Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Qpinberri heimsókn Li Pengs, forseta kínverska þingsins , hingað til lands lýkur í dag Óvænt lieini- sókn á heim- ili í Gyðufelli Opinberri heimsókn Li Pengs, forseta kín- verska þingsins, lýkur í morgunsárið í dag, en hann hefur dvalið hér á landi síðan á — ■ ■ 7 laugardag. Þingforsetinn kom víða við í Is- landsheimsókn sinni, átti meðal annars fund ----------—--------------------- með forseta Islands á Bessastöðum og for- sætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. -7------------------------------ Ovæntust var þó heimsókn Pengs og eigin- konu hans á heimili í Gyðufelli í Reykjavík á sunnudagsmorgun. ÞINGFORSETINN kom hingað til lands kl. hálfníu á laugardags- morgun, þar sem tekið var á móti honum af Guðmundi Árna Stefáns- syni, starfandi forseta Alþingis, í forföllum Halldórs Blöndals. Nokkur hópur kínverja tók á móti Li Peng og eiginkonu hans við komuna til landsins, en með þing- forsetanum í för er tíu manna sendinefnd auk fjölmargra aðstoð- armanna. Síðdegis á laugardag bauð Olaf- ur Ragnar Grímsson, forseti ís- lands, til fundar að Bessastöðum og um kvöldið bauð Davíð Oddsson forsætisráðherra til fundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnar- götu og áttu eiginkonur þeirra, Zhu Lin og Ástríður Thorarensen, þá einnig fund. Dagskráin á sunnudag hófst með býsna óvenjulegum hætti, því í morgunsárið sóttu sóttu kín- versku þingforsetahjónin heim Arnþór Helgason, formann Kín- versk íslenska menningarfélagsins, heim í Tjarnarbólið á Seltjarnar- nesi. Voru þar rædd menningar- samskipti landanna. „Þetta var heilmikið tilstand, fjöldi lögreglumanna og embættis- manna, en heimsóknin fór hið besta fram,“ sagði Arnþór við Morgunblaðið. Hann segir að þess hafi verið minnst að senn séu 50 ár liðin frá því ísland og Kína tóku upp samstarf á sviði menningar- mála. Talið hafí einnig borist að öðru, sér í lagi almannatrygging- um. „Li Peng minntist á að forseti Islands hefði mjög mært íslenska tryggingakerfíð og því hafði hann mikinn áhuga á að ræða þau mál nánar. Sérstaklega vildi hann fræðast um kjör fatlaðra, líklega af því að ég er blindur," sagði Arn- þór. Eftir heimsóknina á Seltjarnar- nesið lá leiðin í Breiðholtið, þar sem búa hjónin Heiðar M. Guðna- Morgimblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, taka á móti Li Peng og eiginkonu hans í Ráðherrabústaðnum. ■ :'ámiÁi Li Peng, forseti kínverska þingsins, og kona hans, Zhu Lin, skoðuðu sig um við Geysi í Haukadal í gær. son og Þórdísi Bjarnleifsdóttur í Gyðufelli 8. Heiðar og Þórdís búa þar í þriggja herbergja íbúð ásamt tveimur börnum sínum og vildu hinir kínversku gestir fá tækifæri til að sjá íslenskt alþýðuheimili með eigin augum og ræða við Is- lendinga um daglegt líf þeirra. Stóð heimsóknin í Gyðufellið í um klukkustund og var öll umferð um götuna stöðvuð af lögreglu á þeim tíma. Komust íbúar götunnar hvorki lönd né strönd á meðan. Miðdegis á sunnudag átti þing- forsetinn einkafund með starfsliði sendiráðs Kína og Kínverjum bús- ettum á Islandi og sótti síðan heim Islenska erfðagreiningu, þar sem fulltrúi fyrirtækisins tók á móti gestunum og kynnti þeim starf- semi fyrirtækisins. Ekki varð af komu Li Pengs í Alþingishúsið, en um kvöldið sótti hann kvöldverðarboð forseta Ai- þingis í Perlunni ásamt eiginkonu sinni og sendinefnd. Gærdaginn nýttu kínversku gestirnir til skoðunarferða um landið, sóttu meðal annars heim Gullfoss og Geysi, auk Þingvalla og Nesjavalla. Lýkur heimsókn hans í dag með kveðjuathöfn á Keflavíkurflugvelli kl. 9.50. Segja mótmælin hafa borið árangur Mótmælendur gengu fylktu liði frá Austurvelli og vestur að Hótel Sögu þar sem þeir stilltu sér upp með skilti sem á stóð að mannréttindi væru án landamæra. NOKKUR hundruð manns sóttu mótmælafund Amnesty Inter- national og ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna auk fleiri samtaka á Austurvelli síðdegis á sunnudag vegna heimsóknar Li Pengs og sendinefndar kínverska þingsins í Alþingishúsið í boði