Lesbók Morgunblaðsins - 27.04.1969, Side 23
gáfu Sigurðar Nordals á Ijóð-
um Stephans G. Stephanssonar,
er Mál og menning gaf út á
sínum tíma. Andúð mín á naz-
ismanum varð hyldjúp við að
kynnast honum í Þýzkalandi
fyrir heimsstyrjöldina síðari,
þótt ég annars meti þýzku
þjóðina mjög mikils og harmi
örlög hennar, að hún skyldi ekki
finna í tæka tíð aðra leið út
úr öngþveiti mi'llistríðsáranna
og verða öfgastefnum kommún-
isma fyrst og nazismans síðar
að bráð.“
„Viltu skilgreina nánar
blekkingu nazismans?“
„Ég gæti að nokkru tekið
undir með hinum heims-
kunna guðfrœðingi Karl Barth,
er hann á að hafa sagt, að
kommúmsminn vaeri kristin
villukenning, en nazisminn
gjörheiðin. Hvað nazismann
snertir hafði hann norræn
menningarverðmæti að yfir-
varpi einu, en neitaði krafti
þeirrar menningar svo gjör-
heiðin sem sú stefna var og
raunar plægður akurinn blóð-
ugum arði styrjalda og ann-
arra öfgastefna, er nazisminn
lærði baráttuaðferðir af, en
hagnýtti sér, hve afvega þær
höfðu leitt fólk frá mannleika,
siðgæði og guðstrú. Viðkvæmi
fyrir þjóðernisjitefnum fer oft
út í öfgar, smbr. það þegar
Bertrand Russel teOiur Rouss-
eau forvígismann nazismans".
Séra Eiríkur kvað hið guð-
lega og maninlega, sem spyrj-
andi hefði vikið að, ekki þær
andstæður, er margir vildu
vera láta, „og virðist sjálfur
höfuðspámaður þeirrar arid-
stæðu Karl Barth hafa brúað
það djúp að nokkru í síðustu
verkum sínum.“
Til frekari skýringar bætti
hann því við, að Grundtvig og
Karl Barth væru ekki þær and
stæður, sem virðast mætti án
nánari kynna. Karl Barth lýk-
ur mesta trúfræðiriti allra
tima, dogmatik sinni, á tilvitn-
un í Rómverjalbréfið 12.12. að
við séum glaðiir í voninni.
Persónulegur þroski
„Hver er þungamiðjan í
stefnu ungmennafélaganna?“
„Persónulegur þroski er
stefnuskráratriði ungmennafé-
lagshreyfingarinnar. Það skal
játað, að þroskahugtakið í sam-
bandi við einstaklinginn getur
leitt til ofurmennskudýrkunar
í andstöðu við trúna. Sama er
að segja um frelsishugsjón 19.
aldar manna, sem svo mjög
gætti hér á landi í byrjun þess-
arar aldar og aldamótakynslóð-
in mótaðist mjög af. Einnig hún
gat virzt andstæð kirkju og trú.
Sem gamall tungumálkennari
staðnæmist ég oft við einstök
orð og uppruna þeirra. Orðið
trú er á erlendum málum religi-
on, greinir menn að vísu á um
frummerkingu þessa orðs, en
kunn er skilgreining Ágústín-
usar, að orðið sé dregið af latn-
esku sögninni religo, sem þýð-
ir að tengja eða binda að nýju.
Frelsisuninandi maður og hug-
sjóna er raunar bundinn og á
valdi hugsjóna sinna og draum-
sýna. Ein elzta merking orðs-
ins religio er líf bundið heiti,
svo sem munkalífi“.
Séra Eiríkur heldur áfram:
„Kristindómurinn er orðinn ti'l
á hugsjónatímum og þannig
hlýtur trúin að eiga sér ræt-
ur, þar sem eftirvænting ríkir
og sálræn verðmætl eru mtJnn-
um hugleikin, ofar efnisgæð-
um og hversdagslegu lífi.
Benda má á, að t.d. þótt Gyð-
ingar og kristnir menn eigi
ekki í öllu samleið í trúarefn-
um og guðsríkið sé Gyðingum
enn hugsjón en fyrir kristnum
mönnum staðreynd í Jesú
Kristi, er Gyðingdómurinn þó
jarðvegurirun.“
„Stangast kristin viðfhorf
ekki á við ýmsa veraldlega um-
sýslu, sem fylgja ungmennafé-
lagsstörfum?"
„Þar er ekki annaðhvort eða
að ræða, heldur bæði og.
