24 stundir - 13.03.2008, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 24stundir
SÍÐUMÚLA 37 - S: 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Fartölvur
í úrvali
Verð frá
59.900-
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@24stundir.is a
Er lífið ekki þúsund sinnum
of stutt til að láta sér leiðast?
Friedrich Nietzsche
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@24stundir.is
Um konu er heiti sýningar sem
Sigurður Örlygsson heldur í Lista-
safni ASÍ á Freyjugötu. Sýningin er
þrískipt og eins og titillinn gefur
til kynna fjallar hún um ýmsa at-
burði í lífi konu. Þar eru sjö stór
olíumálverk sem sýna kafla úr
þroskaskeiði konu, einnig akrýl-
myndir úr myndaflokki sem Sig-
urður kallar Konuskrifborð, auk
ljósmynda og höggmynda.
Viðfangsefni í felum
„Sennilega eru konur stærsta
viðfangsefni myndlistarmana fyrr
og síðar. Samt eru ekki svo
margir íslenskir listamenn sem
hafa málað konur. Ég hef haft
óskaplega gaman af að fást við
þetta viðfangsefni en það hefur
verið dálítið í felum hjá mér,“
segir Sigurður.
Þegar hann er spurður hvort
hann hafi rómantíska sýn á kon-
ur svarar hann: „Já, ég er róm-
antíker. Þarna er myndasería af
konu, allt frá móðurkviði til
dauða hennar þegar hún er orðin
að ösku. Ég hafði mikla ánægju
af að mála þessar myndir. Þetta
þema, konan, kom upp í hugann
og ég byrjaði að mála – enda eru
konur mér mjög kærar. Mynd-
irnar málaði ég á einu ári. Ein
mynd er þó aðeins eldri og snýst
um erfðasyndina og eplið og
passar kannski ekki alveg inn í
þessa myndasögu en af fagur-
fræðilegum ástæðum hafði ég
hana með.“
Tákn konunnar
Um akrýlmyndirnar af
snyrtiborði sem eru á sýning-
unni segir Sigurður: „Fyrir
mér er þetta snyrtiborð tákn
konunnar. Konur horfa á sína
eigin ásjónu í gegnum spegil á
snyrtiborði. Ég málaði snyrti-
borðið í ólíkum litum af því að
tískan tekur sífelldum breyt-
ingum. Þegar skrifborðsskúff-
an er opnuð kemur í ljós mynd
sem minnir á Ópið eftir
Munch. Það má túlka þá mynd
á allan mögulegan hátt. Sumir
vilja kannski segja að sú mynd
sýni viðbrögð konu þegar hún
lítur í spegil og er ekki ánægð
með útlit sitt en aðrir geta séð
eitthvað allt annað út úr
myndinni.“
Óteljandi möguleikar
Á sýningunni eru einnig
ljósmyndir og skúlptúrar en
málverkin eru fyrirferðarmest.
„Málverkið er svo opið form,
eins konar framlenging á höfði
og höndum og býður upp á
óteljandi möguleika,“ segir
Sigurður og bætir við: „Það
getur verið afar erfitt að mála.
Stundum er ég alveg við að
gefast upp en held samt áfram.
Ég kann ekkert annað.“
Sigurður. „Málverkið er svo opið
form, eins konar framlenging á
höfði og höndum og býður upp á
óteljandi möguleika.“
Sigurður Örlygsson sýnir í Listasafni ASÍ
Stærsta viðfangsefnið
➤ Sigurður lærði í fjögur ár íMyndlista- og handíðaskól-
anum og fór síðan í nám í
Listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn og í Art Students
League í New York.
➤ Hann hefur haldið fjölda sýn-inga hér á landi og erlendis.
➤ Hann hélt fyrstu sýningu sínaárið 1971.
MAÐURINNSigurður Örlygsson sýnir
verk sín í Listasafni ASÍ.
Konur eru meginþema
sýningarinnar enda segir
listamaðurinn að þær
hafi ætíð verið sér kærar.
24stundir/Frikki
Á þessum degi árið 1891 var leikritið Afurgöngur
eftir Henrik Ibsen frumsýnt í London tíu árum eftir
að höfundurinn samdi það. Leikritið hafði fyrst verið
sýnt í Chicago árið 1882 af dönskum leikflokki.
Í leikritinu fjallaði Ibsen um kynsjúkdóma en það
umfjöllunarefni vakti litla hrifningu meðal almenn-
ings og gagnrýnenda. Leikritið fékk slæmar viðtökur í
London, eins og annars staðar.
Árið 1898, í kvöldverði sem haldinn var til heiðurs
Ibsen, sagði Óskar II Svíakonungur við Ibsen að Aft-
urgöngur væru ekki gott leikrit. Ibsen þagði stutta
stund en sagði svo: „Yðar hátign, ég varð að skrifa Aft-
urgöngur.“
Leikritið hefur öðlast almenna viðurkenningu og er
meðal þeirra leikrita Ibsens sem oftast eru sett upp.
Önnur heimsfræg leikrit hans eru Pétur Gautur,
Brúðuheimilið, Þjóðníðingur og Villiöndin.
Umdeildar
Afturgöngur
MENNINGARMOLINN
AFMÆLI Í DAG
Hugh Walpole rithöfundur,
1884
10. Karítas án titils - kilja
Kristín Marja Baldursdóttir
9. Biblían - 5 mism. útgáfur
JPV
8. Horfinn - kilja
Robert Goddard
7. Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
6. Sálmabók
Ýmsir höfundar
5. Friðþæging - kilja
Ian McEwan
4. Himnaríki og helvíti - kilja
Jón Kalman Stefánsson
3. Óreiða á striga - kilja
Kristín Marja Baldursdóttir
2. Aska - kilja
Yrsa Sigurðardóttir
1. Þúsund bjartar sólir - kilja
Khaled Hosseini
Listinn er gerður út frá sölu dagana 05.03
- 11.03 2008 í Eymundsson og Bókabúð
Máls og menningar.
METSÖLULISTI
Bækur á íslensku
10. Eric Clapton: The Autobiography
Eric Clapton
9. Into the Wild
Jon Krakauer
8. Brida
Paulo Coelho
7. Shadow Dance
Julie Garwood
6. Insight Concise World Atlas
Insight Atlases
5. 7th Heaven
James Patterson
4. 6th Target
James Patterson
3. Night Train to Lisbon
Pascal Mercier
2. Stalemate
Iris Johansen
1. Daddy’s Little Girl
Lisa Scottoline
Listinn er gerður út frá sölu dagana
04.03.2008 - 10.03.2008 í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
Auglýsingasíminn er
510 3744
stundir