Morgunblaðið - 10.03.2000, Page 41
40 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUD AGUR 10. MARS 2000 41
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMNINGAR
TRYGGJA
STÖÐU GLEIKA
SAMKOMULAG tókst í fyrrinótt milli Samtaka atvinnulífs-
ins (SA) og Flóabandalagsins svonefnda um megininntak
nýs kjarasamnings, sem gert er ráð fyrir að verði undirritaður á
laugardag eða þegar ljóst er á hvern hátt ríkisvaldið kemur inn í
samningsgerðina til þess að liðka fyrir. Samkvæmt samkomu-
laginu munu lágmarkslaun hækka í 91 þúsund krónur á samn-
ingstímabilinu. Hækka þau um 8,9% við undirritun samnings og
síðar tvisvar á samningstímanum um 6,5% og 5,25%.
Almenn launahækkun samkvæmt samkomulaginu verður
3,9% frá 1. mars, 3% frá næstkomandi áramótum, 3% 1. janúar
2002 og 2,25% 1. janúar 2003. Samkomulagið felur auk þess í sér
viðbótarframlag atvinnurekenda í séreignalífeyrissjóð sem
verði 1% frá og með 1. maí gegn 2% framlagi starfsmanns en
hækkar í 2% gegn 2% framlagi starf°smanns 1. janúar 2002.
I starfsmenntamálunum hafa samningsaðilar komið sér sam-
an um að setja á fót sérstakt verkefni. Á samningstímabilinu
munu samningsaðilar vinna að eftir- og endurmenntun ófag-
lærðra starfsmanna. Markmiðið er að treysta stöðu einstak-
linga á vinnumarkaði en stofnuð verður sérstök verkefnisstjórn
skipuð þremur aðilum frá fulltrúum stéttarfélaga og þremur frá
Samtökum atvinnulífsins.
Ekki fer á milli mála, að forráðamenn hins svonefnda Flóa-
bandalags, sem eru verkalýðsfélögin í Reykjavík, Hafnarfirði
og í Keflavík, hafa náð fram mikilsverðum kjarabótum fyrir fé-
lagsmenn sína með þessum samningi. Þar er ekki sízt ástæða til
að nefna samkomulagið um verulega hækkun lágmarkslauna en
jafnframt eru auknar greiðslur atvinnurekenda í lífeyrissjóði á
samningstímanum mikilvæg kjarabót fyrir launþega. Launa-
hækkunin sjálf er í takt við það, sem verið hefur undanfarin ár.
Fyrir atvinnurekendur er þessi samningur mikilvægur vegna
þess að hann tryggir vinnufrið og mun eiga þátt i að viðhalda
þeim stöðugleika í efnahagsmálum, sem hér hefur ríkt um all-
langt skeið. Margir hafa haft áhyggjur af því, að kjarasamning-
arnir mundu fara úr skorðum og leiða til þess að verðbólgan færi
af stað á nýjan leik. Eftir þessa samninga er ekki ástæða til að
hafa umtalsverðar áhyggjur af því.
Þótt samið hafi verið á milli þeirra aðila, sem komu að samn-
ingaborðinu nú, er kjarasamningagerðinni ekki lokið. En það er
alveg ljóst, að þessir samningar eru stefnumarkandi fyrir þá
samninga, sem á eftir að gera. Þeir sem reyna að brjótast út úr
þessum ramma munu ekki hafa erindi sem erfiði. I þeim efnum
er líka mikilvægt, að ríkið, í þeim samningum, sem það gerir við
opinbera starfsmenn, haldi sig við þær línur, sem hér hafa verið
lagðar. í Ijósi þeirrar gagnrýni, sem stjórnvöld hafa sætt vegna
samningagerðar síðustu ára, verður að ganga út frá því sem
vísu, að samningamenn ríkisins haldi fast við þá stefnu, sem
mörkuð hefur verið í þessum samningum.
Samningamenn aðila eiga þakkir skildar fyrir þessa samn-
inga. Það á ekki sízt við um fulltrúa verkalýðsfélaganna, sem að
þessu leyti eru í erfiðari stöðu en fulltrúar atvinnurekenda.
