Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 05.09.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 23 ÚRVERINU Vilhelm Þorsteinsson EA kom til heimahafnar á Akureyri í fyrsta sinn á sunnudag Nýtt flaggskip fiskiskipaflotans FJÖLMENNI fagnaði komu nýs fjölveiðiskips Samherja hf., Vil- helms Þorsteinssonar EA 11, er skipið kom til heimahafnar á Akur- eyri á sunnudag. Þetta er í fyrsta skipti sem Akureyringar fagna komu nýs skips til heimahafnar frá því Baldvin Þorsteinsson EA 10, frystitogari Samheija, kom til Ak- ureyrar árið 1992. Anna Kristjánsdóttir, ekkja Vil- helms Þorsteinssonar, fyrrum framkvæmdastjóra títgerðarfélags Akureyringa og skipstjóra, gaf skipinu nafn en séra Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur á Akureyri blessaði skipið. Þá afhenti Jarle Gjerde, forstjóri Kleven Verft skipasmíðastöðvarinnar í Noregi, Kristjáni Vilhelmssyni, fram- kvæmdastjóra útgerðarsviðs Sam- heija og eins af aðaleigendum fé- lagsins, skipið formlega til eignar. Vinnsla á bæði bolfiski og uppsjávarfíski Vilhelm Þorsteinsson EA er eitt stærsta og glæsilegasta skip ís- lenska fiskiskipaflotans. Það er 79 metra langt, 16 metra breitt, og 5.520 kílówatta aðalvél. Það er búið bæði til nóta- og flottrollsveiða og um borð er fullkominn búnaður til frystingar og vinnslu á bolfíski, síld, loðnu og kolmunna. Frystigeta afla í vinnslu er um 120 tonn á sólar- hring og burðargeta afla til bræðslu um 2.500 tonn. Frystilestir skipsins rúma um 650 tonn af frosnum afla og um 1.200 tonn af fiski í kælitönk- um. Ibúðir eru fyrir 28 manna áhöfn og aðbúnaður allur eins og best verður á kosið. Ganghraði skipsins er 18,2 sjómflur og togkraftur 90 tonn við fullt átak. Áætlaður heild- arkostnaður við nýsmíðina er um 1.500 milljónir króna. Frumhönnun skipsins var í hönd- um starfsmanna Samheija og Skipatækni hf. en Teiknistofa Karls G. Þorleifssonar á Akureyri annað- ist hönnun á vinnsludekki ofl. Skipasmiðastöðin Stocznia Poln- ocna í Gdansk í Póllandi annaðist smíði skrokksins og hófst verkið um mitt síðasta ár. Þar var skipinu hleypt af stokkunum í mars sl. Kleven Verft AS í Ulsteinvik í Nor- egi annaðist framhald smíðinnar. Skipstjórar nýja skipsins verða tveir, þeir Arngrímur Brynjólfsson og Sturla Einarsson en þeir hafa báðir stýrt skipum Samheija um langt árabil. Arngrímur var áður skipstjóri á Þorsteini EA og Baldvin Morgunblaðið/Rúnar Þór Fjölmenni var á Togarabryggjunni á Akureyri þegar Vilhelm Þorsteinsson EA lagðist að bryggju í heimahöfn í fyrsta sinn. Þorsteinssyni EA en Sturla var síð- ast skipstjóri á Akureyrinni EA. Áætlað er að skipið haldi í sína fyrstu veiðiferð í lok næstu viku. Sýnir framsýni og dug í ávarpi sínu á sunnudag óskaði Davíð Oddsson forsætisráðherra Samherja til hamingju með nýja skipið, en jafnframt Akureyringum og þjóðinni allri, enda væri hið nýja skip flaggskip íslenska fiskis- kipaflotans. Hann sagði skipið sýna að enn býr dirfska og framsýni í forystumönnum í íslenskum sjávar- útvegi. „Það er mikil þörf á því að framsýni og dirfska sé sýnd í þess- um undirstöðu atvinnuvegi ís- lenskrar þjóðar, atvinnuvegi sem er þeirrar gerðar að þá