Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.09.2000, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ Jón Yiktor Gunn- arsson Islands- meistari í skák SKAK Félagsheimili Kópavogs LANDSLIÐSFLOKKUR 23. ágúst - 3. sept. 2000 JÓN Viktor Gunnarsson sigraði stór- meistarann Þröst Þórhallsson í úr- slitaeinvíginu á Skákþingi íslands eftir afar spennandi keppni og er því skákmeistari Islands árið 2000. Þröstur sigraði í fyrstu skák einvígis- ins og hélt forystunni með jafnteflum í næstu tveimur skákum. I fjórðu skákinni hafði Jón Viktor svart og upp kom mjög spennandi og flókin staða. Það kom í Ijós, að Jón Viktor hafði séð lengra en Þröstur í flækjun- um og fékk mjög vænlega stöðu. Jón Viktor sigraði síðan eftir hróksenda- tafl í 62 leikjum. Staðan var því jöfn, 2-2, eftir fjórar skákir. Þá var um- hugsunartíminn styttur og tefldar tvær atskákir. Þröstur náði aftur for- ystunni í einvíginu með sigri í fyrri skákinni eftir snarpa sókn og jafn- tefli í þeirri síðari mundi tryggja hon- um titilinn. Jón Viktor lagði hins veg- ar allt í sölumar í seinni skákinni og eftir ævintýralega riddarafóm, sem margir efuðust þó um að stæðist, tókst honum að flækja taflið. Hann náði í kjölfarið að tryggja sér yfir- burðastöðu og mátaði Þröst í 35. leik. Enn var því staðan jöfn og nú þurfti að bæta við tveimur hraðskák- um til að fá úrslit í einvíginu. Jón Viktor náði í fyrsta skipti forystunni í einvíginu með sigri í fyrri skákinni og með því að halda jöfnu í þeirri síðari tryggði hann sér titilinn skákmeist- ari íslands 2000. Lokaúrslitin urðu 4i/2-3i/2 Jóni í vil. Þetta er í fyrsta skipti sem Jón Viktor vinnur þennan titil, en hann er 20 ára. Reyndar var það ljóst í upphafi, að meistaratitlin- um mundi hampa skákmaður sem ekki hafði borið hann áður, því eng- inn hinna 16 skákmanna sem hófu keppni hafði orðið Islandsmeistari. Það má segja, að þetta hafi verið mót ungu mannanna, því í þriðja sæti, á eftir þeim Jóni Viktori og Þresti, kom hinn 17 ára gamli Stefán Kristjánsson. Hann sigraði Jón Garðar Viðarsson 3-1 í einvígi um þriðja sætið. Stefán sýndi að hann er í stöðugri framför og árangur hans samsvarar áfanga að alþjóðlegum meistaratitli. Fara þarf yfir hvort fýrirkomulag mótsins standi í vegi fyrir því, að sá árangur hljóti viður- kenningu FIDE. Þess má geta, að Stefán Kristjánsson var nýlega val- inn sem sjötti maður í Ólympíulið ís- lands í skák Teflt var eftir nýju fyrirkomulagi. í stað þess að allir tefli við alla var mótið með sams konar fyrirkomulagi Jón Viktor Gunnarsson í úrslita- viðureigninni gegn Þresti Þór- hallssyni. og heimsmeistarakeppni FIDE, þ.e. útsláttarkeppni. Mótið var teflt í Félagsheimili Kópavogs við einhverjar bestu að- stæður, sem menn muna. Það átti við um aðstöðu keppenda og áhorfenda, svo og alla umgjörð mótsins. Við skulum nú sjá báðar atskákim- ar úr einvígi Jóns Viktors og Þrastar, svo að lesendur geti séð þá mögnuðu baráttu, sem þar átti sér stað. Hvítt: Þröstur Þórhallsson Svart: Jón Viktor Gunnarsson Úrslitaeinvígi, fyrri atskák Pirc-vörn (breytt leikjaröð) 1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Bg5 h6 6. Be3 0-0 7. h3 c6 8. Dd2 Kh7 9. g4 b5 10. g5!? - Þresti liggur mikið á í sókninni og gefur sér ekki tíma til að leika hinum eðlilega leik, 10. Bd3. 