Morgunblaðið - 14.09.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
71
I STUTTU MALI
Tónabíó: Sagan af 0
Þegar SAGAN AF O kom út í Frakklandi fyrir mörgum árum, vakti hún
ge.vsimikla athygii og umtal, þótti bersögul með eindæmum á þess tíma
mælikvarða, og ekki þótti það síður hneykslanlegt að höfundur þessarar
„listrænu pornógrafíu", var kvenkyns. Síðan hefur mikið vatn runnið til
sjávar og nú telst þetta „tímamótaverk", tæpast til djarfra bókmennta frekar
en „Fru Lúna í snörunni", eða „Elskhugi Lafði Chatterley". En óneitanlega er
bókin skrifuð af stílista sem hefur úr ríkulegu og margsnúnu hugmyndaflugi
að moða.
En, í stuttu máli, þá veldur myndgerðin vonbrigðum, hvorki fugl né fiskur,
líkt og frænkur hennar flestar. Leikstjórinn er sá hinn sami Justin Jaecin og
gerði EMANUELLE um árið. Virðist, líkt og þá, prýðisefni í svitalyktareyðis
og sjampóauglýsingargerðarmann. Erótík sögunnar gloprar hann niður, því
hér er á ferðinni enn ein sykursæt hálfklámsvellan þar sem mannleg náttúra
er afskræmd af getuleysi og ódug aðstandenda. Mynd fyrir guðsgeldinga.
Væntanlegar myndir í Tónabíó
Stallone
lætur ekki
deigan
síga
í ROCKY II
Alvardo og Jeremy Levy,
fara með titilhlutverkin,
við góðan orðstír, en með-
al annarra leikara er Paul
Dooley, (faðirinn í
BREAKING AWAY).
Leikstjórn annast Robert
Young, sem gerði mynd-
ina undir verndarvæng
Robert Altmans, sem hef-
ur verið hliðhollur mörg-
um, efnilegum leikstjór-
um eins og Robert Benton
við gerð THE LATE
SHOW og Alan Rudolph,
(WELCOME TO L.A.)
GO TELL THE
SPARTANS Þykir
raunsæ lýsing frá upphafi
hernaðarátaka Banda-
ríkjamanna í Viet Nam,
og segir heldur dapurlega
sögu af tilgangsleysi og
eyðileggingarmætti styrj-
alda. Með aðalhlutverkið
fer gamli harðjaxlinn
Burt Lancaster en leik-
stjóri en Ted Post.
JACKSON COUNTY
JAIL, nefnist hasarmynd
úr Suðurríkjunum, ættuð
úr B-mynda smiðju Roger
Corman. Með aðalhlut-
verkið fer Yvette Mimi-
eux.
Síðast, en ekki síst, ber
svo að geta velkominna
endursýninga nokkurra,
frábærra stórmynda frá
United Artists, sem kvik-
myndaunnendur munu
örugglega bíða eftir með
óþreyju, en það eru THE
GRADUATE, (sem sýnd
verður mjög fljótlega),
THE RUSSIANS ARE
COMING, THE RUSSI-
ANS ARE COMING, IN
THE HEAT OF THE
NIGHT og hin óglevman-
lega MIDNIGHT
COWBOY.
Kynjaverur í kynjaveröld LORD OF THE RINGS
Áströlsk kvikmynda-
gerð er á mikilli uppleið,
og nýtur vaxandi virð-
ingar hvarvetna. Ein
þeirra mynda sem gert
hafa garðinn frWgan er
MAD MAX, sem gerist í
náinni framtíð. Segir hún
j af tveim hópum mótor-
hjólakappa sem berjast
um völdin á, þá, auðum
hraðbrautum Ástralíu.
Hér er mikið um „stunt“-
atriði, sem þykja ein-
staklega vel heppnuð.
MAD MAX er fyrsta
mynd leikstjórans George
Miller.
Leikstjórinn John. G.
Avildsen er kunnastur
fyrir myndirnar JOE og
ROCKY, en fyrir þá síð-
arnefndu hlaut hann
Oscars-verðlaunin. SLOW
DANCING IN THE BIG
; CITY er næsta mynd
hans og fjallar um gjör-
ólíkt efni — ástarævin-
J týri milli harðsvíraðs
J dálkahöfundar, (Paul
Sorvino), og upprennandi
! ballettdansmeyjar, sem
' leikin er af hinni kana-
dísku ballerínu Anne
j Ditchburn, (hennar
fyrsta hlutverk á hvíta
tjaldinu). Bakgrunnurinn
! er New York borg.
Tónabíó hefur haldið
nafni Jean-Paul Bel-
mondo á lofti hérlendis,
| öðrum kvikmyndahúsum
fremur, og bregður ekki
útaf hefðinni, því á næstu
| grösum er myndin FLICK
OU NOYOlí, sem gæti
útlagst „Löggur og bófar“,
innihaldið semsagt í
j dæmigerðum Belmondo-
! hasarstíl.
