Morgunblaðið - 26.02.2006, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.02.2006, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ TEPPI Á STIGAHÚS - got t verð - komum og gerum verðtilboð • Brúðarkjólar og nýjasta tíska • Brúðarvendir og blómaskreytingar • Matur í brúðkaupsveislum • Brúðargjafir • Hárgreiðsla brúða og brúðguma • Giftingarhringir og morgungjafir • Í formi fyrir brúðkaupið • Brúðkaupsmyndin • Snyrting fyrir brúðkaupið • Veisludúkar • Brúðarsængin og brúðarnærföt Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16 föstudaginn 3. mars. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Brúðkaupsblað Morgunblaðsins Sérblað helgað brúðkaupssýningunni Já! fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 9. mars. Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - Fax: 562 0207 Netfang: perlan@perlan.is - Heimasí›a: www.perlan.is Food&Fun matseðill Perlunnar og Michelin Chéf Markus Winkel- mann er með eindæmum vel heppnaður – enda margverðlaunaðir matreiðslumenn á ferð. Áður en gestir gæða sér á kræsingunum býður Ölgerðin upp á vínkynningu á völdum eðalvínum. 9. mars hefst svo hið geysivinsæla Sjávarréttahlaðborð! VÍNKYNNING FYRIR MAT FRAMLENGT TIL 8. MARS! Erindið hefst kl. 3 e.h. og verður haldið í fundarsal LbhÍ á Keldnaholti, 3. hæð. Mánudaginn 27. febrúar flytur Björn L. Örvar erindi: Plöntuerfðatækni; hagnýting og tækifæri. Allir velkomnir Fræðsluerindi Landbúnaðar- háskóla Íslands á Keldnaholti Grétar segir tónlistina ogpíanóið afar þægilegaleið til þess að slaka áeftir erilsaman vinnu-dag og vinda ofan af streitunni. Grétar, sem var réttargeð- læknir á Sogni og á Litla-Hrauni á ár- unum 1992–96, rekur nú læknastofu í Kringlunni. Hann fagnaði sextugsaf- mæli sínu 14. febrúar sl. með útgáfu á sínum fyrsta geisladiski, Með lífsins ljúfa yl, sem inniheldur lög sem hann hefur samið á átta ára tímabili. Blaða- maður hitti Grétar að máli á heimili hans og ræddi við hann um tónlistina, geðlækningar og óhefðbundnar leiðir í geisladiskasölu. Geisladiskurinn nýi hljómar í tækjunum og laglegur Atl- as-flygill er mikið stofustáss á heimili Grétars. Flygillinn var áður í eigu Leifs heitins Þórarinssonar tónskálds og við hann hefur Grétar samið flest sín fallegustu lög, sem allnokkur hafa komist í úrslit í söngvakeppnum. Lag- ið Þú ert mér allt bar sigur úr býtum í söngvakeppni sem Ríkisútvarpið efndi til á ári aldraðra. Á diskinum eru tólf lög eftir Grétar en textar eru eftir Kristján Hreins- son, séra Hjálmar Jónsson, séra Stef- án Ólafsson (1619–1688) og Grétar á sjálfur einn texta. Kominn af tónelsku fólki Grétar er Sunnlendingur í báðar ættir og er kominn af tónelsku fólki. Afi hans var Pálmar Ísólfsson hljóð- færasmiður, bróðir Páls Ísólfssonar tónskálds og organista, og langafi hans var Ísólfur Pálsson, sem samdi mörg falleg lög í fyrndinni. Hann ólst upp í Hlíðahverfinu og var mikið spil- að og sungið á heimili hans. Sjálfur stundaði hann píanónám í tvo vetur. Bróðir Grétars er Pálmar Árni hljóð- færasmiður og valdi hann lögin á nýja diskinn með Grétari. Upphaflega komu 36 lög til greina en þeir bræður skáru síðan lagafjöldann niður í 16 lög. Grétari var síðan bent á að með því að fækka lögunum enn frekar nið- ur í tólf mætti ná fram betri hljóm- gæðum á diskinn og var sú raunin. Hann segir að viss tenging sé á milli geðlækninga og tónlistar. „Ég spilaði ekki á píanó áratugum saman. Mér fannst ég aldrei hafa tíma til þess vegna anna í námi og starfi. Svo þegar fór að hægjast um hjá mér, eftir að ég gat hætt að vinna á sjúkrahúsum og einbeitt mér alfarið að læknastofu minni, fann ég hvað það gat verið ró- andi að setjast niður við píanóið og spila. Það getur nefnilega stundum verið stressandi að vera geðlæknir. Það er margt sem reynir á mann og á hverjum degi verður maður fyrir sterkum upplifunum,“ segir Grétar. Fyrsta lagið samdi Grétar árið 1998. Það ár, reyndar á afmælisdegi Grét- ars, 14. febrúar, varð tengdafaðir hans, sem bjó norður á landi, bráð- kvaddur. Grétar settist við píanóið til að eyða stund áður en farið var út á flugvöll til þess að fljúga norður. Hann sló nokkra hljóma sem tóku á sig mynd lags. „Þá kallaði dóttir mín, Lydía, hér ofan af lofti: „Pabbi, varst þú að búa til þetta lag?