10. - b4 11. gxf6 bxc3 12. Dxc3 exf6 13.0-0-0 d5 14.e5f515. h4 Be6 16. Bd3 Dd7? Nauðsynlegt var fyrir svart að stöðva framrás hvíta h-peðsins með 16. -h5! 17. h5! Hh8 Svartur getur ekki leikið 17. - g5, vegna 18. Bxg5! hxg519, Rxg5+ Kg8 (19. - Kh6 20. Dd2) 20. h6 Bh8 21. Hdgl og hvítur vinnur. 18. hxg6 fxg6 19. Hdgl Bf7 20. Dd2 h5 21. Hh2 Kg8 22. Rh4 c5!? Jón Viktor reynir að flækja taflið, í DAG er besti vinur minn Bessi Bjamason, leikari, sjötugur. Bessi fæddist og ólst upp í Sogamýrinni í Reykja- vík, yngstur af fjórum systkinum. Foreldrar hans vom þau Guðrún Snorradóttir og Bjami Sigmundsson, bílstjóri. Kunnugir hafa sagt mér, að á hans heima- slóðum I æsku hafi Bessi fljótt orðið vin- sæll meðal barna og unglinga í hverfinu, ekki síst vegna ýmissa prakkarastrika og leikaraskapar sem hann hafði í frammi og má segja að þar hafi hans létta og skemmti- lega lund mótast þegar í æsku, sem hefur nýst honum svo vel í leiklist- inni. Bessi útskrifaðist frá Verslunar- skóla íslands vorið 1949. Hann sótti Leikklistarskóla Lárusar Pálssonar síðasta veturinn sinn í Verslunar- skólanum, en síðan tók hann inntöku- próf í Leiklistarskóla Þjóðleikhúss- ins strax og hann tók til starfa og lauk námi þar vorið 1952 með mikl- um ágætum, en jafnframt námi sínu við leiklistarskólann lék hann í mörg- um leikritum á fjölum Þjóðleikhúss- ins. Til gamans vil ég rifja það upp að prófverkefni Bessa voru Lenni í „Mýs og menn“ eftir Steinbeck og Hallvarður í „Maður og kona“ eftir Jón Thoroddsen. Þessi hlutverk höf- um við ekki séð Bessa leika. Fyrsta hlutverk sitt lék Bessi á nemenda- móti Verslunarskólans 1948, en það var „Láki trúlofast". Að námi loknu réðst Bessi á nem- endasamning hjá Þjóðleikhúsinu í eitt ár og strax á eftir á fastan samn- ing og hefur verið fastráðinn við Þjóðleikhúsið allar götur síðan og einn af aðalleikurum þess alla tíð eða þar til hann kaus að hætta árið 1989, er hann hafði náð tilskilinni starfsævi skv. 95 ára reglunni svonefndu. En hann hætti alls ekki að leika heldur hefur hann leikið fjölmörg hlutverk síðan bæði í Borgarleikhúsinu, Loftkastalanum og Þjóðleikhúsinu og muna víst allir sem séð hafa eftir honum í „Fjórum hjörtum“, „Maður í mislitum sokkum“ og nú síðast í „Jónsmessunæturdraumi" í Þjóð- leikhúsinu. Það er ábyggilega ekki á neinn hallað þótt ég fullyrði að Bessi sé einn alvinsælasti leik- ari sem þjóðin hefur átt og enginn annar leikari hefur dregið jafnmarga áhorfendur að leikhús- inu og hann, enda er hann mjög eftirsóttur og margur er sá leik- stjórinn sem telur verki sínu borgið hafi hann fengið Bessa til liðs við sig. Bessi er langvinsæl- asti bamaleikarinn og hefur hann leikið í fjölda bamaleikrita, sem hafa slegið hvert aðsóknarmetið af öðru. Má þar nefna „Stóra Kláus og Litla Kláus“, en hann hefur leikið þá báða, þann litla 1952 og þann stóra 1971, ræningjana Jónatan (1960) og Kasper (1974) í „Kardemommubænum“, Mikka ref í „Dýrunum í Hálsaskógi“, Aldinborr- ann í „Ferðinni til tunglsins" og fleiri og fleiri mætti telja. Sum þessara verka hafa verið gefin út á hljómplöt- um og snældum og era sívinsælar af- mælis- og jólagjafir til bamanna. Þá má nefna nokkur þeirra eftir- minnilegu hlutverka sem Bessi hefur leikið í gamanleikritum, eða hver sem séð hefur man ekki eftir honum sem Gvendi í „Skugga-Sveini“, Palv- ek og Kovarik í „Góða dátanum Svejk“, Hrólfi í „Hrólfi“, Peter í „Hunangsilmi“, Gvendi snemmbæra í „Nýjársnóttinni“, Prinsinum í „Hvað varstu að gera í nótt“, Argan í „ímyndunarveikinni“, George í „Á sama tíma að ári“, Sveyk í „Sveyk“ í síðari heimsstyrjöldinni og Harpag- on í „Aurasálinni" svo nokkur séu nefnd. En Bessi hefur ekki bara leikið í bamaleikritum og gamanleikritum. Varla hefur sá söngleikur verið sett- ur á svið í Þjóðleikhúsinu að Bessi hafi ekki verið þar í aðalhlutverki eða berandi hlutverki. Má þar minna á Jamie í „My Fair Lady“, Litli kall í „Stöðvið heiminn", Christopher Mahn í „Lukkuriddaranum“, Micha- el í „Ég vil! Ég vil!“, Skemmtistjór- ann í „Kabarett“ og Natan Detroit í „Gæjum og píum“, allt eftirminnileg hlutverk þar sem reyndi á hæfileika Bessa til hins ýtrasta, bæði sem leik- ara, söngvara og dansara. Já, vel á minnst, söngvari! Bessi tók einnig þátt í mörgum óperettum, meðal þeirra „Sumar í Týról“, „Kysstu mig Kata“, „Betlistúdent- inn“, „Sardasfurstinnan", og meira að segja óperam því hann var í „Töfraflautunni!“ 1956 og eitt aðal- hlutverkið í óperanni „Mikado" hjá íslensku óperanni 1983. Ekki nóg með það, Bessi hefur dansað ballett, því hann sló í gegn sem dr. Coppelíus í ballettinum Coppelía árið 1974. En Bessi hefur sýnt og sannað, að hann er ekki aðeins frábær gaman- leikari, söngvari og dansari, alvarleg og átakamikil hlutverk henta honum engu síður, enda hefur hann tekist á við mörg slík. Eftirminnilegustu hlutverkin af þessari gerð eru t.d. Cliff Lewis í „Horfðu reiður um öxl“, Mick í „Húsverðinum", Perry í ,jUlt í garðinum“, Gústaf í „Hvernig er heilsan?“, Leikarinn í „Náttbólinu“, Tómas í „í öraggri borg“, Gustur í „Gusti“, Viðarhöggsmaðurinn í „Rashomon" og Baddi í „Bílaverk- stæði Badda“. Hér hefur aðeins verið drepið á það helsta sem Bessi hefur afrekað á sviði Þjóðleikhússins, en hlutverk hans þar era nú orðin hátt í 200 og er mér til efs að nokkur annar leikari hafi jafnað það eða gert betur. Allir vita að auk þessa hefur Bessi verið einn af alvinsælustu skemmti- kröftum þessa lands í nær fimm ára- tugi. Áram saman tróðu þeir Bessi og Gunnar (Eyjólfsson) saman upp á skemmtunum úti um allt land og voru svo fádæma vinsælir að með ólíkindum var. Síðar slóst Bessi í hóp með Ragnari Bjamasyni, Ómari Ragnarssyni og fleiram undir nafn- inu „Sumargleðin" og flengdust þeir um landið þvert og endilangt á hverju sumri, en luku síðan vertíð- inni með því að sýna vikum saman á Hótel Sögu. Þetta var mjög vinsæl skemmtun sem margir landsmenn sakna sáran. Þá hefur Bessi leikið í fjölda leik- rita í útvarpi og tekið þátt í skemmti- þáttum á vegum þess alla tíð frá því að hann hóf feril sinn sem leikari. Einnig