Fulltrúar Flóabandalagsins hafa sýnt ábyrgð í samningunum en
jafnframt náð fram miklu fyrir umbjóðendur sína. Það er
ástæða til bjartsýni um framtíðina eftir þessa samningagerð.
SKÓLATORG-
TÍMANNA TÁKN
SKÓLATORG - hið gagnvirka samskiptakerfí heimila og grunn-
skóla, sem nú er verið að hleypa af stokkunum í tilraunaskyni,
er tímanna tákn um breytt og nútímaleg samskipti, á upplýsingaöld.
Greint var frá þessu tilraunaverkefni eins grunnskóla og þriggja
fyrirtækja hér í Morgunblaðinu í fyrradag.
Hugmyndin að þessu nýja samskiptakerfi varð til í einum grunn-
skólanum, Selásskóla, en hún þróaðist út í samstarfsverkefni skól-
ans við þrjú upplýsingafyrirtæki, Tæknival, Skýrr og Strik.is. Hið
nýja samskiptakerfi mun standa öllum grunnskólum landsins til
boða í haust og þannig er áætlað að Skólatorgið muni ná til rúmlega
107 þúsund landsmanna sem tengjast bömum á grunnskólaaldri.
Samskipti heimila og grunnskóla hafa lengstum verið afar tak-
mörkuð og einskorðast helst við skriflegar orðsendingar úr skólum,
þar sem tilkynnt er um foreldrafundi, foreldraviðtöl og þess háttar
og skólinn hefur síðan úthlutað foreldrunum ákveðnum tíma, til
þess að mæta í skólann, hitta að máli kennara, einn eða fleiri, og
reyna með slíkum fátíðum heimsóknum að fá einhverja innsýn í
starf það sem barn eða börn viðkomandi foreldris inna af hendi í
skólanum dag hvem.
Þetta er gamaldags og úrelt iyrirkomulag á samskiptum heimila
og skóla og hentar illa í samfélagi nútímans, þar sem reglan, en ekki
undantekningin, er sú, að báðir foreldrar vinna úti.
Því er það bæði uppbyggilegt og ánægjulegt framlag til betra
samstarfs skóla og heimila, að verið sé að þróa gagnvirkt sam-
skiptakerfi foreldra og gmnnskóla á Netinu, sem mun auðvelda for-
eldrum mjög að fylgjast með skólastarfinu og væntanlega auka
mjög samskipti heimila og skóla og auðvelda, báðum til góðs.
deCODE leggur fram ítarlega greinargerð um áhættuþætti og rekstraróvissu í skráningarlýsingu
Engin trygging fyrir
árangri eða tekjum
✓
Rekstur og starfsemi Islenskrar erfðagrein-
ingar er mjög áhættusöm að því er fram
kemur í skráningarlýsingu sem deCODE
hefur sent bandarísku verðbréfa- og kaup-
hallarnefndinni. Skv. reglum um skráningu á
alþjóðlegum hlutabréfamarkaði ber fyrirtæk-
inu að lýsa ítarlega fjölmörgum áhættuþátt-
um sem starfsemi þess er háð fyrir væntan-
lega kaupendur og eru þeir raktir í
skráningarlýsingunni, sem birt var í gær.
Morgunblaðið/Kristinn.
Frá afliendingu rekstrarleyfis fyrir gagnagrunn á heilbrigðissviði í janúar síðastliðnum.
IÍTARLEGRI bráðabirgða-
skráningarlýsingu deCODE
genetics Inc., móðurfélags ís-
lenskrar erfðagreiningar, sem
fyrirtækið hefur samið, eru taldir upp
fjölmargir áhættuþættir í starfsemi
fyrirtækisins sem væntanlegum fjár-
festum er bent á að kynna sér vel.
Tekið er fram að engin trygging sé
fyrir því að fyrirtækið afli þeirra
tekna af framleiðslu eða þjónustu
sinni sem að er stefnt.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru í gildi strangar reglur um
að fyrirtæki sem sækja um skráningu
á verðbréfamarkaði hjá bandarísku
verðbréfa- og kauphallarnefndinni
beri að gera væntanlegum kaupend-
um nákvæma grein fyrir öllum mögu-
legum áhættuþáttum sem til staðar
eru, ella megi búast við málsókn hafi
mögulegum fjárfestum hafa ekki verið
birtir fyrirvarar af þessu tagi.