for- seta Alþingis. Áætlað var að kínverski þingfor- setinn kæmi í Alþingishúsið kl. 16.45 og var viðbúnaður lögreglu talsverður kringum húsið, til að mynda hafði hálfur Austurvöllur verið girtur af, eða fram að stytt- unni af Jóni Sigurðssyni. Fundur mótmælenda átti að hefjast kl. 16, og var fólk tekið að safnast saman upp úr kl. 14, en skömmu fyrir kl. 15 barst tilkynning frá Alþingi þar sem skýrt var frá því að kínverska sendinefndin sæi sér ekki fært að koma í Alþingishúsið. I tilkynningu frá Guðmundi Árna Stefánssyni, starfandi forseta Alþingis í forföllum Halldórs Blöndals, kom fram að af þessum sökum yrði ekki af fyrirhuguðum fundi hans og öðrum fulltrúum Al- þingis með Li Peng. „Það eru starfandi forseta Alþingis von- brigði að ekki geti orðið af fundin- um,“ sagði ennfremur í tilkynning- unni. Atburdanna á Torgi hins himneska friðar minnst Þrátt fyrir þetta hófst útifundur- inn á Austurvelli á tilsettum tíma og hóf Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri íslandsdeildar Amnesty Intemational, fundinn með því að skýra frá ákvörðun Li Pengs. Sagði hún líklegt að mót- mælafundurinn hefði með þá ákvörðun að gera, en bað viðstadda engu að síður að minnast ástands mannréttindamála í Kína og þeirra sem sem fórnað hefðu lífi sínu í baráttunni fyrir mannréttindum eða sætu í haldi vegna skoðana sinna. Fjölmargir aðrir tóku til máls, einstaklingar úr ýmsum samtök- um, og minntust fjölmargra sem enn eru í haldi yfirvalda vegna at- burðanna á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Var sá háttur hafður á að svartur borði var bund- inn fyrir munn hvers ræðumanns eftir að hann hafði lokið máli sínu, sem tákn um tjáningarfrelsið. Mótmæltu við Hótel Sögu Þegar formlegri athöfn var lokið á Austurvelli gengu mótmælendur svo fylktu liði að Hótel Sögu, þar sem Li Peng og kínverska sendi- nefndin dvaldi meðan á Islands- heimsókninni stóð. Þar var komið fyrir stórum borða með skilaboðum á ensku um að mannréttindi ættu sér engin landamæri. Lögregla hafði talsverðan við- búnað við Hótel Sögu og munu lög- reglumenn hafa verið allt að 50 talsins. Geirjón Þórisson, yfirlög- regluþjónn, sagði Morgunblaðinu að lögreglan hefði talsverðan við- búnað þar sem margir erlendir gestir sæktu nú Island heim. Hann staðfesti að lögreglumönnum hefði verið fjölgað við Hótel Sögu eftir að ljóst væri að mótmælendur væru á leið þangað, en tók fram að allt hefði farið friðsamlega fram og án vandræða. Skipuleggjendur mótmælanna voru ánægðir með hvernig til tókst. Katrin Júlíusdóttir, varafor- maður Ungra jafnaðarmanna, og Björgvin Guðmundsson, formaður Heimdallar, sögðu að mótmælin hefðu borið tilætlaðan árangur með því að Li Peng hætti við fyrirhug- aða heimsókn sína í Alþingi. „Við fengum upplýsingar um að hann væri hættur við að koma skömmu fyrir klukkan þrjú,“ sagði Katrín, en þá þegar hafði nokkur hópur fólks safnast saman á Aust- urvelli. Hún sagðist telja að þær fréttir hafí dregið nokkuð úr að- sókn á mótmælin, en þó hafi fjöl- margir séð sér fært að mæta. „Við erum geysilega ánægð með hvern- ig tókst tíl,“ sagði hún. Björgvin sagðist telja að sigur mótmælenda fælist einkum í því að hafa meinað kínverska þingforset- anum aðgang að Alþingi. „Við gerðum honum grein fyrir því að fylgst er með störfum hans á Is- landi eins og annars staðar í heim- inum. Ég tel því að þetta séu góð tíðindi fyrir baráttuna fyrir mann- réttindum," sagði hann. „Li Peng kemur hér í boði Al- þingis og það að hann hættir við heimsókn í þingið sýnir að okkar j málstaður hefur náð eyrum hans. Því er þetta ekkert annað en stórs- igur fyrir okkur,“ bætti Katrín við. Breið samstaða myndaðist um mótmælin og Katrín og Björgvin sögðu að um sérlega ánægjulegt samstarf hefði verið að ræða. „Mannréttindamál eru án allra landamæra, líka pólitískra, og skoðanir á þessari heimsókn voru hinar sömu, hvar í flokki sem menn standa. Þess vegna stóðu allir heilshugar að þessum aðgerðum frá fyrstu mínútu," sögðu þau enn- fremur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.