Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 60
)0 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 I DAG MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Úr dagbók lögreglunnar Annasöm helgi vegna opinberra heimsókna HELGIN var nokkuð annasöm hjá lögreglu, einkum vegna mikils fjölda opinberra heimsókna í og við höfuðborgina. Umferðarmálin Ekið var á 7 ára dreng á reiðhjóli í Barmahlíð við Reykjahlíð síðdegis á föstudag. Hann hlaut minniháttar meiðsli. Bifreið var ekið á ljósastaur á Sævarhöfða á föstudagskvöldið. Ekki urðu slys á fólki við óhappið en bifreiðin og staurinn eru mikið skemmd. Ungur ökumaður var fluttur á slysadeild eftir að hafa ekið bifreið sinni aftan á vörubifreið á Miklu- braut við Grensásveg síðdegis á laugardag. Ökumaðurinn hafði ver- ið fullupptekinn við að tala í far- ,síma og tók því ekki eftir að bif- reiðin fyrir framan hann var kyrrstæð. Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir árekstur tveggja bifreið á Breiðholtsbraut við Suður- landsveg á laugardagskvöldið. Meiðsli eru ekki talin alvarleg. Þá varð bflvelta á Vesturlands- vegi við Skálatún aðfaranótt sunnu- dags. Tveir piltar voru fluttir á slysadeild. Ökumaðurinn er grun- aður um ölvun við akstur. Fór inn í sjúkrabfl í óleyfi Tilkynnt var um innbrot á heimili á Vitastíg að rnorgni föstudags. Farið hafði verið inn um opinn glugga og sjónvarpi og ýmsum smáhlutum stolið. Þegar neyðarbíll slökkviliðs var að sinna veikum aðila í Bankastræti á föstudagskvöld gerðist einn sam- borgari svo óforskammaður að fara inn í sjúkrabílinn. í fyrstu var talið að einhverju hefði verið stolið sem síðan reyndist ekki vera. Karlmað- ur sem grunaður er um verknaðinn var handtekinn skömmu síðar af lögreglu og færður á lögreglustöð. Ekki er vitað hvaða erindi maður- inn átti inn í sjúkrabflinn. Manni og barni hrint í Tjörnina Maður réðst að konu með kúbeini við skemmtistað í Grafarvogi að morgni laugardags. Konan kenndi til eymsla í baki eftir árásina. Þá var ungur karlmaður handtekinn eftir að hann hafði hrint manni með barn í fanginu í Tjörnina. Hinn handtekni gat litlar skýringar gefið á athæfi sínu. Málefni barna og ungmenna Hinn 1. september ár hvert breytist útivistartími barna og ung- menna. Lögreglan leggur mikla áherslu á að foreldrar og aðrir for- ráðamenn virði reglur um útivist, börnum þeirra til hagsbóta. Að venju hafði lögreglan eftirlit með þessum málum. Astand var gott í flestum hverfum en þó ekki öllum. Eitthvað var um brot á þessum reglum í vesturbænum að þessu sinni. Þá voru ungmenni send til síns heima í Mosfellsbæ. Annað Hópur borgara hafði mótmæla- stöðu á Austurvelli síðdegis á sunnudag vegna heimsóknar for- seta kínverska þingsins. Hópurinn gekk síðan að Hótel Sögu og tók sér stöðu á Hagatorgi í samræmi við tilmæli lögreglu. Afmælistilboð Velourgallar, sloppar, satín-náttfatnaður 30% afsláttur fram á laugardag Ath. opið á laugardögum. y&e^/umar, ylu&turoeri/, Háaleitisbraut 68, sími 553 3305. Hef flutt aðstöðu mína frá Mætti — sjúkraþjálfun ehf. í sjúkraþjálfunina St/rk að Stangarhyl 7 í Reykjavík. Þar sé ég bæði um einstak- lings- og hópþjálfun. 5TYBKUB . , , rn177rft Stangarhyl 7, 110 Reykjavík Timapantamr i sima 5877750. simi: 5877750, fax: 5877752 Erna Kristjánsdóttir lögg. sjúkraþjálfári Frábær árangur Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Hringdu nuna Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. ""’’ Einkatímar • sími 694 5494 «Námskeið VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Sama vegalengd - eða hvað? MIG langar að ræða aðeins um fjarlægðarskyn, hug- myndasmíð, þ.m.t. gerð auglýsinga, hönnun merkja og fleira. Fyrir löngu bjó maður nokkur handan fjarðar við kaupstað. Til að komast í kaupstaðinn, þurfti hann að róa á báti yf- ir fjörðinn. Einhvern tím- ann þegar hann var í kaupstaðnum spurði