Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1895, Page 47

Eimreiðin - 01.07.1895, Page 47
127 allra. Það var sama um hvað við töluðum, morðið gægðist fram í röddinni og i orðalaginu. Það var einhver óvissa yfir öllu; menn háttuðu með þeirri hugsun á kvöldin og menn fundu það undir eins og þeir risu á fætur á morgnana, og þeir, sem áður höfðu talazt við í kátínu og spaugi, horfðu hver á annan eins og við horfum á klukkuna, þegar við viturn að hún stendur. Smátt og smátt rann þó rnorðið saman við allt hitt, þetta sem rnenn þurfa daglega að hugsa um. Það var forvitnin og kjaptæðið, sem bezt hjálpaði til þess. Forvitnin smálypti því upp og svo kom kjaptæðið og sneri því á allar hliðar, hampaði því og strauk það, þangað til það var orðið að meinlausum gamanfrjettum. Rað leið ekki á löngu, áður en við frjettum út í æsar allt, sem farið hafði á rnilli Pjeturs og stúlkunnar, sem dáin var; við frjettum hver það var, sem rnóðir Pjeturs vildi láta hann eiga; við þekktum Hagabæjarfólkið eins og fingurna á okkur og ættina langt upp eptir. f*egar dómarinn kom heim á prestssetrið til að yfirheyra Pjetur, var ekki talað um annað en rnorðið. En næsta morgun, þegar hreppstjórinn og tveir menn aðrir komu með morðingjann, þá vaknaði hjá rnjer ný tilfinning, sem jeg hafði ekki búizt við — jeg sárkenndi í brjósti um hann. Það var ungur og laglegur piltur vel vaxinn, fremur lítill og grannur, með þunnt, dökkt hár; augun vóru blíð, en af því sona stóð á, leit hann allt af undan; málrómur- inn var hreinn og viðkunnanlegur; allt útlit og látæði drengsins var geðfelt og bar vott urn gott uppeldi; hann leit nærri út fyrir að vera menntaður og virtist betur eiga við lífið en dauðann; hann var auðsjáanlega gleðinnar barn . . . mjer er ekki hægt að lýsa, hve sárt mig tók til hans. Bæði hreppstjórinn og aðrir vóru honum góðir í viðmóti, svo þeim hlaut að finnast líkt og mjer. Skrifarinn, sem var lítill og kviklegur maður, var sá eini, sem lagði til nokkur þungyrði, en Pjetur svaraði þeim ekki, en stóð þá þegjandi með húfuna í hendinni. Þennan dag var hiti mikill og bjart sólskin. Pjetur var á gangi til og frá kringum bæinn; hann var snöggklæddur, með lága klæðishúfu á höfðinu og hafði hendurnar í buxnavösunum, eða hann sleit upp puntstrá og sneri þvi ótt og títt milli fingranna. Heimahundarnir og gestahundarnir vóru orðnir góðkunnugir og hlupu saman allt í kring um húsin og gáðu nákvæmlega að ýmsu, sem þeim kom við; Pjetur horfði á þá. Hann stóð líka við hjá hænsnunum og horfði á þau, og opt horfði hann á eptir okkur krökkunum, eins og hann langaði til

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.