Starfsemi, fjárhagsstöðu og
rannsóknum nákvæmlega lýst
í skráningarlýsingunni er að finna
nákvæma lýsingu á starfsemi og rann-
sóknum fyrirtækisins, fjárhagsstöðu
og fjármögnunarmöguleikum, þeim
kostum til erfðarannsókna sem til
staðar eru á íslandi og þeim reglum
og skilmálum sem de-
CODE ber að íylgja.
Bent er á að frá stofnun
1996 hafi starfsmönnum
deCODE tekist að stað-
setja 8 svæði sjúkdóms-
valdandi erfðavísa og náðst sá árang-
ur að greina nákvæmar staðsetningu
12 meingena.
Þá er fjallað ítarlega um samstarf
fyrirtækisins við lyfjafyrirtækið Hoff-
man La Roche um rannsóknir á 12
erfðasjúkdómum og greint frá því að
fram á þennan dag hafi í fjórum tilvik-
um tekist að ná sérstökum árangurs-
viðmiðunum sem samkomulagið geri
ráð fyrir.
Leit að sjúkdómsvaldandi genum
komin skammt á veg
Athygli fjárfesta er vakin á fjöl-
mörgum áhættuþáttum sem taldir eru
upp í sérstökum kafla í skráningarlýs-
ingunni. Þar segir m.a. að leitin að
meingengum sé enn tiltölulega
skammt á veg komin og ekki sé tryggt
að hægt verði að búa til söluhæfar
markaðsvörur úr niðurstöðum rann-
sóknanna. deCODE einbeitir sér að
því að finna gen eða genahluta sem
hafi áhrif á eða valdi sjúkdómum og þó
tekist hafi að afmarka ákveðin svæði
gena á litningi og staðsetja þau, hafi
enn ekki tekist að staðfesta nein sjúk-
dómsvaldandi gen á svæði. Einnig er
tekið fram að orsakir þeirra sjúkdóma
sem til rannsóknar eru séu yfirleitt
taldar bæði stafa af erfðafræðilegum
toga og af umhverfisáhrifum.
Takmörkuð þekking á
hlut gena í sjúkdómum
Lýst er væntanlegum gagnagi’unni
á heilbrigðissviði og ættfræðigrunni
og grunni með erfðafræðilegum upp-
lýsingum sem byggðir hafa verið upp
innan fyrirtækisins og
greint frá ýmsum tak-
mörkunum sem séu á úr-
vinnslu í þessum grunnum
og samtengingu upplýs-
inga úr þeim.
Bent er á að viðskiptaáætlanir fyr-
irtækisins séu byggðar á nýjum rann-
sóknaraðferðum og ekki hafi enn
fengist nein sönnun þess að þær skili
þeim árangri sem að er stefnt. „Vís-
indamenn hafa almennt séð takmark-
aða þekkingu á hvaða hlutverki erfða-
vísar gegna í sjúkdómum og aðeins
hafa verið framleidd fáein lyf sem
byggð eru á uppgötvun sjúkdómsvald-
andi erfðavísa," segir í lýsingunni.
Taprekstur fyrstu árin
Lýst er þeim áhættusama rekstri
sem DeCODE fæst við og greint er
frá því að taprekstur hafi verið af
starfsemi fyrirtækisins öll árin frá því
að það tók til starfa. Samanlagt tap af
rekstri fyrirtækisins frá upphafi til
síðustu mánaðamóta nemi 76,7 millj-
ónum Bandaríkjadala eða um 5,6
milljarða króna.
Ef um verði að ræða áframhaldandi
rekstrartap til lengri tíma en áætlanir
gera ráð fyrir eða í meiri mæli kunni
svo að fara að fyrirtækið þyrfti að
hætta starfsemi.
Gert ráð fyrir áframhaldandi
taprekstri í nokkur ár
Fyrirtækið hafi enn sem komið er
engum hagnaði skilað og einu umtals-
verðu tekjurnar sem það hafi til starf-
semi sinnar og rannsókna séu til-
komnar vegna rannsóknarsamstarfs-
ins við Hoffman La Roche auk fjár-
magnstekna en fram kemur í skrán-
ingarlýsingunni að fjárframlög Roche
standa undir um 96% af heildartekj-
um Islenskrar erfðagreiningar miðað
við seinustu áramót.
