Morgunblaðið - 18.04.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR
77. tbl. 55. árg.
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1968.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Njósnir í Sovét
Fimm bandarískir hermálafulltrúar teknir
Moskvu, 17. apríl. NTB.
IZVESTIA, málgagn sovétstjórn-
arinnar, sakaðí í dag fimm
bandaríska hermálafulltrúa og
einn Kanadamann um njósnir.
Tveir þeirra voru sakaðir um að
hafa farið inn á hersvæði í
Hvíta-Rússlandi, en hinir voru
sakaðir um að hafa tekið ljós-
myndir í skipasmíðastöð í Lenin
grad fyrr í þessum mánuði.
Að sögn Izvestia óku t veir
hinna bandarísku liðsforingja,
ofurstarnir Hugo W. Matson og
Gerhard T. Jacobsen, í almenn-
ingsvagni inn á hersvæði
skammt frá bænum Borisov í
Hvíta-Rússlandi 9. apríl. s.l.
Blaðið segir, að þegar þeir hafi
verið handteknir hafi fundizt í
fórum þeirra minnisbækur, sem
í hafi verið skrifaðar at'huga-
semdir um leynileg efni. Auk
þess eru þeir sakaðir um að hafa
sýnt dónaskap þegar þeir voru
handteknir.
Atburðurinn í L.eníngrad
gerðist 8. apríl. Að sögn Izvestia
voru bandarísku hermálafulltrú
arnir Wayne É. Richards, Robert
R. Hamer, Ralph N. Channell og
kanadíski flugmálafulltrúinn J.
V. Watson staðnir að verki er
þeir tóku ljósmyndir í skipa-
smíðastöð í borginni. >eir eru
sagðir hafa sýnt ósvífni þeg^vr
þeir voru handteknir.
Stúdentar reknir
Að sögn annars blaðs í
Moskvu hefur bandarískum
skemmtiferðamanni af rússnesk
um uppruna, Stephan Sudakov,
verið visað úr landi í Sovétríkj-
unum, gefið að sök að hafa
stundað njósnir. Einnig hefur
tveimur bandarískum stúdent-
um, sem stundað hafa nám í
slavneskum málum í Sovétríkj-
unum, verið vísað úr landi, gefið
að sök að hafa reynt að smygla
úr landi ólöglegum handritum,
er ungur Rússi hafi fengið þeim
í hendur.
Blaðið gefur í skyn, að fyrr-
verandi bandarískur njósnari,
sem leitað hafi hælis í Sovét-
ríkjunum, hafi komið upp um
Sudakov, en þeir hafi starfað
saman í Kína á árunum eftir
heimsstyrjöldina.
Ásökunum neitað.
Bandaríkjastjórn hefur visað
ásökunum þessum algerlega á
bug og segir þær tilhæfulausar
með öllu.
Viðræðu Johnsons
og Park lokið
Honolulu, 17. apríl.
NTB — Reuter.
JOHNSON, Bandaríkjaforseti, og
Chung Hee Park, forseti Suður-
Kóreu, ræddust við í Honolulu í
gær og lauk fundi þeirra í gær-
kvöldi. Viðræðurnar snerust að
langmestu leyti um hemaðarað-
ferðir Bandaríkjanna í Víetnam.
Áður en fundur þeirra hófst
var talið sennilegt, að Johnson
myndi fullvissa Park um, að
Bandaríkin mundu ekki vilja
semja frið upp á hvaða býti sem
væri. Vitað er, að Park hefur
haft nokkrar áhyggjur af því, að
Bandaríkin vildu allt til vinna
að friður kæmist á og mundu því
gera of miklar tilslakanir.
Johnson forseti tók á móti
Park á flugvellinum, er hann
kom til fundarins. Búizt var við
að Bandaríkjaforseti hafi itrekað
við forseta S-Kóreu, að Banda-
ríkin mundu ábyrgjast öryggi S-
Kóreu með hliðsjón af skæruliða
hernaði og skemmdarstarfsemi,
sem N-Kórea hefur sýnt S-
Kóreu.
Þá er og vitað, að Park er
þeirrar skoðunar, að Bandaríkin
hafi lagt of ríka áherzlu á að fá
leysta úr haldi áhöfn njósna-
skipsins Pueblo, sem N-Kóreu-
menn náðu í janúar, og hafi ver-
ið vanrækt að sporna gegn áhrif-
um skæruliða úr norðri í Suður-
Kóreu.
Lögreglan flytur Peter Brant, son Willy Brandts, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýzkalands á brott, en hann tók þátt í hinum
miklu stúdentaóeirðum, sem urðu í Vestur-Berlín um páskana.
Síínverjar
styðja
bandaríska
negra
Peking, 17. apríl NTB-AFP |
HUNDRUÐ þúsunda Kínverja
' fóru í hópgöngur um Pek-
ing í gær til að láta í ljós |
stuðning við bandaríska svert i
. ingja, eftir að Mao Tse Tung
hafði haldið ræðu, þar sem ‘
I hann fordæmdi morðið á dr. |
I Martin Luther King. Mao lýsti i
, andstyggð sinni á þjóðfélagi,
þar sem slíkir atburðir gætu '
I gerzt.
