Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Formaður fþróttakennarafélags fslands telur grunnskóla ekki sinna íþróttakennslu nægilega vel Morgunblaðið/Ásdís Grunnskólar í Reykjavík hafa margir hverjir bannað nemendum sfnum að koma á hlaupahjólum í skólann. Hlaupahjól bönnuð í skólanum Reykjavík MARGIR grunnskólar í Reykjavík banna nemend- um sínum að fara á hlaupa- hjólum í skólana en hlaupa- hjóiin hafa notið mikill vinsælda hjá yngstu kyns- lóðinni í sumar. Arngrímur Viðar Ásgeirsson, for- maður fþróttakennarafé- lags íslands, segir þessa ákvörðun skólayfírvalda vekja upp spumingar um hreyfingu barna almennt því beinlínis sé verið að ýta undir það að skólabörnum sé ekið í skólana. „Er það stefna yfirvalda að börnin séu sem mest keyrð í skólann?" sagði Amgrímur Viðar. „Mér finnst að skólarnir ættu að búa sér til heilbrigðisstefnu íyrir skólann alveg eins og þeir hafa búið sér til um- hverfisstefnu. Við sjáum það að ef fólk hreyfir sig ekki reglulega fer heilsu þeirra hrakandi og það á alveg eins við um börn og fullorðna." samkvæmt viðmiðunar- stundaskrá aðalnámskrár bæri skólum skylda tO að kenna nemendum sínum að lágmarki 60 stundir í íþrótt- um (leikfimi) á hverju skóla- ári. Hann sagði að líkt og með sundkennsluna sinntu margir skólar ekki þessari skyldu sinni. Samkvæmt könnuninni kemur i ljós að í 14% grunn- skólum voru kenndar færri en 60 stundir í leikfimi á síð- asta skólaári, þ.e. færri en 2 tímar á viku. fþróttahreyílngin vill starfa með skólunum Arngrímur Viðar sagði mikilvægt að skólayfirvöld og sveitarstjórnir færu að horfa sér nær varðandi hreyfingu barna almennt. Hann sagði að íþrótta- og ólympíusamband íslands hefði m.a. sent menntamálaráðuneytinu er- indi í sumar þar sem lögð hefði verið áhersla á að fjöldi íþróttatíma í skólum yrði auk- inn. I erindinu lýsir íþrótta- hreyfingin sig tilbúna til að starfa með skólunum í fram- tíðinni til þess að auka hreyf- ingu barna. I erindi sambandsins segir: „Sjónvarpsgláp og tölvuleikir hafa í mörgum tilvikum leyst af hólmi heilbrigða hreyfingu og útivist barna og unglinga. A sama tíma hefur sú þróun orðið að íþróttatímum í skól- um hefur víða verið fækkað." Skólarnir úti á landi standa sig betur Arngrímur Viðar sagði að vissulega væru til skólar sem stæðu vel að íþróttakennslu, en hann sagði að það væru yf- irleitt skólar úti á landi. „Skólarnir þar hafa oft á tíðum betri aðstöðu og sumir þeirra hafa verið einsetnir í langan tíma. Skólarnir þar gegna kannski virkara hlut- verki í samfélaginu, en á höf- uðborgarsvæðinu hafa skól- arnir oft fengið þennan geymslustimpil." Fjöldi leiktækja var við Gufunesbæ í Grafarvogi á laugar- daginn og börnin kunnu greinilega vel að meta það. GRAFARVOGSDAGUR var haldinn hátíðlegur í þriðja sinn á laugardaginn í glamp- andi sólskini og tókst einkar vel, að sögn Regínu Ásvalds- dóttur, framkvæmdastjóra Miðgarðs. „Það var mikil stemmn- ing,“ sagði Regína. Það var alveg ótrúlega gaman að taka þátt í þessu, það var gott veð- ur, mjög góð mæting og þetta Morgunblaðið/Ómar Sumir létu sér nægja að ganga um hátíðarsvæðið og fylgjast með, enda get- ur það verið gaman þegar maður hefur gott útsýni. tókst því geysilega vel.“ Dagskráin hófst um morg- uninn með göngu um hverfið þar sem Einar Birnir, íbúi í Grafarvogi, sýndi hópnum áhugaverða staði og fræddi fólk um sögu þeirra. Fyrir hádegi var einnig boðið upp á yoga og vatnaleikfimi í íþróttamiðstöðinni í Dalhús- um og mæltist það vel fyrir. Varðeldur og brekkusöngur Regína sagði að strax eftir hádegi hefði verið haldin svokölluð Fjölnismessa í Grafarvogskirkju, þar sem börn úr íþróttafélaginu hefðu tekið þátt í messunni og Birg- ir Gunnlaugsson, formaður knattspymudeildar Fjölnis, hefði flutt hugvekju. I kirkjunni var Máttarstólpinn, hvatningarverðlaun Mið- garðs og hverfisnefndar Grafarvogs, veittur skóla- hljómsveit Grafarvogs, en um er að ræða 300 þúsund króna peningaverðlaun og viður- kenningarskjöl til allra í hljómsveitinni. Dagskráin í Gufunesbæ hófst um klukkan þrjú og stóð fram á kvöld, en boðið var upp leiki fyrir krakkana, settur var upp klifurveggur og þá var keppt í kassabíla- ralli. Hin árlega Grafarvogs- glíma fór einnig fram um daginn, þar sem