Morgunblaðið - 04.03.1990, Blaðsíða 13
12 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARZ 1990
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MARZ 1990
C 13
kiofning í röðum skæruliða Chin
Pengs til þess að fá marga þeirra
til að taka boði um sakaruppgjöf.
Árið 1987 gáfust um 1.000 uppreisn-
armenn upp, þegar Thailendingar
buðust til að gefa þeim upp sakir.
Þeir uppreisnarmenn, sem eftir voru,
neyddust til að setjast að samninga-
borði fyrir rösku ári, aðallega fyrir
atbeina Thailendinga.
Thailendingum hefur gramizt að
uppreisnarmenn hafa neytt íbúa
þorpa á landamærunum til að greiða-
„skatta“. Thailendingar hafa auk
þess reynt að fá Malaysíumenn til
samvinnu í baráttu gegn uppreisn
múhameðskra aðskilnaðarsinna á
landamærunum, sem eru 600 km
löng. Sú uppreisn geisar á sama
svæði og skæruliðar Chin Pengs
hafa haldið sig á. Thailendingar hafa
líka vonað að þeir geti aukið áhrif
sín í Suðaustur-Asíu með samstarfi
við Malaysíumenn um að knýja Chin
Peng til að semja frið.
Chin segir að skæruliðarnir séu
nú 1.100 talsins, en samkvæmt öðr-
um heimildum eru þeir innan við
þúsund. íbúar á frumskógasvæðinu
á landamærunum hafa lítið orðið
varir við skæruliðana á undanförnum
árum og óvíst er hvort þeir taki eft-
ir vopnahlénu.
Þótt kommúnistar hafi verið að-
gerðarlitiir hafa stjórnir Malaysíu og
Singapore haldið því fram að upp-
reisn vinstrisinna ógni enn jafnvægi.
Báðar stjómirnar hafa sakað meinta
undirróðursmenn um tengsh við
kommúnistaflokkinn og haft þá í
I haldi án dóms og laga, þótt ásakan-
Heim úr frumskóginum eftir 45 ár: Japanirnir Hashimoto (til vinstri)
og Tanaka gefast upp í thailenzkum herbúðum.
eins 4.668 óbreyttir borgarar féllu
eða særðust. Þegar átökin stóðu sem
hæst var teflt fram 50.000 hermönn-
um, 60.000 lögreglumönnum og
200.000 heimavamarliðum gegn fá-
mennum her kommúnista. Fram-
förum seinkaði í landinu og einum
milljarði Malayadollara var ’">.rið til
stríðsrekstrarins.
Skæmliðar hafa sjaldan beðið eins
mikinn ósigur fyrir venjulegum her-
afla. „Eitt getur jafnvel Chin Peng
ekki dulið,“ sagði Robert Thompson,
helzti hernaðarráðgjafinn í barátt-
unni gegn honum. „Hann hóf stríð
til að flæma brezku heimsveldis-
sinnana burt — og nú eru þeir farn-
ir. Við vorum ekki flæmdir burtu —
við eram farnir og getum borið höf-
uðið hátt, og það voru Bretar, sem
veittu Malaya sjálfstæði, ekki Chin
Peng.“
Útlagar í eigin landi
Vopnahlé komst ekki á, þótt neyð-
arástandinu væri aflýst. Stríðið
breyttist. Framskógarhermenn Chin
Pengs urðu útlagar í eigin landi og
földu sig norðan landamæranna í
Thailandi. Chin Peng huggaði sig við
að Mao beið í 30 ár áður en hann
sigraði í borgarastríðinu í Kína, en
þegar Chin hafði beðið jafnlengi
sagði hann mönnum sínum að leggja
niður vopn. Hann hefur aðallega
dvalizt í Kína síðan 1960 og hafði
ekki sézt utan kommúnistalandanna
síðan 1955, þegar friðarsamningarn-
ir voru undirritaðir á dögunum.
Stjórn Malaysíu neitaði þráfald-
lega að ræða við kommúnista, en á
síðari árum hefur hún notfært sér
irnar hafi ekki alltaf verið vel rök-
studdar. Stjórnin'í Singapote sagði
í haust að kommúnistar héldu áfram
útvarpssendingum.