Gerir fyrirtækið ráð fyrir að á
næstu árum muni útgjöld þess aukast
ennfrekar vegna áframhaldandi þró-
unar tæknibúnaðar, rannsóknaáætl-
ana og undirbúnings að gerð miðlægs
gagnagrunns á heilbrigðissviði. Því sé
gert ráð fyrir áframhaldandi tap-
rekstri í nokkur ár til viðbótar áður en
fyrirtækið fari að skila hluthöfum sín-
um hagnaði.
Nauðsynlegt að viðhalda stuðn-
ingi íslensku þjóðarinnar
Ymsir fyrirvarar eru tilgreindir
varðandi frekari fjármögnun verkefna
og vaxandi starfsemi Islenskrar
erfðagreiningai’. Er því lýst yfir í
skráningarlýsingunni að gera megi
ráð fyrir að núverandi tekjuflæði fyr-
irtækisiris og áframhaldandi fjárfram-
lög sem reiknað er með af hálfu
Hoffman La Roche nægi til áfram-
haldandi starfsemi skv áætlunum að
minnsta kosti út árið 2001.
Forsendur þessara áætlana gætu
þó reynst rangar, segir í kaflanum um
áhættuþætti í rekstri deCODE.
Áframhaldandi stuðningur og sam-
vinna íslensku þjóðarinnar við ís-
lenskrar erfðagreiningu er sögð nauð-
synleg forsenda þess að fyrirtækið nái
árangri í erfðarannsóknum, söfnun
erfðaefnis og ef takast eigiað byggja
upp miðlægan gagnagrunn á heil-
brigðissviði, aðjjví er segir í skráning-
arlýsingunni. Áætlanir um úrvinnslu
erfðafræðilegra upplýsinga og sam-
tengingu við heilsufarsupplýsingar
eru háðar því að umtalsverður hluti ís-
lensku þjóðarinnar veiti fyrirtækinu
blóðsýni. Ef jafnvel lítill hluti þjóðar-
innai’ verði mótfallinn því að taka þátt
í rannsóknum gæti það minnkað
möguleika fyrirtækisins á
að búa til og selja á mark-
aði þekkingu sem unnin er
úr erfðaupplýsingum og
haft alvarleg áhrif á fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins.
Auk þessa eru taldir upp ýmsir
áhættuþættir sem raktir eru til þeirra
skilmála sem íslensk heilbrigðisyfir-
völd hafa sett fyrirtækinu, einkum í
rekstrarleyfi til starfræsklu miðlægs
gagnagrunns á heilbrigðissviði. Er
skilmálum og starfsreglum sem fyrir-
tækinu eru sett í rekstrarleyfi og
reglugerð um gagnagrunninn lýst ít-
arlega. Þá er sérstaklega tekið fram
að fyrirtækinu muni hugsanlega ekki
takast að ná samkomulagi við ís-
lenskrar heilbrigðisstofnanir og sjálf-
stætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn
um söfnun og skráningu heilsufars-
upplýsinga í miðlægan gagnagrunn.
Engin trygging sé fyrir því að slíkir
samningar náist og að þeir verði með
þeim skilmálum sem komi fyrirtækinu
best.
Málarekstur getur
valdið töfum
Ennfremur er tekið fram að sið-
ferðileg álitamál og persónuvemdar-
sjónarmið kunni að valda því að mögu-
leikar fyrirtækisins til að þróa og nýta
gagnagrunninn og vinnslu upplýsinga
til erfðarannsókna verði takmarkaðir,
sem gæti ennfremur leitt til mála-
rekstur á hendur fyrirtækinu eða rík-
isstjórn íslands. Greint er frá áform-
um Mannverndar og nokkurra lækna
um höfðun dómsmáls á hendur ís-
lenska ríkinu vegna gagnagrunns-
málsins og kæru sem send hefur verið
Eftirlitsstofnunar EFTA og bent á að
slík málaferli kunni að valda töfum á
uppbyggingu gagnagrunnsins. Skv.
samningi fyrirtækisins við heilbrigðis-
ráðuneytið hafi það skuldbundið sig til
að endurgreiða ríkinu allar þær bætur
sem kunna að falla á það í málum af
þessum toga.