Grundtvig, sem vitnað hefur
verið ti'l áður og enn er mönn-
um í rikum mæli boðberi tíma-
bærra sanninda taldi norræn
lífsviðhorf, er fram koma í bók-
menntum okkar, áfangastað á
leiðinni til vegarenda.“
„Hvernig aðstöðu hefur þú
vegna skiptra áhugamála þinna
til þess að sinna hlutverki þínu
sem leiðtogi ungmennafélaga?“
„U ngmennafélagshreyf ingin
vann mikinn sigur með íþrótta-
lögunum 1930. Þá hófust lands-
mótin á nýjan leik, sem hafa
haft mik'la þýðingu fyrir æsku-
lýðsstarf úti á landsbyggðimni,
sérstak'lega iþróttalega. Mörg
viðfangsefnin kalla að. Árin
eftir síðari heimsstyrjöldina
einkenndust af nokkurri
þreytu, hvað hugsjónalegt starf
snerti meðal ungs fólks. Þjóð-
ernismál biðu og skipbrot, þar
sem nazisminn var, er spillti
fyrir þjóðlegum áhuga. Nú
sýna þjóðernisstefnur þrótt á
nýjan 'leik og sérfróðir menn
um æskulýðsmál telja, að upp-
reisn skólaæsku ýmissa landa
eigi að verulegu leyti rætur að
rekja til hugsjónalegs sveltis,
þar sem sérfræði vísindanna út
rými um of þjónustunni, fé-
lagslegri þörf æskunnar og að
hún fái tækifæri til að keppa
að persónulegum þroska sín-
um. Nýr baráttutími fer því í
hönd með auknum möguleikum
samhliða kröfum tímans, er
kalla á nýja menn sígildra
hugsjóna í búningi við hæfi
nýrrar kynslóðar".
„Hvað um framtíð ungmenna-
félagshreyfingarinnar?
„Ungmennafélögin eru til orð
in mörg á erfiðleikatímum, hvað
ytri hag þjóðarinnar snertir,
þótt menn væru þá bjartsýnir,
og enn er þörf bjartsýnna bar-
áttumanna, ungra og ótrauðra
til að fást við þjóðarvanda sem
leystur verður, ekki einungis
með efnahagsráðstöfunum, held
ur vorhug, smbr. erindi Stein-
gríms Thorsteinsson, er valin
voru sem einkunnarorð söngva
handa ungmennafélögum ís-
lands, er prentaðir voru í Prent
smiðju Suðuflands, Eyrar-
bakka, árið áður en ég fædd-
ist:
Upp á við til himins horfðu
hátt er merkið sett
Eftir þekking stefn og stunda
styð svo frelsið rétt.
Annars lánast ei þitt nýja
endurreisnarverk.
Fyrir andans framför eina
fólksins hönd er sterk.
Bækurnar
Þjóðgarðsvörður á veglegt
einka-bókasafn. Hann er kvænt
ur frú Kristínu Jónsdóttur úr
Dýrafirði og hafa þau eignazt
eflefu börn, sem er andlegur
auður út af fyrir sig eins og
þessar mörgu bækur.
„Þú átt fleiri bækur og
börn en almennt tíðkast —
er það líka tengt hugsjónum?
„Þegar ég gerðist kennari á
Núpi var ég vanbúinn að
kenna hinar sundurleitustu
námsgreinar. Þessi kennsla
kostaði mig mikið nám og um
leið bókakost — ekki sízt bók-
menntakennslan. Leiksýningar
voru fyrirferðarmikill liður í
féiagslífi skólans sem og bók-
menntakynning þar. Þanndg er
bókasafn mitt til orðið, og þetta
upphaf þess setur svip sinn á
það, svo að það er að litlu
leyti sambærilegt við bókasöfn
Þorsteins Dalasýslumanns, Da-
víðs ská'lds frá Fagraskógi, Þor
steins M. Jónssonar og Þor-
steins Jósepssonar, svo að dæmi
séu nefnd, söfn, sem geyma ó-
grynni þjóðardýrgripa. Hfefur
varla verið unnið unnið drengi-
legra menningarverk en er
Sigurbjörn Einarsson biskup
fékk Þorsteins-safni komið
fyrir í Skálholti með hinum ó-
viðjafnanlegu Skálholtsbókum
þess“.