Friður á landamærunum
En friðarsamningar vora undirrit-
aðir í hóteli í landamærabænum Hat
Yai í desemberbyijun og friður ríkir
á landamæram Malaysíu og Thai-
lands í fyrsta skipti í 41 ár. Skærulið-
unum hafa verið gefnar upp sakir
og flestir þeirra hefja nýtt líf á jörð-
um, sem þeir fá til ræktunar í út-
jaðri frumskógarins, á sama hátt og
aðrir uppreisnarmenn, sem hafa lagt
niður vopn á undan þeim. Samkomu-
lag varð um að þeir skæruliðar, sem
þess óska, fái að snúa aftur til Mal-
aysíu og taka þátt í stjórnmálum
landsins „með tíð og tíma“.
Chin Peng hefur neitað að svara
því hvort hann inuni snúa aftur til
Malaysíu. Hann segir að „það mál
verði að ræða í miðstjórn flokks okk-
ar“. Hann vill heldur ekki svara því
hvort samningarnir jafngildi því að
kommúnistaflokkurinn sé liðinn und-
ir lok. Sumir telja að kommúnistar
muni reyna að stofna nýjan flokk
með'öðram en marxistum. Fáir telja
þó að Chin muni aftur gegna mikil-
vægu hlutverki í stjórnmálum Mal-
aysíu.
Allt að 40 skæraliðanna era frá
Singapore og stjórnin þar mun
líklega neita að taka við þeim.
Þeir sem voru viðstaddir undirrit-
un friðarsamninganna sögðu að Chin
Peng minnti á velstæðan, kínverskan
kaupsýslumann, en ekki aldraðan
frumskógahermann. Þannig hafði
hann einnig komið Tunku Abdul
Templer í eftirlitsferð: þegar hann tók við urðu straumhvörf í stríðinu.
Chin Peng ogskœrulidar
hans í Malaya leggja nibur vopn
„Ef þið krefjizt þess að við gef-
umst upp viljum við heldur beijast
til síðasta manns," sagði Chin Peng,
þegar kröfunni var hafnað. „Ef þú
vilt frið í landinu verður annar hvor
aðilinn að gefast upp,“ sagði Rahm-
an. „Ég gefst ekki upp, svo að þú
verður að gefast upp. Annars verður
sams konar ástand hér og í Kína,
Kóreu og Indókína."
Malaya hlaut sjálfstæði 31. ágúst
1957. Þá voru 1.830 skæruliðar
ósigraðir, þar af 470 í Thailandi.
Réttum þremur áram síðar, 31. júlí
1960, var því lýst yfir að hættan
væri loks liðin hjá og að neyðar-
ástandinu væri lokið. Þá voru um
500 kommúnistar eftir í Malaya.
Alls höfðu 6.705 uppreisnarmenn
fallið, 1.286 særzt og 2.696 gefízt
upp á þeim 12 áram, sem liðin voru
síðan neyðarástandslögin vora sett.
Á sama tíma höfðu 2.384 stjórnar-
hermenn fallið og 2.400 særzt. Að-
andstæðingar Japana í
í heimsstyijöldinni 1939-
RÚMLEGA 40 ára uppreisn kommúnista í frumskógum Malaya, sem
nú er hluti Malaysíu, er lokið og þar með er ein langvinnasta upp-
reisn í heiminum úr sögunni. Skæruliðar kommúnista hafa þraukað
lengur en nokkurn óraði fyrir, en langt er síðan þeir misstu trúna á
því að þeir gætu náð því markmiði að tryggja sér yfirráð yfir Mal-
aya og Singapore. Aldurinn færðist yfir þá og smám saman varð
eina takmark þeirra að láta uppreisnina ekki lognast út af.
Þjóðsagnakenndur leiðtogi
kommúnista, Chin Peng,
varð að viðurkenna að lok-
um að baráttan var orðin
vonlaus. Hann gerði það
með formlegum hætti, þeg-
ar hann undirritaði friðarsamninga
við ríkisstjómir Malaysíu og Thai-
lands í byijun desember, en vildi þó
alls ekki tala um „uppgjöf".
Liðin voru 29 ár síðan lög um
neyðarástand höfðu verið afnumin í
Malaya. Lögin höfðu veríð í gildi í
12 ár, allt frá því stríðið hófst þrem-
ur áram eftir uppgjöf Japana 1945.
Þegar átökin stóðu sem hæst upp
úr 1950 áttu innan við 10.000 skæru-
liðar Chin Pengs í höggi við 30-40
sinnum ijölmenn-
ara lið Breta og
Malaya. Þegar
neyðarástandinu
lauk 1960, þrem-
ur áram eftir að
sambandsríkið
Malaysía var stofnað, hafði uppreisn-
in verið bæld niður að langmestu
leyti.
