Morgunblaðið - 19.11.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.11.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986 43 Bjamveig G. Guð- laugsdóttir - Minning Fædd 16. september 1903 Dáin 11. nóvember 1986 Frú Bjamveig Guðrún Guðlaugs- dóttir, hjúkrunarkona, andaðist í Landakotsspítala þann 11. nóvem- ber sl. eftir stutta legu, en hún hafði átt við vanheilsu að stríða í mðrg ár. Bjamveig fæddist þann 16. sept- ember 1903 að Björgum á Skaga- strönd í Húnavatnssýslu, þar sem faðir hennar, Guðlaugur Bjamason, var bóndi, en móðir hennar, Sigur- laug Ólöf Jónsdóttir, var þangað komin úr Fljótunum í Skagafirði. Bjamveig ólst upp hjá einum móðurfrænda sinna á Siglufirði, Guðmundi Bjamasyni, en var yfir- ieitt í sveit í Skagafirði á sumrin. Árið 1924 fór hún út til Dan- merkur til systur sinnar, Vigdísar, sem þar bjó, og var þar í námi í eitt ár við Grundtvig-lýðháskólann. Þaðan lá leið hennar í hjúkmnar- nám á Narskov-sjúkrahúsinu, sem hún lauk í apríl 1934. í miilitíðinni hafði hún komið heim til ísiands og starfað sem hjúkrunarkona á Eskifirði í nokkur ár, en að afloknu námi í Narskov, fór hún í sjö mánaða framhaldsnám í geðhjúkrun á Middlefart-sjúkra- húsinu á Fjóni, þar sem hún síðan starfaði sem hjúkrunarkona tii 1. júní 1935. Þá fór hún til Islands og lagði nú leið sína til heimabyggðarinnar á Siglufirði, þar sem hún starfaði við sjúkrahúsið í eitt ár. Á Eskifírði kynntist Bjamveig eftirlifandi eiginmanni sínum, Hallgrími Kristjánssyni, bryta, sem hún giftist árið 1936, en árið eftir fluttu þau til Siglufjarðar, þar sem Bjamveig vann síðar við ýmis hjúkrunarstörf, m.a. bæjarhjúkmn, og einnig var hún skólahjúkmna- rkona um hríð, svo dæmi séu tekin. Á Siglufirði fæddist þeim einka- dóttirin, Halldóra Hafdís, sem hingað til hefur starfað hjá Ferða- skrifstofunni Útsýn. Eftir að Bjamveig og Hallgrímur fluttust frá Siglufirði til Reykjavík- ur 1956, aðstoðaði hún móðursystur sína í nokkur ár í vefnaðarvöru- verzlun hennar, Bjólfi, sem var j FARARBRODDI i 90 ÁR ÓDÝRAR • STERKAR • BJARTAR TUNGSRAM RAFTÆKJAVERSLUN ISLANDS S 688 6A0-688 661 _ WIKA Allar stæröir og geröir SdiuiirilatuigKur Vesturgötu 16, sími 13280 forðum tíð á Laugaveginum, en þær vom samtímis í hjúkmnamámi í Naskov, þar sem gmndvöllurinn var lagður að kunningsskap, sem entist þeim alla ævi. Árið 1965 hóf Bjamveig svo störf á Kleppsspítalanum og var þar hjúkmnarkona í mörg ár. Eg kynntist Bjamveigu á heimili móðursystur minnar, en brátt varð hún einnig fjölskylduvinur á heimili foreldra minna. Það má með sanni segja, að ekki hafi fyrirfundist kynslóðabil í vin- áttu okkar Bjamveigar, þótt áratugir skildu í milli. Hún var með eindæmdum bamelsk kona og hafði mjög gott lag á bömum. Það er mikil list að geta haldið athygli bama vakandi og hrífa þau svo með sér, að þau geti verið stillt og róleg í marga kiukkutíma sam- fleytt. Þetta var Bjamveigu til lista | lagt, eins og svo margt annað, enda hefur hún sjálfsagt þurft eins og margar aðrar hjúkrunarkonur að hafa einhver ráð til að halda litlum sjúklingum kyrrnrn og þolinmóðum í rúmunum. Ég fékk sem bam að kynnast þessum hæfileikum Bjamveigar, þegar við ferðuðumst um lönd og álfur í ævintýrum hennar, og komu þar frásagnar- og leikarahæfileikar hennar vel í ljós, en einnig rík kímnigáfa, sem gat fengið .áheyr- andann til að skellihlæja þegar minnst varði, enda glaðværð ríkjandi skapgerðarþáttur í fari Bjamveigar. Það var líka enginn vafi á því, að á þessum stundum var Bjamveig í essinu sínu. Ég þreyttist og seint á sögum hennar. Gjafmildi var iíka ein af ríkjandi skapgerðareinkennum Bjamveigar, og minnist ég þess ekki, að hún hafi nokkm sinni komið tómhent í heimsókn til okkar. Oft kom líka fyrir, að hún laumaði einhveiju að mér í boðum hjá móðursystur minni, hvort sem hún var þá nýkomin heim frá Kaupmannahöfn, þar sem hún dvaldist alltaf hluta úr sumri hjá Vigdísi, systur sinni, ellegar ferða- lögum annars staðar frá, eða þá að hún var boðin til okkar í ein- hveiju sérstöku tilefni, sem þótti sjálfsagt, eða leit inn af tilefnis- lausu. Þær em því ótaldar gjafimar, sem hún hefur gefið mér um ævina. Áhugi hennar á listum, blóma- rækt og dýmm kom vel í ljós, er komið var inn á heimili hennar, þar sem hún var höfðingi heim að sækja. Það var líka hægt að kom- ast að því í viðtölum við hana, og að listelskir unglingar, sem vom að reyna að skapa eitthvað sjálf- stætt, áttu sinn stuðningsmann þar sem Bjamveig var. Það fékk ég að reyna á ámnum, svo um munaði. Þegar ég nú að leiðarlokum kveð þessa vinkonu mína hinztu kveðju er efst í huga mínum þakklæti fyr- ir að hafa kynnst þessari ágætu konu og blessa hana fyrir allar vel- gerðimar í minn garð og foreldra minna fyrr og síðar, sem líður manni seint úr minni. Sá sem kynntist Bjamveigu, átti vináttu hennar alla og traust ævi- langt. Það er mikil guðs gjöf, sem seint verður metin að verðleikum. Eftirlifandi eiginmanni, dóttur og öðmm aðstandendum votta ég mína innilegustu samúð. Blessuð sé minning hennar. Guðbjörg Snót Jónsdóttir Núerbaraaðglímavið eigin sköpunargáfu þvi TOYOTA-SAUMAVÉLIN SÉR UM FRAMKVÆMDINA ■ s<í , > TOYOTA 8900 er með 25 sporum sem gefa þér allar auðveldustu leiðirn- ar til frábærs saumaskaps. Þú snertir bara hnappinn og velur sporið sem þú vilt. SÖLUUMBOÐÍ VIÐ ERUM EINU SPORI A UNDAN TIMANUM: 1V ARAHLUTAUMBOÐIÐ Bkotici' ARMULA 23 SIMAR 685870-681733 KLAPPARSTIG 31 SIMI 14974
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.