„Þú gerir litið úr bókasöfn-
un þinni — en heimtar ekki
þessi bókasöfnunarhneigð æ
meiri útrás?‘
„Persónulega taldi ég ófor-
svaranlegt að hafa eignazt svo
margt bóka sem raun var á
orðin án þess að þær hefðu
einnig nokkurt fjármunalegt
gildi, er ég væri allur. Varð
Helgi Tryggvason bókbindari
mér ómetanileg hjálparhella að
eignast heillega bókaflokka,
einkum í þjóðlegum íslenzkum
fræðum. Söfnunarhneigð er
ekki kjarni þessa máls. í starfi
mínu sem kennari og félags- og
forystumaður hef ég viljað'leita
að þjóðlegum sígildum grund-
velli og hafa bækumar reynzt
mér ómissandi í þeirri viðleitni
sem og að sjálfsögðu gott fólk
og þá einkum unglingar".
„Hefur bókasafn þitt þýð-
ingu fyrir þig sem sálræn
menntunarleg eign eða öllu
heldur gefa bækurnar þér ei-
'lífa snertingu við heimskúltúr,
svo að þú staðnir ekki?“
„Jú, sú er grundvallarmein-
ing bókaeignar minnar, en bók-
in stendur og fellur með lífs-
tjáningargildi sínu og verður
að haldast í hendur bóklestur
og lífræn tengsl við samtíðina,
viðfangsefni hennar, kröfur“.
PICASSO’S GUERNICA. Anth-
ony Blunt. The Whidden Lect-
ures for 1966. Oxford Universi-
ty Press 1969. 25s.
Árásin á Guernica var Pi-
casso tilefni til þess að mála
samnefnda mynd, sem er meðal
frægustu mynda hans. í þessu
kveri er rakin tilorðning mynd-
arinnar og forsendur hennar í
hugarheimi málarans, þar í tal-
in áhrif úr goðafræði, heimspeki,
bOlcmenntum og listaverkum
nútíðar og fortíðar. Margar
myndir fylgja til skýringar og
Guernica að bókarlokum. Höf-
undurinn er prófessor í lista-
sögu við Lundúnaháskóla. Hann
segir að málverkið sé eitt þeirra
fáu, þar sem reynsla og tilraun-
ir um árabil kristallist og taki á
sig nýja mynd og merkingu.
Málverkið sé í rauninni endur-
fæðing málarans sjálfs til fyllri
meðvitundar um sig og heim-
inn.
THE SEXUAL WILDERNESS.
The Upheaval in Male-Female
Relationship: the Breakuproof
Traditional Morality: New
Trends in Sexual Behaviour am-
ong the Young. Vance Pacard.
Longmans 1968. 36s.
Bækur sem þessi eru öruggar
sölubækur, hvort sem þær eru
merkar eða ómerkar Þessi bók
er eftir mann, sem hefur ritað
nokkrar bækur varðandi ýmis
konar neikvæði nútíma þjóðfé-
lags, hann hefur einkar gott lag
á að setja efnið þannig fram að
flestir sem læsir eru eigi að því
greiðan aðgang og megi hafa þar
af nokkurra fræðslu um fyrir-
brigðin. í þessari bók sinni birt-
ir hann rannsóknir sínar á kyn-
hegðun unglinga og háskólastú-
denta í Bandaríkjunum, Bret-
landi og fjórum öðrum löndum.
Mikið af efninu er upptugga í
nýmóðins umbúðum, með með-
íyigjandi statistík og prósentu-
sannleika. Þetta er Kinsley sál-
ugi endurfæddur í svolítið öðr-
um búningi og ofurlítið tak-
markaðri. Tölfræðilegir kynórar
verða þreytandi til lengdar. Höf-
undur hættir sér ekki út í leit
dýpri raka fyrir hegðun nútim-
anna á þessu sviði og lætur sí-
bernskt kjaftæði heimildarmanna
og tölfræðilegar skrár nægja.
Þetta er eitt þeirra hálf-fræði-
rita, sem fjölgar með hverjum
degi í bókabúðum og blaðaturn-
um, og mun seljast 1 svipuðum
mæli og lélegri klámrit.
Enquire Within upon everything.
Gorgi 1969.
Rit þetta er talið hafa komið
út í 123 útgáfum. Þetta er nokk-
urskonar handbók húsmæðra og
heimilisfeðra og hér er drepið á
flest það, sem varðar heimilis-
hald í nútíma þjóðfélagi og það
sem talið er að hver maður og
kona eigi að kunna einhver skil á
Hér eru heilsufræðilegar ráðlegg-
ingar, mannasiðir, hjálp í viðlög-
um, garðyrkja, menntun, íþróttir,
blómaskreyting, heimboð, listir,
ferðalög og ótal margt annað í
formi upplýsinga eða ráðlegginga.
I þessari bók má auðveldlega
finna hitt og þetta, sem ekki er
alltaf auðvelt að finna.
Westviking. The Ancient Norse
in Greeniand and North America.
