Eimreiðin - 01.07.1895, Blaðsíða 7
87
í brjefi sínu til stiptsyfirvaldanna var landshöfðingi í vafa um,
hvort bæta skyldi einum eða tveimur bekkjum við latínuskólann,
svo realdeildin yrði 3 eða 4 bekkir. I tillögum sínum til stjórnar-
innar mun hann hafa haldið fram hinu siðara, og um leið hinu
óheppilegra. Hinn núverandi námstími þeirra, er »ganga lærða
veginn«, er fulllangur og helzt oflangur, þegar litið er til þess,
hve fátækir vjer erum og á hvaða menningarstigi vjer stöndum.
Vjer kvörtum yfir fátækt vorri og því, hve skammt vjer erum á
veg komnir í öllum verklegum efnum, en svo neyðum vjer æsku-
menn vora til þess, að eyða mörgum beztu árum æfi sinnar á
skólabekknum yfir grískum og latínskum »doðröntum«. Vjer
kvörtum yfir háum embættismannalaunum, og það eigi að ástæðu-
lausu, en hvað er eðlilegra en að embættismenn vorir heimti rifleg
laun, þegar þeir loks hafa runnið skólaskeiðið á enda á löngum
tíma og með ærnum kostnaði og náð takmarkinu, sem þeim var
gjört svo erfitt fyrir að ná. Þegar þetta og margt fleira, sem hjer
að lýtur, er yfirvegað, virðist liggja nær að stytta en lengja skóla-
tímann og myndi jeg fremur gefa því atkvæði mitt; hef jeg þó
enn látið þess ógetið, að þessi mikla lenging á skólatímanum hefur
mikinn beinan kostnað í för með sjer fyrir landið, einmitt af því
að jeg tel hann hverfandi á móts við hinn óbeina óhagnað, sem
af þessu ieiðir. Það er sannarlega minnst komið undir námstíma-
lengdinni, mest ríður á að skólinn sje að öllu leyti í góðu lagi.
Sje svo, nægja 7 ár til þess að menn geti náð góðri almennri
menntun, en sje skólinn í ólagi, þá er bezt að árin sjeu sem fæst,
því þeim er þá að mestu til ónýtis eytt. Að mínu áliti ætti því
ekki að taka í mál lengri en 7 ára almennan menntaskóla, er taki
við af hinum lægri barnaskólum.
I sambandi við þetta vildi jeg minnast á eitt atriði, sem jeg
tel mikilsvert, og sjálfsagt verður til nokkurrar hindrunar fyrir
sambandi skólanna. Það er lengd skólaársins. Eptir reglugjörð
Möðuvallaskólans er skólaárið þar 7^/2 mánuður eða frá í. október
til 14. maí, og er þetta mjög haganlegt, því hávaðinn af þeim, er
sækja þennan skóla, eru bláfátækir alþýðumenn, sem ekkert hafa
við að styðjast nema vinnu sína, og það hefur okkur tekizt hjer
á Möðruvöllum, að gjöra skólavistina svo ódýra, að fullvinnandi
menn hafa að sumrinu alveg getað unnið fyrir skólakostnaðinum.
Væri sumarfriið stytt að nokkrum mun yrði þetta ekki hægt.
Nú er skólaárið i latínuskólanum 9 mánuðir; hvernig verður þetta