Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1997, Síða 22
A FERÐ MEÐ FRU DAISY, JOLALEIKRIT LA, FRUMSYNT A RENNIVERKSTÆÐINU
* DÁLÍTIÐ
HORN-
ón
I ÚN ER dálítið hornótt,“ segir
I Sigurveig Jónsdóttir sem leikur
■________■ titilhlutverkið í jólaverkefni Leik-
I félags Akureyrar, Á ferð með frú
I Daisy, sem frumsýnt verður á
I Renniverkstæðinu við Strand-
I götu annan dag jóla. Aífred Uhry
■ samdi leikritið og var það frum-
sýnt í New York fyrir tíu árum, 1987, og vann það
Pulitzer-verðlaunin sama ár. TVeimur árum síðar
fékk kvikmyndin Driving Miss Daisy sem gerð var
eftir leikritinu til fjölda Óskarsverðlauna. Sýning
Leikfélags Akureyrar er frumsýning þess hér á
landi.
Þráinn Karlsson fer með hlutverk þeldökka bíl-
stjórans Hoke Colebum og Aðalsteinn Bergdal
leikur son Daisy Boohe Werthan. Leikstjóri er Ás-
dís Skúladóttir, Elísabet Snorradóttir þýddi leik-
ritið, Ingvar Björnsson hannar lýsingu og Hlin
Gunnarsdóttir leikmynd og búninga.
Leikritið gerist í Atlanta í Georgíu á árunum
1948 til 1973 og er Daisy Werthan 72ja ári í upp-
hafi þess. Hún er gyðingur, líkt og foreldrar höf-
undarins, en honum fannst hann upplifa bernsku
sína í Georgíu og færast nær gyðingdómnum við
það að skrifa um frú Daisy. Hann var 53 ára gam-
all þegar hann skrifaði þetta leikrit og er það
fyrsta verk hans sem ekki var söngleikur, en hann
hafði haslað sér völl á þeim vettvangi að loknu
námi. Verkið hefst sama ár og Israelsríki er stofn-
að og helför gyðinga er mönnum þá enn í fersku
minni. Þrátt fyrir nöturlegan bakgrunn gæðir
Uhry leikrit sitt hlýrri kímni og lýsir af næmni
kynnum þeirra Daisy og Hoke, sem bindast sterk-
um böndum þótt þau komi úr gjörólíku umhverfl
og forsendur þeirra í lífinu séu misjafnar.
Öndvegiskona
„Frú Daisy er afskaplega sjálfstæð kona, hún
hefur verið ekkja í mörg ár og vill stjórna. Hún
verður alveg ómöguleg þegar hún verður fyrir því
óhappi að keyra á, en í kjölfarið heimtar sonur
hennar að hún hætti að keyra sjálf og þá versnar
nú aldeihs í því. Nú kemst hún ekki ein ferða sinna
og finnst þar af leiðandi að hún eigi ekki neitt
einkalíf,“ segir Sigurveig um frú Daisy.
Hún segist ævinlega leita að jákvæðu punktun-
um í þeim persónum sem hún leikur hverju sinni
og þannig finnst henni frúin öndvegiskona á sinn
hátt. „Hún er gyðingur, hefur horft upp á margt í
_; lífinu og reynt margt misjafnt sjálf, alin upp í fá-
tækt og við mikinn sparnað, er svolítið sparsöm,
en hefur margar góðar hhðar. Mér þykir ofsalega
vænt um hana.“
í upphafi æfingatímans fór leikstjórinn Ásdís
Skúladóttir yfir mikið efni, m.a. gyðingatrú og á
hverju hún byggist og réttindabaráttu blökku-
manna. „Þetta var góður grunnur að byggja á,“
segir Sigurveig.
Snöggar skiptingar
Sigurveig segir að hlutverkið sé erfitt, það er
heilmikið um að vera baksviðs, búningaskipti ör og
þá færist aldurinn yfir eftir því sem líður á leikritið,
en Daisy er orðin 97 ára þegar leiknum lýkur. I
einni skiptingunni fer hún út á einum stað, þarf að
hlaupa út úr húsinu á meðan nokkrum árum er
bætt á og kemur svo inn á öðrum stað. „Það eru
mjög snöggar skiptingar og við erum á fullu allan
* tímann,“ segir Sigurveig en sviðið tekur líka breyt-
ingum, leikritið gerist á heimili Daisy, í bílnum,
heima hjá syni hennar og á skrifstofu. „Hart í bak
gekk svo vel að við fengum sviðið seint, álagið er
því meira á öllum sem nærri koma, en fólk hefur
lagt sig fram og þannig smellur þetta aht saman.“
Sigurveig byrjaði að leika hjá Leikfélagi Akur-
eyrar árið 1949 í Örustunni á Hálogalandi, lék þá
færeysk/danska stúlku en þau eru orðin ófá hlut-
verkin sem hún hefur farið með hjá félaginu. Hún
hefur búið í Reykjavík síðustu ár en ávallt komið
af og til sem gestaleikari hjá leikfélaginu og kann
því vel. Síðast lék hún Karólínu spákonu í Djöfla-
eyjunni. „Það er afskaplega góður hópur hérna,
við höfum leikið mikið saman, ég, Þráinn og Aðal-
•r steinn og gjörþekkjum hvert annað.“
Frumsýning er sem fyrr segir annan dag jóla,
kl. 20.30, þrjár aðrar sýningar verða milli jóla og
nýjárs, 27. 28. og 30. desember. Þá verður tekið
hlé þar til sýningar hefjast að nýju aðra helgina í
janúar.
Morgunblaðið/Kristján
A FERð með frú Daisy. Sigurveig Jónsdóttir og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum.
„HÚN er dálítið homótt,“ BÍLSTJÓRINN og sonurinn.
segir Sigurveig um Daisy. Þráinn Karlsson og Aðalsteinn Bergdal.
1
22 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 20. DESEMBER 1997