Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.09.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 2000 11 FRÉTTIR „Eftirminnileg lífsreynsla“ Morgunblaðið/Ásdís Zhu Lin, eiginkona Li Pengs, mátar hálsfesti á Álfheiði Björk, tveggja ára dóttur þeirra Heiðars M. Guðnasonar og Þórdísar Bjarnleifsdóttur í Gyðufelli 8. Li Peng situr við hlið Magnúsar Más, fjögurra ára. HEIÐAR M. Guðnason, starfsmaður í prentsmiðju Morgunblaðsins og fjölskylda hans, tók á móti Li Peng og eiginkonu hans á heimili sínu í þriggja herbergja íbúð í Gyðufelli 8 á sunnudagsmorgun. Hann segir að heimsóknina hafi borið brátt að, en eftir á að hyggja hafi þetta verið eft- irminnileg lífsreynsla. Heiðar bauð ljósmyndara blaðsins að taka mynd af heimsókninni. Heiðar skýrir svo frá að kl. 1 að- faranótt sunnudagsins hafi hann fengið símtal frá kunningja sínum á skrifstofu Alþingis. Tilefnið hafi verið að kínverski þingforsetinn hafi óskað eftir því að sjá með eigin augum íslenskt alþýðuheimili, eins og það var orðað, og ræða við íbúa þess um daglegt líf. „Þetta hafði greinilega borið brátt að, annars hefði ekki verið hringt á þessum túna sólarhrings- ins. Eftir nokkra umhugsun slógum við hjónin til,“ segir Guðni, en bætir við að sér hafi ekki komið til hugar allt það tilstand sem fylgdi þessari óvæntu heimsókn. Taldi að um grín væri að ræða Heiðar átti aftnæli á laugardag og hafði haldið upp á það með veislu og því segir hann að sér hafi komið til hugar að verið væri að gera grín að sér með símtalinu um nóttina. Svo reyndist þó ekki vera - það kom ber- lega í ljós um morguninn á sunnu- deginum þegar tveir lögreglubílar tóku sér stöðu fyrir utan blokkina í Gyðufellinu upp úr kl. 10 og undan- farar, sem svo eru nefndir, bönkuðu upp á litlu síðar. „Þeir komu hér fjölmargir og skoðuðu hvem krók og kima. A eftir þeim komu fulltrúar Alþingis í svip- uðum erindagjörðum ásamt starfs- fólki sendiráðsins. Þetta var mikið fjölmenni á mörgum bflum og því má nærri geta hve undrandi við urð- um þegar bflalestin kom með Li Peng, en í henni vora alls fjórtán bfl- ar í viðbót!“ Heiðar tók á móti Peng-hjónunum niðri í stigagangi ásamt eiginkonu sinni, Þórdísi Bjamleifsdóttur, og bömunum tveimur, Matthíasi Má, fjögurra ára, og Álfheiði Björk, tveggja ára. „Frúin tók Álfheiði litlu þegar í fangið og sýndi börnunum mikla at- hygli. Svo var boðið til stofu og mál- in rædd,“ segir Guðni og telst til að íbúðin hafí verið stútfull af fólki meðan á heimsókninni stóð, auk þess sem gestir stóðu í stiganum fyr- ir framan og allt niður á stétt. Þótti íbúðin stór fyrir fjóra „Það var talað um tíu mínútna heimsókn, en þau vom um klukku- stund. Þau vildu fá að vita allt um daglegt líf okkar, vinnu, laun og tryggingar, svo að eitthvað sé nefnt. Þá kynntu þau sér íbúðina og fór ekki á milli mála að mörgum f sendi- nefndinni þótti hún stór miðað við Ijóra. Einn sagði að heima fyrir kæmust tíu manns auðveldlega fyrir í slíkum vistarvemm," bætir hann við. Eftir að hafa þegið góðgerðir ís- lensku fjölskyldunnar - kaffi, te og konfekt - færðu gestirnir fjölskykl- unni glæsilegar gjafir. Hjónin fengu glæsilegan silkidúk og mikið af for- láta efni og klútum, Alfheiður