Einn eftirminnilegasti samleikur fyrr og síðar: Dustin
Hoffman og John Voight í MIDNIGHT COWBOY.
Seinni hluti
INVASION OF THE
BODY SNATCHER, læt-
ur kunnuglega í eyrum
kvikmyndaunnenda, enda
er það nafnið á klassískri
s-f mynd sem Don Siegel
gerði árið 1956. En nú
bíður ný útgáfa þessarar
frægu myndar, sýningar í
Tónabíó, og hefur hún
hlotið mjög góða dóma.
Leikstjórinn er hinn eft-
irtektarverði Philip Kauf-
man, sem gerði eftir-
minnilegan vestra sem
nefndist THE GREAT
NORTH FIELD, MINNE-
SOTA RAID. Með aðal-
hlutverkin fara Donald
Sutherland, Brooke
Adamas, Leonard Nimoy
og Jeff Goldblum.
HARIÐ, þarf ekki að
kynna fyrir kvikmynda-
húsagestum, svo mikið
hefur verið rætt og ritað
um kvikmyndagerð þessa
fræga söngleiks. En nú er
von á þessari stórkostlegu
mynd Formans áður en
langt um líður.
Leikstjóranum, (og
teiknaranum) Ralph
Bakshi, hefur tekist það
sem flestir töldu ógjörn-
ing — að festa hið klass-
íska verk J.R.R. Tolkiens,
THE LORD OF THE
RINGS, á filmu. En þessi
rómaða teiknimynd þykir
öllum aðstandendum til
Ur kvikmyndaheimi borgarbúa
Síðasta vika var
tíðindalítil, enda gekk
allt með venjulegum
hætti í kvikmyndaheimi
borgarbúa. Eastwood og
Siegel hafa enn einu sinni
sannað hressilega karl-
mennsku sína, því
FLÓTTINN FRÁ AL-
CATRAZ, hefur gengið
við metaðsókn í Háskóla-
bíó. Sama máli gegnir um
myndina um kvenskör-
unginn NORMU RAE í
Nýja Bíó.
I Stjörnubíó og Austur-
bæjarbíó, kitla enn þeir
ágætu grínistar Dom
DeLouise og Gene Wild-
er, hláturtaugar bíógesta,
og er lítið lát á aðsókn-
inni á myndir þeirra.
LÖGGAN BREGÐUR Á
LEIK, og FRISCO KID.
Tónabíó hefur nú
dustað rykið af SÖG-
UNNI AF 0, sem “finnur
hina fullkomnu fullnægju
í algjörri auðmýkt". (sjá
umsögn annars staðar á
síðunni).
I Laugarásbíó þenja sig
þekktir hálsar, Jerry Lee
Lewis og Chuck Berry, og
má þar kenna velþekkta
slagara frá uppgangsár-
um rokksins. En myndin
AMERICAN HOT WAX,
fjallar einmitt um þetta
öndvegistímabil.
sóma, og brátt munu
blasa við furðuverur
Miðjarðar Tolkiens.á
gafli Tónabíós.
Myndin PIRANHA,
mun vera náskyldur ætt-
ingi JAWS, sem hrelldi
áhorfendur uppúr sætum
sínum fyrir nokkrum ár-
um. Meginmunurinn er
sá, að nú eru það ekki
hákarlskjaftar sem hrella
baðstrandargesti, heldur
sá smávaxni fiskfjandi er
nefnist Piranha. Með
önnur hlutverk far Brad-
ford Dillman, Kevin
McCarthy og Keenan
Wynn.
Flestir héldu (og marg-
ir vonuðu), að Sylvester
Stallone, sigldi ferli sín-
um í strand með mynd-
inni ROCKY II, en allar
bölbænir urðu að engu og
gagnrýnin hljóðnaði þeg-
ar framhaldsmyndin birt-
ist, sem margir telja að
taki jafnvel þeirri fyrri
fram.
ROCKY II, er önnur
útgáfa svipaðs efnis og
með sömu aðalleikurum,
eða þeim Stallone, Taliu
Shire, Burgess Mender-
didt, Carl Weathers og
Burt Young, og forverinn,
en nú hefur „ítalski stóð-
hesturinn", eins og Stall-
one er löngum kallaður
vestra, einnig bætt við sig
leikstjórninni.
RICH KIDS, nefnist
mynd sem vakið hefur
mikla eftirtekt og hlotið
góða dóma vestan hafs í
sumar. Efnið er sérstætt
og óvenjulegt, eða hvernig
tólf ára unglingar bregð-
ast við hjónaskilnaði í
fjölskyldunni. Þau Trini