hefir hann leikið í fjölda sjónvarpsmynda og tekið þátt í ýms- um skemmtidagskrám á vegum sjón- varps og eins og menn muna hefur hann verið þátttakandi í allflestum áramótaskaupum frá upphafi. Einn- ig hafa störf hans að sjónvarps- auglýsingum verið fyrirferðarmikil og aldrei er þess langt að bíða að hann sjáist ekki í einhverri þeirra, enda var hann þátttakandi í fyrstu sjónvarpsauglýsingunni sem gerð var hér á landi. Bessi hefur og leikið í nokkram kvikmyndum, þær helstu era „Skila- boð til Söndra“, „Ryð“, „Ingaló", „Stella i orlofi" og „Niðursetningur- inn“ sem Loftur Guðmundsson gerði 1953. Þá hefur Bessi átt myndarlegan þátt í plötuútgáfu, en hann hefur staðið fyrir útgáfu á barnaleikritum, lesnum bamasögum og ýmsu öðra skemmtiefni á hljómplötum og snældum. Nú mundi margur halda að Bessi hefði nú varla getað komist yfir að gera öllu meira á sinni starfsævi, en öðra nær. Hann tók við starfi gjald- kera Félags íslenskra leikara árið 1954 og gegndi því allt til ársins 1984 eða samtals í 27 ár auk margra ann- arra trúnaðarstarfa lyrir félagið, m.a. sat hann í ýmsum samninga- nefndum, var stjómarmaður í Líf- eyrissjóði leikara ásamt öðram störf- um fyrir félagið. Það má með sanni segja að enginn einn maður hafi lagt eins mikið af mörkum fyrir Félag ís- lenskra leikara og Bessi. Hann er nú heiðursfélagi í Félagi íslenskra leik- ara. Ennþá er ekki allt talið, því Bessi hefur lengst af gegnt ýmsum öðram störfum jafnframt því sem að ofan er getið og yrði of langt að tíunda það allt saman, en þó má nefna að um árabil sá hann um bókhald hjá Landsmiðjunni, en auk þess hefur hann fengist við sölumennsku af ýmsu tagi og fyrir marga aðila, enda eftirsóttur í það starf vegna hæfi- leika sinna á því sviði. Eins og sjá má af þessari lauslegu upptalningu á störfum Bessa Bjarna- sonar er engu líkara, en ég sé að segja frá starfsferli margra manna, svo yfirgripsmikil eru störf hans orð- in. Skýringin á því hvað Bessi hefur komist yfir mikið og margt í sínu lífi er hvað allt leikur í höndunum á hon- um og hvað hann á auðvelt með þetta allt saman og svo líka hvað hann skipuleggur tíma sinn vel, raunar án þess að hafa nokkuð fyrir því. Ætla mætti að samhliða öllu þessu starfi væri nú ekki mikill frítími af- lögu fyrir tómstundaiðju eða að sinna fjölskyldumálum. En það er eins og annað sem Bessi hefur fengist við, honum hefur alltaf tekist að finna tíma til að sinna þessum málum með miklum ágætum og nýtur hann mik- illar ástar barna sinna, stjúpbarna og barnabarna. Bessi stundar og hestamennsku af miklum móð og hefur gert nú í nær fjóra áratugi og virðist ekkert lát ætla að verða á því. Þegar ég hóf störf við Þjóðleikhús- ið kynntist ég Bessa fljótt og tókst með okkur ágætur kunningsskapur, því ljúfmannlegri og skemmtilegri maður í umgengni en Bessi fyrir- finnst varla. En þegar ég tók sæti í stjóm Félags íslenskra leikara með Bessa árið 1967 styrktist okkar kunningsskapur verulega, enda kom BESSI BJARNASON en það dugar ekki til að bjarga mál- um. 23. Rxg6 cxd4 24. Bf4 Rc6! 