Skæruliðar kommúnista höfðu
verið hraktir upp að landamæram
Thailands, en Chin Peng neitaði að
viðurkenna ósigur. Leifar skæraliða-
hersins héldu áfram aðgerðum frá
bækistöðvum á litlu framskógasvæði
meðfram landamæranum, en að lok-
um sannfærðust jafnvel þeir um að
lítil von væri til þess að barátta
þeirra bæri árangur. Það hafði einn-
ig áhrif á ákvörðun þeirra að upp-
lausn ríkir í kommúnistaheiminum
og að Kínveijar era tregir að láta
bendla sig við þá.
Sæmdur orðu
heimsveldisins
Chin Peng, sem er 67 ára gamall,
er af kínverskum ættum og heitir
réttu nafni Ong Boon Hua. Hann er
fæddur í Sitiawan, þar sem faðir
hans rak lítið reiðhjólaverkstæði, og
varð aðalritari kommúnistaflokks
Malaya (MCP) 26 ára gamall. Flest-
ir félagar flokksins vora Kínveijar,
sem vora þriðjungur íbúa Malaya og
■ ERLEND h
HRINCSIÁ
eftir Gudm. Halldórsson
virkustu
landinu
1945.
í stríðinu unnu Bretar með komm-
únistum gegn Japönum í Malaya.
Nokkrir brezkir liðsforingjar urðu
eftir í landinu, þegar Japanir höfðu
lagt það undir sig, og nokkrir til við-
bótar vora sendir þangað með kaf-
bátum og flugvélum. Bretarnir
kenndu kommúnistum frumskógar-
hemað og meðferð nútímavopna.
Yfirmaður þeirra, F. Spencer Chap-
man ofursti, kallaði Chin Peng
„áreiðanlegasta skæraliða Breta“ og
annar brezkur liðsforingi, John Dav-
is, sagði að hann hefði verið „lang-
greindasti kommúnistinn . . . róleg-
ur, kurteis og vin-
gjarnlegur".
Bretar sæmdu
Chin Peng „orðu
brezka heims-
veldisins" (OBE)
og „Burma-
stjörnunni". Hann er eini skæruliði
kommúnista, sem þeir hafa sýnt
þann heiður. Honum var einnig boð-
ið að taka þátt í sigurskrúðgöngu í
Lundúnum í tilefni af ósigri Japana
í stríðinu.
Þegar styijöldinni lauk földu Chin
Peng og stuðningsmenn hans vopn
sín í framskóginum og tóku aftur
upp fyrri störf. Þeir vora hins vegar
staðráðnir í því að „frelsa“ Malaya
undan stjóm Breta og koma á fót
kommúnistaríki. Fé, vistum og bún-
aði var safnað meðal kínverskra
landsmanna (margir þeirt-a vora auð-
ugir) og brotizt var inn í vopna-
geymslur. Þegar stríði var lýst yfír
í júní 1948 svöraðu Bretar með lög-
um um neyðarástand.
Morð og spellvirki
Morð, spellvirki og hryðjuverk
urðu daglegt brauð. Aðallega var
ráðizt á einangraðar lögreglustöðvar
og námur og gúmmíplantekrar í eigu
Evrópumanna inni í landi. Hryðju-
verkamenn reyndu að hreiðra um sig
á „frelsuðum svæðum", sem þeir
notuðu til að safna nýliðum og þjálfa
Vopnabræður: Mountbatten þakkar Chin Peng samstarfið í stríðinu.
þá og fyrir stökkpálla til enn víðtæk-
ari aðgerða.
Glundroði ríkti á flestum sviðurft
í landinu eftir stríðið og kommúnist-
ar vora vongóðir um sigur í fyrstu.
Hins vegar höfðu meirihluti Malaya
og landsmenn af indverskum ættum
illan bifur á kommúnistum og
kínverskum íbúum Malaya. Chin
Peng fékk minni stuðning frá Rúss-
um og Kínveijum en búizt hafði ver-
ið við og Bretar bragðust við af
meiri hörku en gert hafði verið ráð
fyrir. Her skæruliða var ekki nógu
vel stjórnað og auðvelt reyndist að
trafla samgöngur þeirra.