honum vegnar vel þá vegnar allri fslensku þjóðinni vel,“ sagði Davíð. EKKI eru til kjarasamningar fyr- ir skip á borð við Vilhelm Þor- steinsson EA að mati Þorsteins Más Baldvinssonar, fram- kvæmdastjóra Samherja hf. Því segir hann að sé ljóst að gera þurfi nýjan kjarasamning fyrir skipið. I skipinu sé veruleg frysti- geta til að vinna loðnu, kolmunna og síld um borð og þvi gefi skipið mikla möguleika á vinnslu á upp- sjávarfiski úti á sjó. Eins séu í skipinu síldarflökunarvélar sem gefi möguleika á að vinna einnig kolmunna og makrfl um borð. Tekið verði tillit til búnaðar Auk þess er í skipinu búnaður til vinnslu á bolfiski, m.a. þorsk- flökunarvél, karfaflökunarvél og Þarf nýja samninga lausfrystir til að frysta meðal annars karfaflök. „Við höfum ósk- að eftir viðræðum við sjómanna- félögin um gerð slíkra samninga en ekki fengið mikil viðbrögð. Við teljum að ef þetta skip á að geta verið undir íslensku flaggi í fram- tíðinni þurfum við að ná sam- komulagi við stéttarfélögin um hvernig á að reka svona skip. Ég hef trú á því að rekstur þessa skips geti gengið ef okkur tekst að semja við stéttarfélögin og að tekið verði tillit til þess búnaðar sem um borð er,“ segir Þorsteinn. Vantar samninga fyrir vinnslu á kolmunna og makríl Að sögn Hólmgeirs Jónassonar, framkvæmdastjóra Sjómanna- sambands Islands, eru til samn- ingar um hluta af þeirri vinnslu sem geti farið fram í hinu nýja skipi, til dæmis á síld og loðnu. Aftur á móti séu til dæmis ekki til samningar fyrir sjómenn um vinnslu á kolmunna og makrfl á sjó. Hann segir að um þetta þurfi að semja við sjómenn eins og ann- að, enda hafi samningar verið lausir frá 15. febrúar síðastliðn- um. Tækni til sigurs - Ráðstefna Nýherja á Hótel Örk 15. september Föstudaginn 15. september efnir IMýherji til ráðstefnu undir yfirskriftinni „Tækni til sigurs" á Hótel Örk í Hveragerði. Þar geta viðskiptavinir Nýherja kynnt sér hvaða lausnir og nýjungar eru i boði til að efla samkeppnishæfni og auka árangur. Á ráðstefnunni verður hægt að kynna sér hinar ýmsu nýjungar innan upplýsingatækninnar því þar munu á annan tug erlendra fyrirlesara ásamt sérfræðingum Nýherja flytja yfir 30 fyrirlestra um ólík efni. í boði verða kynningar á flestu því sem er að gerast í hagnýtingu upplýsingatækni í upphafi nýs árþúsunds. Kynntar eru fjöl- margar nýjungar og má nefna umfjöllun um öryggismál netkerfa, vefverslanir, IBM AS/400 nýjungar, kynningu á EDI/XML lausnum, verslunarlausnir og rafræn viðskipti, IP símstöðvar, SAP, Siebel CRM hugbúnað, LINUX,gagnageymslur,þráðlausar lausnir, Ráðgjöf Nýherja, RS/6000 og PC nýjungar, lófatölvur, Tivoli netumsjónarbúnað, fieiri nýjungar í prentaralausnum og hópvinnulausnir. Nánari upplýsingar og skráning fæst með rafrænni skráningu á heimasíðu Nýherja, www.nyherji.is, með tölvupósti orkin@nyherji.is eða í síma 569 7891. Skráningu lýkur 8. sept. A Stefndu á sigur með lausnum frá Nýherja A, Fáðu beinan aðgang að sérfræðingum ^ Njóttu sveitasælunnar í Hveragerði ^ Bókaðu strax - þátttakendafjöldi er takmarkaður NÝHERJI Borgartún 37 ■ S:569 7700 http://www.nyherji.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.