fékk hálsfesti og Matthías silkitrefíl. Heiðar segir að þetta hafi allt saman verið sérstaklega skemmti- legt en um leið skrítið. „Þessir gestir eru hér í boði Alþingis og því vildum við sýna þeim tilhlýðilega virðingu. Það þýðir ekki að við séum að lýsa yfir stuðningi við störf þeirra í gegnum tíðina," bætir hann við. Forseti Alþingis * Akvörðunin mikil vonbrigði GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, starfandi forseti Alþingis kallaði kín- verska sendiherrann á sinn fund upp úr hádegi á sunnudag eftir að ljóst varð að kínverska sendinefndin und- ir forystu Li Pengs sæi sér ekki fært að heimsækja Aiþingishúsið, eins og til stóð, og ræða þar við starfandi forseta og aðra fulltrúa þingsins. „Ég fékk þær skýringai' að vegna mótmælanna óttaðist sendinefndin að ekki yrði fundarfriður inni í hús- inu. Ég gerði honum grein fyrir því og bað hann koma áfram að engin ástæða væri til að hafa áhyggjur af því, enda öryggis gætt í hvívetna.“ Guðmundur Árni segir að þessi ákvörðun hafi verið mikil vonbrigði. „Þingforsetinn mætti hins vegar í kvöldverðinn í Perlunni og þar gafst ágætt tækifæri til umræðna þótt vettvangurinn væri vissulega annar. Við ræddum málefni sem hafa verið ofarlega á baugi, meðal annars mannréttindamál og lýðræði. Þær umræður voru mjög hispurslausar og gagnlegar." -----*-H----- Myndartexti féll niður í GREIN í sunnudagsblaði um höf- undarrétt og arkitektúr urðu þau mistök við vinnslu greinarinnar að myndartexti féll niður undir teikn- ingu sem sýndi fyrstu breytingatillög- una að húsinu á Skildinganesi 50 sem kom til meðferðar í borgarkerfinu. Er beðist velvirðingar á mistökunum. OO TOiyunnm 2000 Þ e k k i n g í þ í n a þ á g u Kerfi/ííœdi Kerfisfræði TV er tveggja anna diplómnám sem stendur frá septemberbyijun til loka maí. Námið er sniðið að þörfúm þeirra sem vilja sjá um rekstur og viðhald upplýsingakerfa, þjónustu við notendur og kerfisgreiningu og -gerð hjá litlum eða meðalstórum fyrirtækjum. Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að geta séð um rekstur lítillar tölvudeildar, séð um innkaup og rekstur tölvukerfa, leyst algeng forritunar- og greiningarverkefhi og mótað tölvustefnu. Hclstu námsgreinar: • Stýrikerfi. Umsjón og rekstur algengra stýrikerfa. • Gagnagrunnar og forritun. Kerfisgreining, hönnun, Access gagnagrunnar, VBA og Visual Basic forritun. • Netfræði. Uppsetning og rekstur Windows NT, Windows 2000 og Intemetþjóna. • Internetið og vefsíðugerð. Gerð, viðhald og rekstur veíja ásamt notkun vafra og tölvupósts. HTML forritun. • Notendaforrit. Word, Excel og PowerPoint. • Öflunarferli. Val á búnaði og innkaup. • Lokaverkefni. Metið til lokaeinkunnar. Prófað er í öllum greinum. Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og góð enskukunnátta. Lengd: 400 kennslustundir eða 267 klukkustundir. Tímar: Tvisvar i viku kl. 16:15-19:15 og einu sinni í hveijum mánuði á laugardegi. Staðgreiðsluverð: 349.900,- fletum/jón| í núlímarck/lri Þetta geysivinsæla námskeið er sniðið að þörfum þeirra sem vilja sjá um netrekstur í fyrirtækjum eða skapa sér ný tækifæri á vinnumarkaði. Námskeiðið er sérsniðið fyrir þá sem vilja verða góðir netstjórar með mikla þekkingu