Þá er varað sérstaklega við því að
fyrirtækið eigi í harðri samkeppni við
önnur líftæknifyrirtæki og rannsókn-
arstofnanir sem leita að meingenum
og sækja jafnharðan um einkaleyfi á
uppgötvunum sínum. „Margir sam-
keppnisaðilar okkar hafa töluvert
sterkari fjárhagsstöðu en við, og fleiri
starfsmenn og betri búnað til rann-
sókna en við höfum yfir að ráða, sem
gæti gert þeim kleift að uppgötva mik-
ilvæga erfðavísa á undan okkur,“ seg-
ir í upptalningu áhættuþátta í skrán-
ingarlýsingunni.
Mikilvægt að halda í
lykilstjórnendur
Meðal fjölmargra fleiri áhættuþátta
sem taldir eru upp er áhersla sem lögð
er á að fyrirtækinu takist að ráða og
halda í lykilstjórnendur og vísinda-
menn. Þ.á m. eru taldir upp Kári Stef-
ánsson, forstjóri ÍE, Hannes Smára-
son aðstoðarforstjóri, Jeffrey Gulch-
er, framkvæmdastjóri rannsókn-
arsviðs, og Agustine Kong, for-
stöðumaður tölfræðideildar. „Ef
einhverjir þessara manna yfirgefa
okkur getur það haft neikvæð áhrif á
möguleika okkar til að halda uppi
starfsemi fyrh’tækisins," segir í lýs-
ingunni.
Ennfremur er bent á að
enn sem komið er hafi eng-
in viðskipti átt sér stað á
opinberum markaði með
hlutabréf í fyrirtækinu og
því sé engin leið að spá fyr-
ir um hvernig mai’kaður með bréfi í
fyrirtækinu muni þróast. Líkur séu þó
á að markaðsverð hlutabréfa í félag-
inu muni verða mjög sveiflukennt
vegna þeirra fjölmörgu áhættuþátta
sem lýst er í skráningariýsingu
deCODE, móðurfélags íslenkrar
erfðagreiningar.
Líklegt að
hlutabréfaverð
muni sveiflast
4 áföngum náð
í samstarfi við
La Roche
Upplýsingar lír skráningarlýsingu deCODE genetics
Alls 5,7 milljarða tap af
rekstrinum frá upphafi
TAP hefur verið af rekstri deCODE
allt frá stofnun fyrirtækisins árið
1996, alls um 76,7 milljónir dollara,
sem samsvarar um 5,7 milljörðum
króna. Á síðasta ári nam tapið alls
yfir 4,5 milljörðum króna, að
óreglulegum liðum meðtöldum en
að þeim frátöldum um 1,7 milljörð-
um króna. Aukningin á milli áranna
1998 og 1999 er 113% að óregluleg-
um liðum frátöldum en 357% að
þeim meðtöldum. Óreglulegir liðir
á síðasta ári felast fyrst og fremst í
því sem kallast yfirverð á endur-
kaupum forgangshlutabréfa.
Verð líklega gefið út
á næstunni
Fram kemur að búist er við
áframhaldandi tapi á starfseminni
næstu ár og í skráningarlýsingunni
eru ýmsir varnaglar slegnir varð-
andi kaup á hlutabréfum í fyrirtæk-
inu. Tekið er fram að tekjur fyrir-
tækisins komi fyrst og fremst frá
rannsóknarsamstarfi við Iloffman
La Roche, auk vaxtatekna.
Verð á hlutabréfunum í fyrsta al-
menna hlutafjárútboði deCODE
sem enn er óljóst hvenær verður, er
ekki gefið upp í skráningarlýsing-
unni. Áætlað er að auka hlutaféð
um 200 milljónir dollara eða um
14,8 milljarða íslenskra króna.
Gengi á hlutabréfum í útboði er
ákveðið af fjárfestingarbanka sem
sér um útboðið, í þessu tilviki
Morgan Stanley, í samráði við for-
svarsmenn viðkomandi fyrirtækis.