leikskóla- stjórar í hverfinu, starfsmenn Miðgarðs, starfsmenn í Gufu- nesbæ og starfsmenn í Áburðarverksmiðjunni kepptu í ýmsum greinum. Starfsmenn Gufunesbæjar stóðu uppi sem sigurvegarar, en lögreglan sá um dómgæslu í keppninni. Regína sagði að auk þessa hefði verið grillað og sungið og að um kvöldið hefði verið varðeldur og brekkusöngur, þar sem skátar hverfisins hefðu haldið uppi stemmning- unni. Hátíðarhöldunum lauk við Gufunæsbæ lauk síðan um hálftíu með flugeldasýningu. Síðasti dagskrárliður Grafar- vogsdagsins, var ball með hljómsveitinni Á móti sól, sem haldið var í Fjörgyn. borgarsvæðinu og víðar. „Það er verið að brjóta á rétti nemenda til þess að fá lágmarkskennslu í íþróttum og þá sérstaklega sundi,“ sagði Arngrímur Viðar. „Nemendurnir fá ekki þær stundir sem þeir þurfa til þess að öðlast nægilega fæmi í sundi og Iþróttakennarafé- lagið vill að réttur þessara barna sé virtur.“ Samkvæmt viðmiðunar- stundaskrá, sem gefín er út af GRUNNSKÓLAR í Hafnar- firði bjóða nemendum í 1. bekk ekki upp á sundkennslu, þótt þeim beri skylda til þess samkvæmt viðmiðunar- stundaskrá aðalnámskrár grunnskólanna, sem tók gildi fyrir skólaárið 1999 til 2000. Arngrímur Viðar Ásgeirsson, formaður íþróttakennarafé- lags íslands, segir að það séu ekki aðeins grunnskólar í Hafnarfirði sem virði ekki kennsluskylduna heldur einn- ig aðrir grunnskólar á höfuð- Keppt var í kassabílaralli á Grafarvogsdeginum, sem haldinn var á laugardaginn. Mikið fjör á Grafarvogsdeginum „Það er verið að brjóta á rétti nemenda“ menntamálaráðuneytinu, ber skólum skylda til að kenna að lágmarki þrjár stundir í íþróttum á viku, þar af tvær stundir í leikfimi og eina í sundi. Arngrímur Viðar sagði að nemendum væri ætlaður a.m.k. einn sundtími á viku en að þar sem ekki væri hægt að koma því við bæri skólanum skylda til að senda þá á árleg námskeið. Arngrímur Viðar sagði að alltof fáir skólar virtu kennsluskylduna^ og að í lok síðasta árs hefði Iþróttakenn- arafélagið óskað eftir því við menntamálaráðuneytið að það kannaði fjölda nemenda- stunda, sem varið væri til íþróttakennslu og þá einkum sundkennslu. Ráðuneytið varð við beiðni félagsins og útbjó spurningalista sem sendur var öllum grunnskól- um landsins og var skóla- stjórnendum gert að svara spurningunum. Um 84% skólastjórnenda tóku þátt í könnuninni, sem ber heitið „Upplýsingar um íþróttakennslu í grunnskól- um skólaárið 1999/2000“. Könnunin leiddi í ljós að 28% grunnskóla kenndu færri en 30 sundtíma á skólaárinu. Þá kenndu 15% grunnskóla fæni en 20 sundtíma á skólaárinu og er um helmingur þeii'ra í Reykjavík. Árngrímur Viðar sagði að hugsanlega væri ástandið enn verra, því þótt bekkur væri með 1 kennslustund í sundi í stundaskránni sinni, væri kennslunni víða háttað þann- ig að helmingurinn færi í sund fyrir áramót og hinn helmingurinn eftir áramót, og að samkvæmt því fengju nemendurnir einungis 15 kennslustundir í sundi á skólaárinu. Eina markmiðið að allir komist lifandi upp úr I samantekt könnunar menntamálaráðuneytisins segir: „Sérstaka athygli vek- ur að samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar veitir enginn grunnskóli í Hafnarfirði nem- endum sínum sundkennslu í 1. bekk. Þar að auki veita sömu skólar iðulega ekki sundkennslu í 10. bekk. Rétt er þó að taka fram að í 2. til 9. bekk veita viðkomandi skólar fullnægjandi sundkennslu.“ Að sögn Arngríms Viðars er nokkuð algengt að sund- kennarar séu með alltof marga nemendur í sund- kennslu í einu, en til að tryggja öryggi og stuðla að bættri kennslu hefur skipulag sundkennslunnar miðast við 15 riemendur í hverjum tíma. í könnun ráðuneytisins kemur fram að 18% grunn- skóla hafi fleiri en 15 nem- endur á hvern sundkennara og er ástandið verst á Reykjanesi. „Maður hefur heyi't að kennarar séu að fá 25 til 28 manna hópa í sundkennslu, en öryggisins vegna er það mjög hættulegt og þetta leið- ir til þess að eina markmið tímans verður það að allir komist lifandi upp úr,“ sagði Arngrímur Viðar. „Það væri hægt að laga þetta með því að hafa tvo íþróttakennara í sundkennslu með sama bekk- inn, eins og er reyndar gert sums staðar." Arngrímur Viðar sagði að Grafarvogur Höfudborgarsvæöið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.