Morgunblaðið - 10.03.2000, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 10. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
| Aðalfundur
Hampiðjunnar hf.
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verð-
ur haldinn í fundarsal félagsins,
Bíldshöfða 9, Reykjavík, föstudaginn
17. mars 2000 og hefst kl. 16.00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa
eigin hluti samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Tillaga um heimild til rafrænnar
skráningar hlutabréfa félagsins.
4. Tillaga um heimild félagsins til að auka
hlutafé um allt að kr. eitt hundrað milljónir.
5. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á
aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjómar
með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum
fyrir aðalfund.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda,
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins,
Bíldshöfða 9, Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á
fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en
hyggjast gefa umboð verða að gera það skrif-
lega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
HAMPIÐJAN
Veitingar í boði
Skráðu þig í klúbbinn
Hægt verður að skrá sig í Netklúbb
Flugleiða á staðnum.
Lærðu a^stjórna þinni
eigin ferðaskrifstofu á netinu
Notaðu daginn
vel og iærðu
að hagnýta þér
kostina sem
bjóðast ferða-
mönnum á
veraldarvefnum.
í bíósal Hótels Loftleiða á morgun,
laugardaginn 11. mars, kl. 14.00.
• Kynning á Netklúbbi Flugleiða. |
• Hvernig á að bóka flugfar á netinu?
• Hvernig finnurðu hótel á netinu?
• Hvernig á að panta framhaldsflug? =
... og margtfleira.
,f>mbl.is
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Golli
Hildur Ævarsdóttir, starfsmaður Faxamjöls hf. í Reykjavík, gengur frá loðnuhrognunum en þau fara í kavíar-
vinnslu Bakkavarar hf. í Reykjanesbæ.
„Hrognin falleg
o g fullþroskuð“
VTNNSLA loðnuhrogna er nú í full-
um gangi víða um land en hrognatak-
an stendur aðeins yflr í stuttan tíma
og lýkur væntanlega í næstu viku.
Hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík hóft
hrognavinnslan um síðustu helgi og
er stefnt á að framleiða um 700 tonn.
Faxi RE landaði um 1.100 tonnum
hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík í fyrra-
dag en meira en 30 klukkustundir
tekur að landa úr skipinu þegar verið
er að „kreista" hrognin úr loðnunni
eins og það er kallað, en löndunin
tekur mun skemmri tíma ef loðnan
fer öll í bræðslu.
100 tonn af hrognum
úr 1.100 tonna farmi
Kjartan Öm Ólafsson, verk-
smiðjustjóri, vonaðist til að hægt
yrði að kreista um 100 tonn af hrogn-
um úr farminum. „Það fer í raun eftir
því hvert hlutfall kynjanna er í farm-
inum hvað við náum að vinna mikið
af hrognum. Núna er um helmingur
farmsins hrygnur þannig að við ná-
um líklega að vinna um 100 tonn af
hrognum. Hrognin eru hvað falleg-
ust einmitt núna, fullþroskuð og
verða varla betri. Kreistingin stend-
ur stutt yfir, aðeins í viku til 10 daga
og því eins gott að nýta tímann vel
því við stefnum á að framleiða um
700 tonn hér hjá Faxamjöli. “
Til að ná hrognunum úr loðnunni
er hún söxuð í sundur, hreinlega rifin
í tætlur, um leið og henni er dælt úr
skipinu en þá leka hrognin úr henni.
Hrognin eru síðan síuð frá „hratinu"
Vinnsla loðnu-
hrogna víða
í fullum gangi
sem er dælt í bræðslu. Mikil áhersla
er lögð á gæði í hrognavinnslunni hjá
Faxamjöli hf. Eftir grófhreinsun
fara hrognin í gegnum fínhreinsun
þar sem þau eru m.a. skoluð upp úr
geisluðum sjó til að drepa bakteríur
og óhreinindi. Framleiðslan fer síðan
til Bakkavarar hf. í Reykjanesbæ
þar sem hrognin eru notuð í kavíar-
framleiðslu.
Faxamjöl hf. hefur nýverið tekið í
notkun sérstaka vél sem hreinsar
orma úr loðnuhrognum. Ormar í loð-
nuhrognum hafa um langt skeið ver-
ið talsvert vandamál, þótt þeir séu
meinlausir með öllu. Hins vegar hef-
ur kaupendum þótt verra að hafa
orma í hrognunum og viljað borga
lægra verð fyrir þau þess vegna. Um
100 ormar eru að jafnaði í hverju
kílói af loðnuhrognum og sjást
greinilega með berum augum þegar
hrognin hafa verið lituð.
Hrafn Karlsson hefur hannað og
smíðað vélina sem ormahreinsai’
loðnuhrognin. Hann segir menn
lengi hafa glímt við þetta vandamál
en ekki haft erindi sem erfiði íyrr en
nú. Aðferðin sem hann beiti sé hins-
vegar einföld. í vélinni séu 1.426
hnífar sem veiði ormana úr hrognun-
um. „Við góð skilyrði tínir vélin um
90% af ormunum úr hrognunum og
afföllin af hrognunum við ormatínsL
una hafa verið aðeins 0,3-0,5%. í
hrognavinnslunni tapast um 15-20%
hrognunum og þetta er því mjög lítið
hlutfall. Japanskir hrognakaupend-
ur sem fylgst hafa með hönnun vél-
arinnar sögðust ánægðir ef við næð-
um að hreinsa um 70% ormanna úr
hrognunum og afföllin færu ekki yfir
5%. Við erum því langt fyrir innan
þessi mörk og það ætti að skila sér í
betra afurðaverði," segir Hrafn.
190 þúsundtonn
eftir af kvótanum
Loðnuskipin gátu lítið athafnað
sig í gærmorgun vegna veðurs en
voru um miðjan dag í gær byrjuð að
kasta í miðjum Faxaflóa og fá góðan
afla. Allt upp í helmingi hærra verð
fæst fyrir aflann meðan hrognatakan
stendur yfir og því er sjómönnum
það kappsmál að vel veiðist áður en
loðnan hrygnir. Skipstjórnarmenn
segja enn nokkra daga í hrygning-
una og því nái þeir vonandi tveimur
til þremur túrum þangað til, svo
framarlega sem gefi á sjó.
Nú hafa alls veiðst um 700 þúsund
tonn á vertíðinni en þá eru um 190
þúsund tonn eftir af heildarkvótan-
um. Ekkert bólar enn á hinni svo-
kölluðu vesturgöngu en leiðangur
Hafrannsóknastofnunar mældi fyrir
skömmu um 76 þúsund tonn fyrir
Vesturlandi og telur að ekki sé tilefni
til endurskoðnunar fyrri tillögu um
leyfilegan heildarafla á yfirstandandi
loðnuvertíð.
Morgunblaðið/Golli
Stjörnuspá á Netinu
Loðnunni dæit úr Faxa RE til hrognakreistingar hjá Faxamjöli hf. í Reykjavík.