Líklegt er talið að gengið verði
ákveðið á næstunni, jafnvel á næstu
dögum, að sögn sérfræðings sein
rætt var við. Verðið getur þó
breyst umtalsvert á tímabilinu.
Verðbilið 25-35 hefur verið nefnt í
því sambandi. í kjölfar skráningar
hlutabréfa líftæknifyrirtækja á
Nasdaq hefur gengi þeirra oftar en
ekki margfaldast á dögunum og
vikunum eftir fyrsta almenna út-
boðið.
Ágóðinn notaður í þróun og
samtengingu gagnagrunna
I skráningarlýsingunni eru engar
tölur um áætlaðan ágóða af fyrir-
huguðu hlutafjárútboði gefnar upp,
í samræmi við það að verðið hefur
ekki verið gefið upp. Hins vegar
eru áform um hvað gert verður við
áætlaðan hagnað útlistuð í lýsing-
unni. Þar kemur fram að þróun
gagnagrunna fyrirtækisins, úr-
vinnsla úr þeim og samtenging
verði byggt upp fyrir ágóðann sem
skapast. Einnig verður féð notað til
að fjármagna rannsóknarstarfsemi
fyrirtækisins, auk viðhalds á búnaði
og húsnæði. Umframhagnaður
de CODE i Úr skráningarlýsingu ' ^xxxxxxf
Rekstrarreikningur 1999 1998 1997 1996
Rekstrartekjur M. kr. 1.221,5 943,7 0,0 0,0
Rekstrargjöld 2.948,0 1.795,8 597,8 88,6
Rekstrartap 1.726,5 852,0 597,8 88,6
Tap tengdra fyrirtækja 110,2 0,0 0,0 0,0
Fjármunatekjur (gjöld) 115,1 41,8 -0,6 3,0
Skattar 0,0 0,0 0,0 0,0
Tap eftir skatta 1.721,6 810,3 598,4 85,6
Óreglulegir liðir -2.854,6 -191,0 -46,0 -13,5
Tap ársins 4.576,2 1.001,3 644,5 99,1
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 31.12.97 31.12.96
Eignir samtals M. kr. 5.877,8 2.862,8 502,9
Eigið fé M. kr. 3.579,2 1.852,2 200,7
Skuldir 2.298,6 1.010,5 302,6
Skuldir og eigið fé samt. 5.877,8 2.862,8 502,9
dc O O D E Stærstu hluthafar í mars 2000
Hiuthafi Hlutir Hlutfall
1. Roche Finance Ltd. 4.483.334 13,4 oarr if 2,9» f valr. .og kaupheim.
2. Kári Stefánsson 3.125.292 9,6
3. Alta Califomia og tengdir aðilar 2.335.082 7.1 þðraf 1 % t kaupheimildum
4. Atlas Venure og tengdir aðilar 2.335.082 7,1 þaraf 1%íkaupheimildum
5. Guy Nohra 2.335.082 7,1 ■ þar af í% f kaupheimildum
6. Jean-Francois Formela 2.335.082 7,1 þar af 1 % í kaupheimildum
7. Polaris Venture og tengdir aðilar 1.875.848 5,7 þar af 1% í kaupheimildum
8. Terrence McGuire 1.875.848 5,7 þar af 1% í kaupheimildum
9. Andre Lamotte 686.514 2,1 þar af 1 % í kaupheimildum
10. Hannes Smárason 560.000 1,7
11. Jeffrey Gulcher 481.200 1,5 ■
12. Kristján Erlendsson 125.000 0,4 )
13. Sigurður Björnsson 120.000 0,4 |
14. Sir John Vane 45.000 0,1 (10 einstaklingar) eiga
Samtals 22.718.364 69,0 alls um 35% hlutanna
Tíu stjórnarmenn og stjórnendur
deCODE eiga alls 35% hlut
Hoffman La
Roche er
stærsti hlut-
hafínn
I skráningarlýsingu deCODE kemur fram að ”
Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfða-
greiningar, á næststærsta hlutinn í fyrirtæk-
inu eða 9,6% hlutafjár. Stærsta hlutinn á
fyrirtækið Hoffman La Roche.
