Morgunblaðið - 14.09.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980
61
Kristinn breKður mælistikunni á skilninKstréð. sem er rúmleKa 5 m.
hátt birkitré og lifandi sönnun þess að Reykjanesskaginn er ekki
ólifvænlcKri staður fyrir trjáKróður en hver annar.
(Ljósm. Hildur IlelKa S.)
Þarna hefur sauðkindin komist í nýKræðinK ok naKað. övíst er hvort
þessi litla Kreniplanta á sér viðreisnar von eftir þá viðkynninKU. en
Björn Þorsteinsson vill friða ReykjanesskaKann fyrir sauðfé.
(Mynd. H.H.S.)
hefur tekist misvel, því eins og
áður sagði er girðingin ekki
fjárheld nema að hluta til og
er þeim, sem þarna hafa lagt
fram starfskrafta sína á liðn-
um árum því ekki nema í
meðallagi hlýtt til sauðkindar-
innar, eða réttara sagt eigenda
búsmala, sem að þeirra dómi
hirða ekki nægilega um að
halda fé sínu innan hæfilegra
marka. „En margar trjáteg-
undir eru ótrúlega lífseigar,"
sagði Björn. „Og ef trjágróður
vex, þá vex allt annað. Leirinn,
sem hér er sums staðar, er
dauður jarðvegur, en þar sem
t.d. birki hefur náð að festa
rætur, er lífefnaverksmiðjan
komin í gang. Hér er, eins og
sjá má, mikið um birki og það
vex vel, þótt það fari seint af
stað á vorin. Birkigróðurinn
sýnir okkur hvernig Reykja-
nesskaginn var, áður en eyð-
ingin hófst. Þetta er allt mikið
þolinmæðiverk. Fyrstu fimm
árin gerist lítið, en eftir að
rótarkerfið er komið, marg-
faldast gróðurinn. A þessu
svæði er ekkert grunnvatn en
hér rignir meira en í Reykja-
vík. Trjátopparnir eru í
styttra lagi í ár og er það
þurrkurinn, sem verið hefur,
sem þar er að verki.
Sumarið hefur annars verið
gott og hvergi vottað fyrir
maðki eða lús,“ sögðu þeir
félagar Björn og Kristinn.
Eins og fram hefur komið, er
birkið ein höfuðprýði tilrauna-
svæðisins og auk skilnings-
trésins minna stórir og falleg-
ir birkirunnarnir á það hvern-
ig umhorfs var á Reykjanes-
skaganum, er hann var eitt
gróðursælasta svæði landsins,
áður en sauðkindin og mann-
skepnan eyddu honum í sam-
einingu. Að sögn Björns Þor-
steinssonar hefur talsvert ver-
ið borið á birkirunnana, en
birkið vex einnig utan girð-
ingar. Hrauntungubirkið, eins
og Björn nefnir það, er hvít-
stofna og mjög harðgert.
Ekki verður skilið við þenn-
an gróðurreit í „tilraunastöð
skaparans í landasmíð" án
þess að minnast á lúpínuna,
sem er undirstöðuplanta í
landbroti, en að sögn þeirra
Björns og Kristins sækir sauð-
fé mjög í hana. En ekki var
annað að sjá en að lúpínan
myndi halda velli, líkt og
flestar hinna mörgu tegunda,
sem öðlast hafa griðland í
þessum tilraunareit og verður
eflaust fróðlegt að litast um í
landi Straums að fáum árum
liðnum, a.m.k. fyrir þá, sem
kunna að hafa haldið að
Reykjanesskaginn væri gróð-
urlaus auðn og að sjálfsögðu
einnig fyrir hina, sem vissu
betur- H.H.S.
Verksmiójusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Geriö góð kaup í úrvalsvöru.
Opiö virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Sími 28720.
AHt ti! aö
auka listina
í hinni nýju teiknivörudeild Pennans Hallarmúla 2
höfum viö á boðstólum m.a.:
olíuliti, acrylliti, vatnsliti, pastelliti, Pappir í flestum gerðum, ramma
striga, blindramma, pensla allskon- fyrir grafikmyndir, dúkskuróarsett,
ar, oliur, þurrkefni, pallettur og dúk og liti.
trönur.
Sendum í póstkröfu.
Hallarmúla 2 sími 83211.