á eðli neta og stjómun þeirra en einnig fyrir þá sem vilja vita meira um tölvur og tölvutækni og notkun neta sem eru í nær ölíum fyrirtækjum og stofnunum landsins. Helstu námsgreinar: • Nctfræði og búnaður. Ethemet, kapalkerfi, beinar, netþjónar, notendatölvur, netbúnaður og hönnun neta. • Windows 98. Netvinnsla með Win98, uppsetning útstöðva og lykilatriði stýrikerfisins. • Netstýrikerfi. ítarleg kennsla á netstýiikerfin Windows 2000 og Windows NT. • Internet- og Intranetþjónar. Uppsetning og rekstur Intemetþjónustu og innranets fyrirtækja. Innifalið í námskeiðinu er eitt Microsofl Certified Professional (MCP) próf. Forkröfur: Almenn þekking á tölvum og ensku. Lengd: 120 kennslustundir eða 81 klukkustund. Tímar: Tvisvar í viku frá kl. 16:15-19:15, alls 27 skipti. Staðgreiðsluverð: 139.900,- fflCIE UlincJoui/ 2000 Tölvuum/jóA nútímorckrlri Microsoft Certified Systems Engineer (MCSE) er ávísun á vel launaða og spennandi vinnu á sviði netumsjónar og -rekstrar. Gráðan er viðurkennd alls staðar í heiminum og fæst að loknum ströngum Microsoft prófúm sem aðeins er hægt að taka hjá viðurkenndum pófúnarmiðstöðvum eins og Tölvu- og verkffæðiþjónustunni. Í samvinnu við Pygmalion Group, sem er Microsoft Certified Technical Education Centre (CTEC), bjóðum við nú Windows 2000 MCSE nám. Námið fer þannig ffarn að nemendur sækja 6námskeið sem samanlagt eru fimm vikur að lengd '> og nýta tímann á milli þeirra til sjálfsnáms og æfinga. ÖIl kennsla fer ffam á ensku og allir kennarar hafa MCP eða MCSE og MCT (Microsoft Certified Trainer) gráður. Innifalin í námskeiðinu eru Microsoft kennslu-bækur og geisladiskar með forritum. Hægt er að taka MCP/MCSE próf hjá okkur. Forkröfur: Góð þekking á tölvum og ensku. Lengd: 262 kennslustundir eða 175 klukkustundir. Tímar: Ein vika i mánuði frá kl. 8:30-16:15, alls 6 vikur á sex mánaða tímabili. Staðgreiðsluverð: 649.900,- * (Hægt er aö kaupa einstök námskeiö) Þetta námskeið er vinsælasta námskeið okkar frá upphafi. Það er sniðið að þörftim þeirra sem sjá um tölvur í fyrirtækjum, umsjónarmanna tölvuvera eða þeirra sem vilja bara vita meira um tölvur. Þátttakendur verða kröftugir notendur með mikla þekkingu og yfirsýn yfir möguleika einkatölvunnar í rekstri fyrirtækja og hagnýtingu nýjustu tækni. Helstu námsgreinar: • Stýrikerfi. Windows 98 og vélbúnaður. • Notendaforrit. Word, Excel, Access, PowerPoint og Outlook. • Vefsíðugerð. FrontPage og Intemetið. • Netstýrikerfi. Umsjón Windows NT tölvuneta og Windows 98. Námið er mjög ítarlegt og fjöldi íslenskra handbóka fylgir. Forkröfur: Grunnþekking á tölvum. Lengd: 145 kennslustundir eða 99 klukkustundir. Tímar: Tvisvar í viku ffá kl. 19:15-22:30, alls 33 skipti, eða á tímanum kl. 13:00- 16:00, tvisvar í viku. Staðgreiðsluverð: 119.900,- Mikið úrval styttrí og lengrí námskeiða! Nánari upplýsingar á http://www.tv.is Grensásvegi 1 6 108 Reykjavík Sfml: 520 9000 Fax: 520 9009 Netfang: tv@tv.ls p ö n t u n a r s í m i Sfmanúmtsr nn Raðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. \..mm I Hagstæð námslán hjá Sparisjóði Hafoarfjarðar. T ö I v u - v e r k f r o g ð ' Þ i ó n u s t a n
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.