25. Rxh8 Kxh8 26. Hxg7 - Einfaldara hefði verið að leika 26. De2 Hf8 27. e6! Dxe6 28. Hxh5+ Kg8 29. Hxg7+ Kxg7 30. Be5+ Kg6 31. Dg4+ mát. 26. - Kxg7 27. Bh6+ Kh7 28. Dg5 Bg6 29. Hxh5 Rxe5! 30. Hhl Rxd3+ 31. cxd3 Hc8+ 32. Kbl De6 Það er ekki hægt að benda á rakta vinmngsleið fyrir Þröst í stöðunni, en vörnin er svo erfið, að eitthvað verð- ur að lokum undan að láta. 33. Bf8 Kg8 34. Be7 Kf7 35. Bb4 He8 36. a3 De2 37. Dg3! Dg4 38. Dd6! Df3 39. Hgl Dxd3+ 40. Kal f4 41. Dd7 Kf6 42. Dxd5 De4 43. Dd6 Kg7 44. Dd7 Kh6 45. Bd2 Hf8 46. Dd6 Kg7 47. Bb4 Hf7 48. Bc5 d3 49. Bd4 Kh6 50. Dd8 d2? Svartur hefði getað varist lengur með 50. - De7, þótt það hefði engu breytt um úrslit skákarinnar. í Ijós að við höfðum mjög svipaðar skoðanir á flestum málum og áttum því mjög gott með að vinna saman. Vinátta okkar leiddi til þess að ég hóf að stunda hestamennsku með Bessa og hefur þetta tómstundagam- an fært okkur margar ánægjustund- ir allt til þessa dags. Síðasta áratug höfum við farið í nokkrar meiriháttar hestaferðir t.d. í Emstrur með Bene- dikt Arnasyni og Isólfi Gylfa Pálma- syni og fleirum - í hópi með Flosa Ól- afssyni á Löngufjörur og árið eftir kringum Langjökul og um Leggja- brjót og Gagnheiði með vini okkar Jörgen Berndsen. Við Bessi eram einnig svo lánsamir að hafa sumar- bústaði ekki ýkja langt hvor frá öðr- um og hestana nálægt okkur. Þá höfum við Bessi átt því láni að fagna að fá að vinna saman í allmörg- um leikverkum, ýmist báðir sem leik- arar eða ég sem leikstjóri og ég verð að segja að af fáum leikuram hef ég lært meira en Bessa Bjamasyni. Um marga listamenn gildir það að þeir era aðrir við vinnu að listgrein sinni en í samskiptum við fólk utan vinnustaðar. Þetta gildir ekki um Bessa Bjamason. Bessi er alltaf Bessi hvar og hvenær sem maður hittir á hann. Hann er alltaf í full- komnu jafnvægi, elskulegur í viðmóti og aldrei er húmorinn langt undan. Bessi er mjög hugmyndaríkur og mörgum hugmyndum hans hefur verið hrint í framkvæmd til hagsbóta fyrir leikarastéttina, en ekki síst hafa leikstjórar getað nýtt sér þessa kosti hans í samvinnu við uppfærslu leik- rita sinna og hygg ég að margir þeirra eigi Bessa skuld að gjalda, enda er hann gífurlega eftirsóttur af þeim eins og áður sagði. Bessi er tryggur vinur vina sinna og vinahóp- ur hans er stór, því fólk bókstaflega sækist eftir að vera í félagsskap hans og nægir í því sambandi að minna á hina fjölsóttu og stórbrotnu veislu sem hann hélt vinum sínum fyrir réttum 10 áram. Bessi er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Erla Sigþórsdóttir, en þau giftust 1952, en slitu samvistir árið 1979. Þeim varð þriggja bama auðið, Sigþór fæddur 1952, lést af slysför- um 1970, Kolbrún, ritari, fædd 1954 og Bjarni, verkfræðingur, fæddur 1957. Bamabömin era orðin fimm. Bessi kvæntist Margréti Guðmunds- dóttur, leikkonu, árið 1988, en þá áttu þau að baki átta ára sambúð. Ég vil óska honum og fjölskyldu hans allri innilega til hamingju með þennan afmælisdag og er ég þess fullviss að við eigum eftir að njóta hæfileika hans og listar, glaðværðar hans og vináttu enn um langan aldur. Gfsli Alfreðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.