ein- hver þennan mann hvað væri langt frá bænum hans og til kaupstaðarins. Hann vissi það. En þá spurði ein- hver gárungi hvað væri langt til baka. Þá sagði maðurinn: Ja, það veit ég ekki, það hefur aldrei verið mælt. Mér datt þessi saga í hug vegna þess að það eim- ir enn eftir af þessu þegar hringt er að sunnan út á landsbyggðina. Tvö dæmi: Eitt sinn var hringt í kon- una mína, sem er þýsk, og henni tjáð að hún ætti pakka á Tollstofunni frá Þýskalandi og spurt hvort hún gæti sótt hann. Það var ekki spurt hvort hún gæti beðið einhvem að sækja hann, sem hefði verið eðli- legra. Annað dæmi: Maður nokkur, sem á heima hér, var búinn að bíða lengi eftir kalli frá lækni að sunnan. Kallið kom á fímmtudegi kl. 10 fyrir hádegi og var hann spurður hvort hann gæti mætt kl. 11 sama dag. Það er svo skrýtið að það er jafnlangt suður, eins og að sunnan. Tvær sjónvarps- augiýsingar frá tóbaks- vamanefnd hafa slegið öll met. Þegar kýrnar á Ind- landi leysa vind myndast gas, sem hefur áhrif á lofts- lagið. Frelsarinn breytti vatni í vin, en tóbaksvarna- menn ganga feti framar, þeir breyta „aftansöng“ og þvagi í ósýnilegan tóbaks- reyk. Óskar Bjömsson, Neskaupstað. Bensínlækkun olíufyrirtækjanna EG varð djúpt snortinn þegar ég heyrði fréttina um 30 aura bensínlækkun olíu- félaganna. Ef ég ætti tank, sem tæki 1.000 lítra, myndi ég fylla hann og spara mér þannig 300 kr. Það nægir fyrir 2 stunda gjaldi í stöðu- mæli. Er að furða þó ég sé með tárin í augunum vegna þessarar rausnarlegu lækkunar á bensíni. Eg fullvissa olíufélögin þó um það að ég brosi gegnum tárin. Með hjartans þakklæti. Guðmundur Jónsson, söngvari. Ég spyr HVAÐ er í gangi í þessu litla þjóðfélagi okkar? Fyrrverandi biskup skammar þjóðina fyrir það að við viljum ekki taka þátt í þessari óheyrilegu eyðslu í sambandi við kristnitöku- hátíð. Við vildum heldur iáta hundrað milljóna í það sem er nauðsynlegra, svo sem sjúkrahús, svo ekki þurfi að setja fóik sem er sjúkt út á götuna og núver- andi biskup kom og fram í sjónvarpi og skammaði fólk fyrir ógurlega eyðslusemi (en gerir það sama). Er samræmi í þessu? Eðli sínu samkvæmt átti hátíðin að vera einfaldari og enginn hefði sagt orð, allir glaðir. Það er mér áhyggjuefni að biskupar landsins skuli vera að skammast í sjón- varpinu. Eitt barnabarnið mitt, sem sat hjá mér er fréttir vom, spurði: Af hverju er biskupinn svona reiður, er hann ekki prest- ur? Allar kirkjur landsins eiga að vera sjálfstæðar og fólkið á að velja sjálft, en ekki fært inn í einn sérstak- an trúarsöfnuð. Hvar er frelsið? Áhyggjufull amma. Er Illugi að hætta? GUÐRÚN hafði samband við Velvakanda lýsti yfir áhyggjum sínum yfir því, að Illugi Jökulsson væri að hætta hjá Ríkisútvarpinu. Hún sagðist bíða eftir þátt- unum hans á hveiju sunnu- dagskvöldi. Hann sé frá- bær útvarpsmaður og þátt- urinn hans einstakur. Mannleg samskipti í grunnskólana ÞAÐ vantar alveg inn í grunnskólana kennslu í mannlegum samskiptum. Það þyrfti að kenna ungl- ingunum almenna kurteisi. Þessu er mjög ábótavant í þjóðfélaginu. Flestir for- eldrar eru útivinnandi og geta því lítið sinnt þessum hluta uppeldisins og ég held það væri ráð að reyna að koma þessu inn sem kennslugrein í gmnnskól- um. Hafliði Helgason. Tapað/fundið Nýr Sagem GSM-sími tapaðist NÝR Sagem GSM-sími tapaðist miðvikudaginn 30. ágúst sl. sennilega hjá Ibúðalánasjóði, þó ekki víst. Símans er sárt saknað af eigandanum, sem var nýbúinn að kaupa hann. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa sam- band við Helgu í síma 552- 7479 eða 525-4460. Fundar- laun. Hver á sófann? ÞAÐ kom Habitat-sófí til viðgerðar í júlí sl. í Bólstr- un Óskars. Eigendurnir skildu ekki eftir neitt núm- er og nú vill sófinn komast heim. Ef einhver kannast við að eiga sófann góða, vinsamlegast hafið sam- band í síma 587-0287. Dýrahald Dökkjarpur hestur hvarf úr Mosfellsbæ DÖKKJARPUR hestur, sem hvarf úr sjúkragerðinu í Mosfellsbæ á bilinu 18. júlí-21. júlí sl. er enn ófund- inn. Frostmerking er áber- andi, öfugt sjö. Hann er 13 vetra og mjög gæfur. Hans er sárt saknað. Ef einhver veit um ferðir hans eða hvar hann er niðurkominn, er sá hinn sami beðinn að hafa samband við Unnar í síma 587-1808, Örn í síma 866-5285 eða Guðrúnu í síma 866-4640. SKÁK Umsjón llelgi Áss Grótarsson Hvítur á leik. STAÐAN kom upp á Pent- amedia-stórmeistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Kelambakkem á Indlandi. Hvitt hafði indverski stór- meistarinn Dibyendu Bar- ua (2.502) gegn landa sínum Devaki Prasad (2.431). 20. Bxh6! gxh6 21. Hxh6 De5 22. Hg6+ Kf7 23. Dh7+ Ke8 24. Hdl Bc8 24. ...Hf7 bauð ekki heldur upp á haldbæra vöm sökum 25. Hg8+ Ke7 26. Dh4+. 25. Hg7 og svart- ur gafst upp. Svæðamót Norðurlanda hefst 5. sept- ember kl. 17 í félagsheimili Taflfélagsins Hellis í Þönglabakka 1, Mjódd. COSPER Minntu mig á að fara að hringja i slökkviliðið. Víkverji skrifar... VERSLUN ein hér í borg, verslun sem Víkverji hafði reyndar ekki heyrt af áður, auglýsti fyrir helgina tilboð á bók- um. Allar bækur yrðu seldar á 50 krónur á auglýstum tíma um þessa helgi og þá næstu. Verið væri að rýma til fyrir nýjum vörum. Vík- verji nennir yfirleitt ekki að eltast við slík tilboð en lét til leiðast að fara með konu sinni í laug- ardagsbíltúr til að athuga málið þar sem sérstaklega voru auglýst- ar ákveðnar bækur sem vantaði inn í heimilissafnið og allar á 50 krónur. Að sjálfsögðu voru allar Ferðafélagsbækurnar löngu búnar þegar Víkverji kom inn í verslun- ina, hálfri annarri klukkustund eft- ir að opnað var á fyrsta degi til- boðssölunnar, en sagt að hugs- anlegt væri að finna Laxness og Árna Óla en þeim hefði bara verið dreift um bókastaflana. - En við eigum Ferðafélagsbækurnar til úti í bílskúr og þú skalt bara koma aftur um næstu helgi, sagði kaup- maðurinn. Víkverji hafði sem sé fallið fyrir lélegri auglýsingabrellu og látið teyma sig á asnaeyrunum milli borgarhverfa. Og hann hefur ekki hugsað sér að láta kaupmann- inn ginna sig aftur inn í þessa búð. I versluninni var töluvert að gera, viðskiptavinir voru að fara í gegnum bókastaflana, en í þeim virtust eingöngu vera notaðar bækur þótt það kæmi nú ekki fram í umræddri auglýsingu, og fundu greinilega ýmislegt áhugavert. Ekki hafði Víkverji geð í sér til þess að skoða bækurnar, hann var móðgaður. Og hann varð var við að það voru fleiri fyrrverandi hugsan- legir viðskiptavinir. xxx ESSI söluaðferð verslunarinn- ar minnir Víkverja á dönsku ferðaskrifstofuna sem auglýsti ferð við frábæru verði. Fólkið flykktist að og hringdi. En því miður, ferðin var strax uppseld. Enda var aðeins eitt sæti í boði! Hins vegar var starfsfólkið með margar aðrar áhugaverðar ferðir fyrir fólkið sem kom eða hringdi: Má ekki bjóða þér í staðinn aðra frábæra ferð á frábæru verði. UR því að Víkverji er byrjaður að nöldra finnst honum rétt að gera athugasemd við vinnu- brögð við viðgerðir á undirgöngun- um undir Reykjanesbraut við Mjóddina. Byrjað var að brjóta upp annan stigann Reykjavíkurmegin í vor eða síðasta vetur og í allt sumar hefur verið skilti sem segir að lok- að sé fyrir umferð um stigann. Víkverji gengur þarna oft um og hefur aldrei tekið mark á þessu banni. Nú er aftur byrjað á við- gerðinni og búið að brjóta tröpp- urnar en að því er virðist með sömu hangandi hendinni. Skilið er við allt opið og meira að segja stafla af litlum múrsteinum sem henta vel til að grýta saklaust fólk í göngunum á dimmum haust- kvöldum. Ekki veit Víkverji hver ber ábyrgð á þessu sleifarlagi, Vega- gerðin, Reykjavíkurborg, Kópa- vogsbær eða verktakar eða allir en viðkomandi aðilar eru hér með hvattir til að ljúka verkinu hið snarasta áður en slys hljótast af.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.