða yfir 9 íyrir tölt í úrslitunum. Brynjar frá Árgerði og Umsóknárfrestur til 12. september nk. Berjarimi 3, Reykjavík 66m2 íbúð.ioi Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.108.600 Búsetugjald kr. 39.189 Berjarimi 5, Reykjavík 68m2 íbúð,ioi Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.286.360 Búsetugjald kr. 38.069 Ibúðir með leiguíbúða- lánum veita rétt til húsaleigubóta. íbúðir með almennum lánum veita rétt til vaxtabóta. Miðholti 3, Mosfellsbæ 60m2 íbúð,303 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.193.728 Búsetugjald kr. 26.369 3ja herb. Amarsmára 4, Kópavogi 80m2 fbúð,30i Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 944.277 Búsetugjald kr. 35.394 Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Buseta hsf. Opið virka daga frá 8:30 til 15:30 nema 1. þriðjudag í mánuði frá 8:30 til 12:00. Með umsóknum um íbúðir á leiguíbúðalánum þarf að skila launaseðlum síðustu sex mánaða og síðustu skattskvrslu. Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 13. september kl. 12:00 - 12:30 að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskyldum tíma og staðfesta úthlutun sína að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og íbúðinni yrði úthlutað til annars félagsmanns. Búseti hsf. Skeifunni 19 sími 520-5788 www.buseti.is Sveinn Ragnarsson höfðu annað sætið með góðum skeiðsprettum. Þrjú ung hross vora í úrslitum A- flokks og þeirra yngstur Draupnir frá Tóftum efnishestur aðeins sex vetra og svo má nefna Pjakk frá Krossum og Lilju frá Litla-Kambi sem er líklega þeirra best enda hef- ur hún skilað afbragðsgóðum ár- angri í sumar og hafnaði í þriðja sæti. Sigurður Sigurðarson og nafni hans Matthíasson ásamt Vigni Jón- assyni komu allir tveimur hestum í úrslit gæðingakeppninnar sem er góður árangur í svo jafnri keppni. Að vísu kom Sigurður Matthíasson þriðja hestinum inn en ekki í krafti einkunna heldur vora það peningar sem spiluðu þar inn í. Hann og Hjörtur Bergstað slógu saman og keyptu Fannar frá Stokkseyri inn í úrslitin fyrir 40 þúsund krónur og settu eigandann Hafstein Jónsson á bak. B-flokkssætið fór á 27 þúsund krónur. Sigurbjöm Bárðarson mætti með Odd frá Blönduósi í töltkeppnina. Vakti klárinn mikla atnygli og töldu margir að hann hefði sjaldan verið svo góður sem nú. Sá gamli virðist því alltaf á uppleið þrátt fyrir mis- jafnt gengi á sterkustu mótunum í sumar miðað við það sem verið hefur í gegnum árin. En það er ljóst að menn skyldu ekki fara strax að af- skrifa hann sem sigurkandídat. Mikil stemmning var á laugardagskvöldinu þegar úrslitin í tölti fóru fram og að því loknu fljúg- andi skeið í flóðlýsingu og svo vora boðin upp lausu sætin í gæðinga- keppninni. Úrslit A-flokkur 1. Klakkur frá Búlandi, knapi Vignir Jónasson, 8,71/8,84 2. Brynjar frá Árgerði, knapi Sveinn Ragnarsson, 8,53/8,62 3. Lilja frá Litla Kambi, knapi Sigurð- ur V. Matthíasson, knapi í úrslitum Tómas Ragnarsson, 8,43/8,58 4. Prins frá Hvítárbakka, knapi Alex- ander Hrafnkelsson, 8,49/8,52 5. Alrekur frá Torfastöðum, knapi Sigurður V. Matthíasson, knapi í úr- slitum Sigurbjöm Bárðarson, 8,43/ 8,48 6. Draupnir frá Tóftum, knapi Erling Sigurðsson, 8,39/8,46 7. Pjakkur frá Krossum, knapi Sigurð- ur V. Matthíasson, 8,40/8,38 8. Roði frá Egilsstaðakoti, knapi Hall- dór Vilhjálmsson, 8,42/8,33 9. Fannar frá Stokkseyri, knapi Haf- steinn Jónsson, 8,27/8,16 B-flokkur 1. Valiant frá Heggstöðum, knapi Sig- urbjöm Bárðarson, 8,38/8,78 2. Hrólfur frá Hrólfsstöðum, knapi Ragnar Ágústsson, 8,50/8,72 3. Kmmmi frá Geldingaholti, knapi JónB.Olsen, 8,55/8,71 4. Skundi, knapi Sigurður Sigurðar- son, 8,49/8,69 5. Stóri-Rauður frá Hrútsholti, knapi Leó Amarson,8,48/8,63 6. Birta frá Hvolsvelli, knapi Birgitta D. Kristinsdóttir, 8,47/8,59 7. Djákni frá Búðarhóli, knapi Jón P. Sveinsson, 8,46/8,58 8. Númi frá Miðsitju, knapi Erling Sigurðsson, 8,48/8,57 9. Sólon frá Stykkishólmi, knapi Vign- ir Jónasson, 8,47/8,49 10. Hrafnar frá Hindisvík, knapi Kristján Magnússon, 8,36/8,44 Tölt 1. Sigurbjörn Bárðarson og Oddur frá Blönduósi, 7,57/7,88 2. Sævar Haraldsson og Glóð frá Hömiuholti, 6,93/7,59 3. Birgitta D. Kristinsdóttir og Birta frá Hvolsvelli, 7,10/7,46 4. Ragnar Ágústsson og Hrólfur frá Hrólfsstöðum, 6,40/7,19 5. Fríða H. Steinarsdóttir og Hjörtur frá Hjarðarhaga, 6,63/7,03 6. Hinrik Þ. Sigurðsson og Valur frá Litla-Bergi, 6,50/6,77 Skeið 150m 1. Þormóður rammi frá Stokkhólma og Logi Laxdal, 13,16 2. Neisti frá Miðey og Sigurbjöm Bárðarson, 13,88 3. Ölver og Sigurður V. Matthíasson, 14,03 4. Tangó frá Lambafelli og Logi Laxdal, 14,03 5. Gunnur frá Þóroddsstöðum og Bjami Bjamason, 14,09 Skeið 250m 1. Ósk frá Litla-Dal og Sigurbjöm Bárðarson, 21,48 2. Hraði frá Sauðárkróki og Logi Laxdal, 21,50 3. Þoka frá Hörgslandi og Daníel Jónsson, 21,50 4. Óðinn frá Búðardal og Sigurbjöm Bárðarson, 21,63 5. Brynjar frá Árgerði og Sveinn Ragnarsson, 22,30 Fljúgandi skeið 1. Hnoss frá Ytra-Dalsgerði og Þórður Þorgeirsson, 7,58 2. Framtíð frá Runnum og Sveinn Ragnarsson, 7,97 3. Leistur frá Leirum og Ragnar Ágústsson, 8,04 4. Óðinn frá Búðardal og Sigurbjöm Bárðarson, 8,09 5. Funi frá Sauðárkróki og Erling Sig- urðsson,8,15 Sætur sigur hjá Sigurbimi og Valíant í B-flokki gæðinga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.