Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1895, Síða 28

Eimreiðin - 01.07.1895, Síða 28
io8 af því að jeta 15—20 grömm tóbaksblaða, en opt reykjum vjer sem því svarar eða meira (meðalpípa tekur nál. 2 — 3 gr.) á skömmum tíma og deyjum þó ekki, og skal nú sýnt fram á, hvernig á þvi stendur. í tóbaksreyknum er vatnsgufa, kolsýra, ammoníak og eiturgufa tóbaksins, en í öskunni eru þau málmefni, er í jurtinni hafa verið. Þegar reykurinn fer gegnum pipulegginn, kólnar hann og þjettist þá nokkur hluti vatnsgufunnar og eiturgufunnar o. fl.; þvi eins og vatns- gufa við kælingu breytist i vatn, eins breytist eiturgufan við kæling í hina tæru oliu (tóbakseitrið), við það myndast tóbakslögurinn og er hann rammeitraður. Sá hluti eiturgufunnar, sem eigi þjettist i leggnum, heldur áfram með reyknum upp i munninn, þjettist þar og leysist þá upp í munnvatninu og fer út í líkamann. Það, sem þá er eptir af tóbakseitri í reyknum, er lítið eitt og fer burt með honum og spillir þannig andrúms- loptinu. Það er því tiltölulega lítill hluti eitursins, er kemst inn 1 likamann. Áhrif tóbaks á likamann eru ekki sem hollust. Flestir muna eptir, hvernig þeim varð af fyrstu pípunni. Líkaminn venst við tóbakið, þó hefur það ávalt spillandi áhrif og jafnvel þó þess sje neytt i hófi. Sje tóbaks neytt um of, veldur það magnleysi í taugum og dregur úr allri starfsemi, veldur ýmsum sjúkdómum, skemmir magann, augun, lungun og veikir allt taugakerfið. Kostir tóbaksins eru harla litlir; menn segjast brúka tóbak sjer til dægrastyttingar o. s. frv., en að brúka tóbak sjer til skemmtunar, er sama og að svikja sjálfan sig, þvi sú skemmtunin er að mestu falin i þeim áhrifum, er tóbakið hefur á likamann, og þau eru ekki sem hollust. Bezt og skynsamast er að bragða aldrei tóbak. Tóbaksgjörð. Tóbakið er búið til úr blöðum tóbaksjurtarinnar, og fer meðferð blaðanna eptir því, hvort úr þeim skal gjöra reyktóbak, munntóbak eða neftóbak. F}'rst eru blöðin dregin upp á þráð og hengd upp til þerris; er þau eru þur orðin, eru þau flutt til verksmiðjanna i smábindum. Bindin eru lögð hvert ofan á annað i smáhlaða, er iðu- lega er snúið; kemur þá gerð í blöðin og verða þau brún að lit. Til að flýta fyrir gerðinni er saltvatni hellt á þau, eða einhverjum öðrum legi, er til þess er gjörður. Þá er þessu er lokið, eru blöðin aðskilin eptir gæðum. Blaðrifin eru tekin úr þeim blöðum, er gjöra skal úr vindla og gott reyktóbak. I lakari tegundum reyktóbaks eru rifin aðeins marin. Þessu næst er lögur, sem samsettur er af mjög margs konar efnum, borinn á blöðin; er það gjört til þess að tóbakið verði bragð- betra og ljúffengara. Eigi vita menn með vissu samsetning lagar þessa, því verksmiðjurnar leyna henni. Þá er blöðin hafa verið bleytt í þessum leynilegi, eru þau skorin með ýrnis konar vjelum og síðan þurkuð i kötl- um; er þá reyktóbak fullgjört. Neftóbak og munntóbak er undið upp með vjelum, er til þess eru gjörðar. Að þvi er munntóbak snertir, er mest komið undir leginum, er blöðin eru bleytt í, og svo þvi, að aptur komi í þau gerð. Sama er að segja um neftóbak. Við vindlagjörð er mest komið undir þvi, að velja góð blöð, að. blaðrifin sjeu algjörlega numin burt og að vindlarnir sjeu vel undnir. Það væri auðvitað bezt, eins og fyr er sagt, að tóbaks væri ekki neytt, en tóbaksbrúkunin er orðin svo almenn og rótgróin, að vart er mögulegt að útrýma henni. Reynsla liðinna alda sýnir og berlega, að það er að vinna fyrir gýg að hefja ofsókn gegn tóbaksbrúkun, og er

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.