HOFFMAN La Roche er
stærsti hluthafinn í
deCODE genetics, að því
er fram kemur í skráning-
arlýsingu sem lögð hefur verið fyrir
bandarísku verðbréfa- og kauphallar-
nefndina (SEC) í aðdraganda skrán-
ingar bréfa fyrirtækisins á Nasdaq-
hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjun-
um. Hlutur fyrirtækisins er 13,4%.
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, á næststærsta hlut-
inn eða 9,6%.
Stjórnarmenn deCODE og lykil-
stjórnendur, alls tíu manns, eiga
samtals um 35% í fyrirtækinu, að því
er fram kemur í skráningarlýsing-
unni.
Eignarhaldsfélög og sjóðir eru
einnig nefnd til sögunnar í upptaln-
ingu á hluthöfum. Jean-Francois
verður notaður til að fjárfesta í
skammtímaverðbréfum með ávöxt-
un í huga, að því er fram kemur í
skráningarlýsingunni.
Arður ekki greiddur
Fram kemur að deCODE muni
ekki greiða arð til hluthafa í næstu
framtíð. Fyrirtækið hefur aldrei
greitt arð af almennum hlutabréf-
um (e. common stock) til hluthafa
og tekið er fram að ef til hagnaðar
komi af rekstrinum verði hann not-
aður til uppbyggingar fyrirtækis-
ins.
Þau hlutabréf deCODE sem við-
skipti hafa verið með á gráa mark-
aðnum á Islandi eru svokölluð for-
gangshlutabréf (e. preferred
stock). Forgangshlutabréf má ekki
selja á bandarískum markaði fyrstu
sex mánuði eftir útboð en að þeim
tíma liðnum breytast þau í almenn
hlutabréf. I útboði eru almenn
hlutabréf til sölu og á fyrstu dögum
eftir útboð eru það almenn hluta-
bréf sem viðskipti eru með.
Formela, stjórnarmaður í deCODE,
er einnig hluthafi í Atlas Venture
Fund sem er stór hluthafi í deCODE.
Terrance McGuire er einnig stór
hluthafi í Polaris Venture Partners
sem á 5,7% í deCODE.
Allir stjórnarmenn og lykil-
stjórnendur hluthafar
Farið er ítarlega í kjör æðstu
stjórnenda fyrirtækisins og fram
kemur að mánaðarlaun forstjórans
Kára Stefánssonar jafngilda rúmum
tveimur milljónum króna á mánuði,
að hlunnindum meðtöldum. Hannes
Smárason aðstoðarforstjóri hefur
rúm 900 þúsund í mánaðarlaun, sam-
kvæmt upplýsingum úr lýsingunni og
hefur auk þess valrétt á 260.000 hlut í
deCODE. Jeffrey Gulcher, yfirmaður
rannsókna- og þróunarsviðs de-
CODE hefur um eina milljón króna í
mánaðarlaun. Kristján Erlendsson,
yfirmaður samskiptasviðs, hefur um
800 þúsund krónur í mánaðarlaun.
Mánaðarlaun Sigurðar Björnssonar,
sem einnig er yfirmaður hjá de-
CODE, eru um 700 þúsund krónur á
mánuði. Sigurður hefur einnig notið
valréttar á hlutabréfum í deCODE,
að því er fram kemur í skráningarlýs-
ingunni.
Kaupheimildir í stað þóknunar
fyrir stjórnarsetu
I lýsingunni eru æðstu stjórnendur
og stjórnarmenn fyrirtækisins kynnt-
ir til sögunnar og bakgrunnur þeirra
rakinn. Stjórnarmenn ásamt Kára
Stefánssyni eru Jean-Francois
Formela, Andre Lamotte, Terrance ».
McGuire, Guy Nohra og sir John
Vane. Allir eru þeir hluthafar í fyrir-
tækinu og hafa auk þess yfir kaup-
heimildum (warrants) að ráða. I því
felst að þeir hafa rétt til að kaupa
ákveðið magn hlutabréfa á ákveðnu
verði. Kaupheimildirnar koma í stað
þóknunar fyrir stjórnarsetu, að því er
fram kemur í skráningarlýsingunni. '