“ Og ég gat ekki annað en samsinnt því,“ segir Grétar. Þetta er fyrsta lagið á nýja diskinum og heitir Þú ert mér allt. Lagið sendi Grétar síðan í dægur- lagasamkeppni Ríkisútvarpsins á ári aldraðra ásamt öðru lagi. Það fyrr- nefnda bar sigur úr býtum og hitt lag- ið, Enn einn dans, sem einnig er á diskinum, komst alla leið í úrslit en alls bárust 214 lög í keppnina. „Upp frá þessu fór ég að setjast meira við píanóið og búa til melódíur sem er at- höfn sem maður gleymir sér algjör- lega við.“ Árið 2001 átti Grétar tvö lög í tíu laga úrslitum í Evróvisjón-laga- keppninni. Hann hefur á þeim átta ár- um sem liðin eru frá því Þú ert mér allt varð til, samið mikinn fjölda laga sem hann geymir á segulbandsspól- um. Þau bíða þess að fá vængi og geta lyft sér á öldum ljósvakans inn um hlustir landsmanna. Hann kveðst sjálfur ekki vera nógu góður hljóð- færaleikari til þess að flytja lög sín. Af þeim sökum fékk hann til liðs við sig nokkra af fremstu tónlistarmönnum landsins til að gera nýja diskinn. Árni Scheving og Þórir Baldursson útsetja lögin og Árni leikur á harmonikku, víbrafón og bassa í nokkrum lögum, og Þórir sér um píanó og hammond. Aðrir sem leika á disknum eru Jón Páll Bjarnason á gítar, Sigurður Flosason á saxófón, Gunnar Hrafns- son á kontrabassa, Einar Valur Scheving á trommur og Björn Th. Árnason á fagott. Þá syngja á disk- inum Friðrik Ómar Hjörleifsson, Friðrik Theódórsson, Páll Rósinkr- anz, Halldóra Björk Friðjónsdóttir og Lydía, dóttir Grétars. Hugræn atferlismeðferð á diski Grétar er þegar farinn að huga að útgáfu á næsta diski og búinn að velja 19 lög sem koma til greina. En fyrst er að fylgja nýja diskinum eftir og koma honum í sölu og dreifingu. Þar segist Grétar einna síst kunna til verka. Hann langar helst að fara óhefðbundnar leiðir í þeim efnum og bjóða diskinn einvörðungu til sölu í lyfjabúum. Hann ætlar þó að fara að ráðum sér hyggnari manna í þessu efni, eins og hann segir sjálfur. „Tón- list á vel heima í lyfjabúðum enda te- rapía þegar best lætur,“ segir hann. „Satt best að segja fæ ég minn inn- blástur frá sjúklingunum mínum. Margir þeirra hafa talsverðan áhuga á því að ég skuli vera að búa til tónlist og spyrja mig gjarnan hvenær ég fari að gefa út. Ég hef stundum brennt nokkur laga minna á disk fyrir þá, þeim til óblandinnar ánægju. Lögin mín eru glaðleg og létt, það er sumar í þeim og sól. Ég hef rætt um þetta við nokkra kollega mína og við höfum komist að þeirri niðurstöðu að þessi iðja mín falli undir „hugræna atferl- ismeðferð á diski“. Hugræn atferlis- meðferð felur m.a. í sér að fá menn til þess að hugsa öðruvísi en þeir eru vanir, hugsa jákvæðar hugsanir og líta á björtu hliðar lífsins.“ Sjúklingarnir veita mér innblástur Grétar Sigurbergsson geðlæknir byrjaði að semja tónlist samhliða læknastörfum fyrir átta árum. Nýlega varð hann sextugur og gaf sjálfum sér í afmælisgjöf geisladisk með eigin tónlist. Guðjón Guðmundsson ræddi við Grétar í tilefni af útkomu disksins. Grétar Sigurbergsson með eiginkonu sinni, Kristínu Hallgrímsdóttur, í útgáfu- teiti og sextugsafmælisveislu Grétars á Hótel Borg í síðustu viku.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.