Morgunblaðið - 19.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
5
Hefði „lensport“ varnað
óhappinu við Hrísey?
Ekki leyfilegt að hafa rifur á smábátum til að hleypa sjó af þilfari
í SAMTALI við Baldur Hjörleifs-
son, sjómann úr Hrísey, og
Jóhann Þór Halldórsson, björg-
unarsveitarmann, í Morgunblað-
inu í gær kom fram að þeir teldu
að smábátar þyrftu að vera bún-
ir sk. „lensportum". Samkvæmt
reglum Siglingamálastofnunar
er ekki leyfilegt að hafa rifur á
borðstokkum opinna báta til að
hleypa sjó frá borði. „Slík lens-
port hafa aldrei tíðkast á opnum
bátum. Við teljum að þau auki
mjög hættuna við að fá sjó inn
í bátinn," sagði Magnús Jóhann-
esson, siglingamálastjóri, þegar
þetta var borið undir hann.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær varð Baldur fyrir
óhappi þegar hann var á siglingu á
sex tonna plastbáti, Sunnufelli EA
58, skammt norðvestan við Hrísey
á laugardagskvöld. Tvo brot gengu
yfír bátinn, svo að hann fylltist af
sjó og hvolfdi. Báturinh sökk þó
ekki, því svo virðist sem loft hafí
safnast saman í lúkamum og hald-
ið honum á floti. Baldri tókst að
komast upp á stefni bátsins og hékk
þar í 5 klst., eða þangað til honum
var bjargað.
Baldur og Jóhann Þór sem stjórn-
aði leit björgunarsveitar úr Hrísey,
voru sammála um að mátt hefði
koma í veg fyrir að bátinn fýllti við
það að sjór gengi yfir hann ef „lens-
port“ eða annar búnaður til lensing-
ar væru á honum. Sjórinn hefði þá
væntanlega runnið af þilfarinu.
Sögðu þeir að það væri almenn
skoðun sjómanna að reglur um
þetta efni væru of strangar. Sigl-
ingamálastjóri sagði að sér hefðu
aldrei borist kvartanir um þetta
atriði frá smábátaeigendum. „Ný-
lega átti stofnunin viðræður við
nefnd sem Landssamtök smábáta-
eigenda settu á fót til að setja fram
kröfur þeirra um breytingar á regl-
um um smábáta, og þar var ekki
minnst á reglur varðandi lensibúnað
þessara báta,“ sagði Magnús.
Grundvallarreglan varðandi
„lensport“ á bátum er sú að þau
séu aðeins leyfíleg á þilfarskipum.
Um smábáta gilda þær reglur að
um borð í þeim eigi að vera búnað-
ur til lensingar, sem eru niðurföll
í botni á brunni bátanna og dælur
sem taka við vatni í botni skipsins.
Magnús sagði að til þess að þessi
búnaður gengdi tilgangi sínum yrðu
niðurföllin að vera opin, og ekkert
sem hindraði sjóinn að renna út.
Ekki væri ljóst hvort svo hefði ver-
ið í þessu tilfelli. Hann sagði að
stofnunin myndi að sjálfsögðu fýlgj-
ast með sjóprófum vegna óhapps-
ins. Stofnuninni væri skylt að kynna
sér niðurstöður rannsókna á sjóslys-
um, og notaði sér þær vísbendingar
til endurbóta í öryggismálum.
„Sókn á smábátum er sífellt að
aukast, og ég hef af því ákveðnar
áhyggjur að hún hafí í för með sér
meiri hættu fyrir sjómenn," sagði
Magnús.
VERÐBRÉFAMARKAÐURIÐNAÐARBANKANS HF
nytt fyrirtæki að flrmúla7
Hjá okkur eru verðbréfaviðskiptin einföld og örugg
Undanfarin ár hefur íslenski veröbréfa-
markaðurinn vaxið hratt og fjárfesting f
verðbréfum notið vaxandi vinsælda.
Heildarveltan á íslenska verðbréfamark-
aðinum er nú um 1.500 til 2.000 milljónir
á ári. Samt sem áður hefur þessi markað-
ur verið talinn flókinn og óaðgengilegur,
jafnt fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Með opnun Verðbréfamarkaðs Iðnaðar-
bankans hf. er ætlunin að leggja áherslu
á að verðbréfaviðskiptin verði einföld og
örugg.
Við ætlum að gera verðbréfakaup jafn-
auðveld og venjuleg bankaviðskipti.
Lykillinn að þessari einföldun er per-
sónuleg, fagleg þjónusta. Þegar þú setur
traust þitt á Verðbréfamarkað Iðnaðar-
bankans eru fjárfestingar þínar í örugg-
um höndum. Ákvörðunin er þín, fyrir-
höfnin okkar.
Jóhanna B. Jónsdóttir Dr. Sigurður B. Steiánsson Vilborg Lofts Heiðdís Jónsdóttir
ritari framkværtidastjóri rekstrarhagfræðingur gjaldkeri
Gott úrval verðbréfa til lengri og skemmri
tíma.
I nóvember og desember bjóðum við
- verðtryggð skuldabréf veðdeildar
Iðnaðarbankans með árlegum af-
borgunum
- verðtryggð skuldabréf veðdeildar
Iðnaðarbankans með einum gjald-
daga eftir 1, 2, 3, 4 eða 5 ár
-óverðtryggð skammtímabréf, banka-
bréf, til 3 til 12 mánaða
-verðtryggð skuldabréf Glitnis hf. með
árlegum afborgunum
- spariskírteini ríkissjóðs og önnur
skuldabréf skráð á Verðbréfaþingi Is-
lands
- hlutabréf Iðnaðarbanka Islands hf.
- hlutabréf Hlutabréfasjóðsins hf
Við sjáum um hönnun og útgáfu
verðbréfa.
Við bjóðum alla þjónustu vegna skulda-
bréfaskipta og skuldabréfaútboða.
Við bjóðum verðbréfavörslu og inn-
heimtu vefðbréfa.
I verðbréfávörslu felst að við sjáum um
kaup á verðbréfum, innheimtu á greiðsl-
um og endurfjárfestingu þannig að fé sé
jafnan til reiðu á umbeðnum tíma.
Veitum einnig móttöku verðbréfum til
innheimtu hjá innheimtudeild Iðnaðar-
bankans og eru greiðslur þá lagðar inn á
umbeðinn bankareikning á gjalddaga.
Símanúmerið.er 681040
Ykkur er velkomið að heimsækja okkur
eða hringja hvenær sem er!
•>
Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbankans hf.
ÁRMÚl^A 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI - 681040
ARGUS/SIA