Farley Mowat. Secker & War-
burg 1966. 50/—
Útgáfa Vínlandskortsins 1965
vakti nokkur skrif um landnám og
ferðir norrænna manna til Græn-
lands og Ameríku. Þegar Vínlands
kortið kom út. hafði Farley Mowat
gefið út bók sína „Westviking".
sem var endurprentuð og gefin út
af Secker & Warburg í London.
Höfundurinn er Kanadamaður og
hefur starfað á vegum Kanada-
stjórnar að rannsókn á auðlindum
landsins, allt þar til þess að hann
gaf út bók sína um Ihalmiut Eski-
móana. I þeirri bók lýsti hann lifn-
aðarmáta þessa þjóðflokks, en sú
lýsing varð ekki til þess að víð-
frægja umhyggju Kanadastjórnar
fyrir frumbyggjum landsins og
hann varð að hverfa úr opinberri
þjónustu. Síðan hefur hann
stundað ritstörf og býr nú á Ný-
fundnalandi.
Höfundur ritar í þessari bók um
ferðir norrænna manna til Græn-
lands og meginlands Norður
Ameriku. Mikið magn bóka hefur
verið sett saman um þessar
ferðir, og stemma þær allar að
einum ósi, frumheimildum, sem
settar voru saman hér á landi á
miðöldum. Ritaðar heimildir um
aðrar ferðir eru af mjög skornum
skammti og margar þeirra hafa
hingað til verið taldar hæpnar.
Einnig ræðir höfundur ferðir ískra
manna til þessara landa og hing-
að til lands. Höfundur gerir sér
heimsmynd frá þessum tímum,
dregur saman oft hæpnar heim-
ildir og reisir á þessum brotum
frásögn um atburði og landkönn-
un, sem engar öruggar heimildir
eru um. Hann fantaserar um dvöl
Kelta á Grænlandi, telur að þeir
hafi leitað þangað á flótta undan
norrænum mönnum á Islandi og
fleira í þeim dúr. Niðurstöður
höfundar um landkönnun irskra
manna og búsetu eru mjög hæpn-
ar og meðferð hans á heimildum
helgast af þeirri niðurstöðu sem
hann hefur ákveðið að stemma
að. Aftur á móti er höfundur vel
kunnugur landsháttum í norður-
hluta Kanada og á Nýfundnalandi
og einnig er hann fróður um
siglingatækni og hafstrauma og
sjólag undan þessum landsvæð-
um. Bókin er fiörlega rituð, en
hæpin sem fræðirit.
Hngolagðor
Hundrað krónur fyrir lík.
Eftir fjögurra ára nám á
læknaskólanum tókum við fyrri
hluta prófsins, en síðari hlut-
ann í janúar árið eftir. En svo
var eftir að prófa í skurðlækn-
ingum. Þetta dróst vegna þess
að ekkert lík féllst til um þess-
ar mundir .. . Loks var það
10. febr., að við fréttum að
gömul kona hefði dáið í Firð-
inum. Einn af okkur fjórmenn-
ingunum, sem tókum próf, var
Jónas Kristjánsson. Var hon-
um nú falin framkvæmd í máli
þessu. Fékk hann lánaðan hest
og reið þegar um kvöldið suður
í Hafnarfjörð, og hvort þeir nú
ekkjumaðurinn og hann, þing-
uðu um þetta lengur eða -skem-
ur, þá varð það úr að Jónas
kom með kerlinguna og galt
fyrir hana 100 krónur, þótt
hún væri stórgölluð, ölll þrút-
in af bjúg og því miklu óhægra
með greiningu vefja. Það
gladdi okkur að geta nú lokið
prófinu og borguðum fúslega
sínar 25 krónurnar hver, en ég
hygg að skólinn eða hið opin-
bera hafi orðið að sjá um út-
förina.
(Ingólfur Gíslason.)
Fékk þjónustu og andaðist síð-
an.
Mörg tíðindi urðu þá önnur.
Hafði það verið um veturinn
að veður mikil rauf víða hús
og hey, en um vorið þann 9.
dag maí, miðvikudaginn fyrir
uppstigningardag, að snjóflóð
tók af bæinn að Vatnsenda í
Héðinsfirði, bóndann, Tómas
Pétursson, konu hans og barn
þeirra eitt hið yngsta, en vinnu
konu varð náð út um baðstofu-
glugga þrekaðri mjög. Var hún
flutt ofan að Vík, fékk þjón-
ustu og andaðist síðan, en hin
eldri börnin voru í heytótt við
bæinn og fengu grafið sig út
sjálf.
(Árbækur Espólíns 1705).
27. apríl 1969
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 23