Morgunblaðið - 07.03.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2000 43
UMRÆÐAN
Hugrekki í
vegagerð
Samgöngur
Ég fagna mörgu því
sem er í jarðgangaáætl-
un þeirri sem samgöng-
GAMALT máltæki
segir: Allir vegir liggja
til Rómar. I framhaldi
má hugsa hvers vegna
þetta var sagt. Var það
vegna þess að þeir sem
bjuggu í Róm þurftu að
komast út í skattlöndin
eða var það vegna þess
að þeir sem bjuggu í
skattlöndunum vildu
komast til Rómar? I
umræðum um byggða-
mál hefur verið rætt
um að það sé kostur
fyrir byggðarlag ef auð-
velt er að komast til
Reykjavíkur. Vestfirð-
ingur einn sagði einu
sinni að ein mesta samgöngubót sem
gerð hefði verið fyrir alla lands-
byggðina væru göngin undir Hval-
fjörð. Auðvitað er þetta ekki alveg
svona einfalt því að Reykvíkingar og
fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu
nýtur þess að fara út á land og heim-
sækja landið sitt og byggðina í sum-
arleyfum og í öðrum tilgangi.
Tenging byggðanna
Ég fagna mörgu því sem er í jarð-
gangaáætlun þeirri sem samgöngu-
ráðherra lagði fram á dögunum. Því
ber að fagna að talað er um jarðgöng
milli Amarfjarðar og Dýrafjarðar
svo og önnur jarðgöng. Vestfirðir
hafa liðið fyrir það að tenging er eng-
in á milli norðursvæðis Vestfjarða og
suðursvæðis og líða enn. Þetta minn-
ir okkur á að þótt gott sé að vegir
landsbyggðarinnar liggi til höfuð-
borgarinnar og fólk eigi auðvelt með
að komast til Reykjavíkur þar sem
Alþingi íslendinga er, Háskóli Is-
lands, Landspítalinn og margar aðr-
ar stofnanir, sem landsbyggðarmenn
þurfa náttúrlega að sækja til og eiga
í, þá er fólk einnig farið að beina sjón-
um að því í sambandi við vegamál að
góðar samgöngur séu á milli svæða.
Vil ég nefna sem dæmi hvílík sam-
göngubót það var t.d. þegar jarð-
göngin komu á Vest-
fjörðum. Frá Súðavík
til Bolungarvíkur er
malbikað og góð leið.
Frá ísafirði til Súg-
andafjarðar, Flateyrar
og bráðum til Þingeyr-
ar er líka góð leið. Ég er
þar að tala um hversu
samgöngur innan
svæðis séu góðar á
norðanverðum Vest-
fjörðum. Eins vil ég
nefna sunnanverða
Vestfirði, frá Bíldudal
og alveg inn í Patreks-
fjarðarbotn. Þar er búið
að malbika og gera
góða vegi.
Ekki þarf að fjölyrða um hversu
góð áhrif þetta hefur haft á samfélag-
ið þama og byggðimar. Þetta er
nauðsynlegt að halda áfram með og
hugsa um þetta líka í vegagerðinni að
tengja svæðin betur. Þetta er
byggðasjónarmið sem við þurfum að
horfa stöðugt á.
Kolgrafarfj ör ðurinn
A norðanverðu Snæfellsnesi opn-
aði samgönguráðherra nýlega leiðina
á milli Gmndarfjarðar og Ólafsvíkur,
Búlandshöfðann. Var það mikið
gleðiefni. Sama má segja þegar nýr
vegur um Ólafsvíkurenni var lagður á
milli Hellissands, Rifs og Ólafsvíkur.
Fyrst ég er að tala um norðanvert
Snæfellsnes langar mig tO að víkja að
vegi sem er enn eins og frá síðustu
uráðherra lagði fram á
dögunum, segir Karl V.
Matthíasson og bendir á
mikilvægi þess að
tengja byggðirnar.
öld, það er best að orða það þannig.
Það er vegarkafli sem heitir Kolgraf-
arfjörður. Það er alveg óviðunandi að
þurfa að aka þá leið eins og hún er í
dag miðað við allt umhverfis, malbik-
aða góða vegi frá Stykkishólmi að
Berserkseyri og frá Ólafsvík og að
Kolgrafarfirði eða til Grundarfjarð-
ar. Ég tel mjög brýnt að tengja
byggðimar á norðanverðu Snæfells-
nesi þannig að þar sé mjög auðveld
leið. Fólk á norðanverðu Snæfells-
nesi talar æ oftar um meiri og aukn-
ari samskipti. Til þess að þau geti átt
sér stað og við getum farið að líta á
Stykkishólm, Grandarfjörð, Ólafsvík,
Rif og Hellissand sem eina byggða-
heild verða samgöngurnar að vera
miklu betri um Kolgi’afarfjörð en er.
Við þurfum að vera ófeimin og
hugrökk í vegagerðinni. I Bandaríkj-
unum sagði maður einn við banda-
rískan mann: Þið erað svo ríkir að þið
getið búið til mikla vegi. En hann
svaraði: Við urðum ríkir vegna þess
að við byggðum vegi.
Höfundur er prestur og varaþing-
maður Samfylkingarinnar.
Tölvuaðstoða
Vantar þig smá aðstoö við að nota Word, Excel eða Windows?
Erum með einkakennslu og námskeið fyrir litla hópa.
Nánari upplýsingar á
www.tolst.com
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf., Brautarholti 4, simi 551 5593.
KarlV.
Matthíasson
UTSALA
30% 50% 70%
AFSLÁTTUR AF GÆÐA UMGJÖRÐUM / ERUM
MEÐ HÁGÆÐA SJÓNGLER Á GÓÐU VERÐI /
MJÖG STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI / RECEPT
GLERAUGU AFHENT SAMDÆGURS* /
568 2662
Námsaðstoð
í stærðfræði, eðlis- og efnafræði
fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla.
Athugið að smá aðstoð getur skipt sköpum í
námi. Vanir kennarar.
www.tolst.com
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf., Brautarholti 4, sími 551 5593.
MANNLEC5
SAMSKIPTI?
DALE CARNEGIE !
NÁMSKEIÐIÐ HJÁLPAR PÉR AÐ
♦ VERÐA HÆFARI í STARFI
♦ FYLLAST ELDMOÐI
♦ VERÐA BETRI i
MANNLEGUM SAMSKIPTUM
♦ AUKA SJALFSTRAUSTIÐ
♦ VERÐA BETRI RÆÐUMAÐUR
♦ SETJA PER MARKMIÐ
♦ STJORNA AHYGGJUM OG KVIÐA
STJORNUNAR
www.mbl.is
Gólfteppi úr ull og gerfiefnum. Mýkt og hlýlegt útlit með fallegum gólfteppum
frá nokkrum helstu framleiðendum Evrópu. Teppi með sérstaka viðurkenningu
um að engin ofnæmisvaldandi efni fýrirfinnist í þeim. Fjölbreyttir möguleikar
í gerðum, litum og öðru útliti.
Fákafeni 9
Símar 588 1717 og 581 3577
Umboðsmenn um allt land
Teppaland
GÓLFEFNI ehf.