Göngumenn báru stór sp'
i með ýmsum áletrunum, t.
Framhald á bls. 27
Bonnstiórnin harðorð
um stúdentaóeirðirnar
— þeir ábyrgu dregnir fyrir dóm
— L/ósmyndari AP lézt í gœr eftir
áverka, sem stúdenfar veittu honum
Bonn, Berlin,Mundhen 17.
apríl NTB. AP.
VESTUR-þýzka stjórnin kom
saman til aukafundar í Bonn í
gær til að ræða atburði þá, sem
orðið hafa í mörgum borgum
Iandsins að undanförnu, er
stúdentar hafa efnt til mikilla
mótmælaaðgerða eftir morðtil-
raunina á Rudi Dutsche.
Að loknum fundinum sagði
talsmaður hennar, að öllum til-
tækum ráðum verði beitt til að
bæla niður stjórnmálaóikyrrð og
átök og hvers konar. Hann sagði,
að þingið yrði þó ekki hvatt
saman til aukafundar vegna
stúdentaóeirðanna og álbyrgðin
væri öll á herðum sósialisku
stúdentasamtakanna SDS. Rákis-
stjórnin mun höfða mál gegn
þeim stúidentaforingjum. sem
brotið hafa lög og reglur. Tals-
maðurinn sagði, að vestur-þýzka
stjórnin hefði engar ráðagerðir
á prjónunum um að banna sam-
Framhald á bls. 21
Handtaka hins grunaia
moriingja Kings fyrirskipuð
Was'hington, 17. apríl, AP. I Eric Starvo Galt, þar sem 1 dögum. FBI staðhæfir að
BANDABIÍSKA alríkislög- hann er ákærður fyrir þátt- bróðir Galts hafi verið í vit-
reglan, FBI, gaf í gærkvöldi | töku í samsæri um að ráða orði með honum-
út handtökuskipan á hendur 1 dr. Martin Luther King af Ekki hefur áður verið minnzt
á samsæri í sambandi við morð-
Bjarrti Benediktssan í eldhúsu mræðunum i gærkvöldi:
Frambúðaröryggi í atvinnumálum
— hyggist d fullnýtingu nllrn gæðn Inndsins
ið á dr. King, sem myrtur var í
Memphis þann 4. apríl sl. FBI
hefur og sent út mynd af Galt,
sem einnig hefur gengið undir
ýmsum öðrum nöfnum, s>vo sem
Harvey Lowmyer og John
Willard. FBI segir að handtöku-
skipunin hafi verið gefin út í
| Birmingham í Alabama og sterk
; ar líkur bendi til, að samsærið
! hafi verið undirbúið þar frá 29.
! marz til morðdagsins.
Framhald á bls. 21
BJARNI Benediktsson, for-
sætisráðherra, sagði í ræðu er
hann hélt í eldhúsdagsum-
ræðunum frá Alþingi í gær-
kvöldi, að hin síðustu misseri
hefði ríkisstjórnin orðið að
miða framkvæmdir sínar
fyrst og fremst við það að
firra vandræðum, enda hefði
hvert áfallið rekið annað.
Ekki yrði til lengdar komizt
hjá því að finna fyrir afleið-
ingum þeirra áfalla en við-
leitni ríkisstjórnarinnar hefði
beinzt að því að þær kæmu
ekki niður með ósanngjörn-
um hætti eða leiddu til glund
roða og þar með atvinnu-
leysis.
Forsætisráðherra sagði enn
fremur að aðalviðfangsefni
ríkisstjórnarinnar undan-
farna mánuði hefði verið að
koma í veg fyrir atvinnu-
leysi, ekki einungis með marg
háttuðum stuðningi við
helztu atvinnugreinar lands-
manna og forustu um stór-
virkjanir heldur og með fyr-
irgreiðslu ótal einstakra at-
vinnufyrirtækja bæði um
rekstur og nýjungar svo sem
eflingu innlendra skipa-
smíða.
Bjarni Benediktsson sagði að
í þessari viðleitni hefði samn-
ingurinn um lausn verkfallanna
verið mikilsverður áfangi vegna
þess að hann sýndi skilning
verkalýðshreyfingarinnar á, að
ekki yrði komizt hjá almennri
kjaraskerðingu eins og ástatt
væri. Hins vegar væri það kom-
ið undir framtíðarþróuninni,
hvort atvinnuvegirnir gætu til
frambúðar staðið undir þeim
byrðum, sem þeir tóku á sig en
því miður sýndust horfur enn
vera okkur í óhag.
í ræðu sinni sagði forsætis-
Frmhald á bls. 21
Dr. Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra.
Brúin yfir
Thantes seld
London, 16. apríl. AP-NTB.
BRÚIN yfir Thamesána í Lon-
don, London Bridge, hefur ver-
ið seld til Bandaríkjanna, að því
er talsmaður borgarstjórnar
Lundúna skýrði frá í gærkvölði.
Ekki verður sagt frá nafni kaup-
nndans og kaupverðinu fyrr en
á morgun, fimmtudag.
Talsmaðurinn sagði, að hrúin
vrði endurreist einhvers staðar
í Bandaríkjunum. Brúin er úr
graníti, vegur um 10.000 lestir og
er 137 ára gömul.