Tveimur árum eftir að stríðið hófst
gerðu Bretar sigurvonir kommúnista
að engu með áætlun, sem var kennd
við nýjan yfirmann hers þeirra, Sir
Harold Briggs hershöfðingja. Hann
einsetti sér að koma í veg fyrir að
kommúnistar gætu kúgað fólk til
hlýðni með hryðjuverkum eða á ann-
an hátt. Á áranum 1950-1952 vora
423.000 Kínveijar, sem höfðu setzt
að í útjöðram framskógarins, fluttir
í 410 „ný þorp“ með gaddavír um-
hverfís og öryggissveitir fengu það
hlutverk að gæta þorpanna. Þar með
var komið í veg fyrir að kommúnist-
ar notuðu þorp helztu stuðnings-
manná sinna til að afla peninga,
upplýsinga, nýliða eða matvæla.
Uppreisnin náði hámarki 1951.
Þá féllu 504 liðsmenn öryggissveita
og 533 borgarar. Árið eftir féllu
1.097 kommúnistar, eða fímmti hver
skæraliði. Það ár tók Sir Gerald
Templer hershöfðingi við yfírstjórn-
inni og straumhvörf urðu í stríðinu.
Sérþjálfaðar sveitir bjuggu um sig í
framskóginum, flugvélum og þyrlum
var beitt í vaxandi mæli og áróður
Barattan um „nugi og
hjörtu" íbúanna: bíll með hátal-
ara í „nýju þorpi“ fólks af
kínverskum upprana (1951).
var aukinn um allan helming. Hert
var á viðurlögum við því að hjálpa
uppreisnarmönnum og samstarfi
komið á við Thailendinga. Um leið
lagði Templer áherzlu á að „vinna
hugi og hjörtu“ allra landsmanna og
ákveðið var að flýta fyrir því að
landið fengi sjálfstæði.
Fundurinn í Baling
í júlí 1955 var efnt til almennra
kosninga og Tunku Abdul Rahman
myndaði ríkisstjórn. í flokki hans,
Bandalagsflokknum, var fólk af öll-.
um kynþáttum. í lok ársins mættu
Rahman og Chin Peng til friðarvið-
ræðna í Baling.
Rahman neitaði að ganga að kröfu
Chin Pengs um að kommúnistaflokk-
urinn yrði viðurkenndur. Chin hafði
vonað að ef hann fengi þeirri kröfu
framgengt gæti hann haldið því fram
að hann hefði tryggt Malaya sjálf-
stæði.
Nýjar aðferðir í frumskógar-
stríðinu: þyrlurteknarí notkun
(1952).
Kröfum hafnað: John Davis
(bak við hermanninn fremst á
myndinni) kemur með Chin Peng
og skæruliða hans til fundarins í
Baling (desember 1955).
Rahman fyrir sjónir þegar þeir hitt-'
ust 1955. Rahman var einn fárra,
sem gagnrýndu samningana. Hann
lýsti sig mótfallinn öllum hugmynd-
um um að leyfa Chin að koma til
Malaysíu, því að „hann mundi stofna
til vandræða, hvenær sem færi gæf-
ist“.
Chin Peng bað enskan blaðamann
fyrir kveðjur til John Davis og ann-
ars „gamals vopnabróður", Richard
Broone. Hann kvaðst „ekki hafa
haft samband við þá nýlega". Þegar
hann var að því spurður hvort hann
væri ennþá marxisti svaraði hann
því fyrst játandi, en bætti síðan við:
„Ég er ekki kreddufastur marxisti."
Japanir í frumskóginum
Flestum á óvart vora tveir Japan-
ir, sem höfðu barizt með kommúnist-
um, í hópi þeirra sem gáfust upp.
Þeir heita Shigeyuki Hashimoto, sem
var 28 ára og ókvæntur í lok heims-
styrjaldarinnar, og Kiyoaki Tanaka,
sem var 32 ára og átti konu og dótt-
ur í Japan. Þegar Japanir gáfust upp
í ágúst 1945 höfðu þeir starfað sem
verkfræðingar um eins árs- skeið í
stálveri, sem japanskt fyrirtæki lét
reisa í Kedah-héraði í Norður-Mal-
aya.
Þeir félagar urðu eftir í Malaya
þegar ófriðnum lauk af einhveijum
óútskýrðum ástæðum og földu sig í
framskóginum ásamt 13 öðrum jap-
önskum hermönnum og borgurum
áður en Bretar snera aftur. Líklega
hafa þeir notið verndar fólks af
Malayaættum, því að menn Chin
Pengs voru svo fullir haturs í garð
Japana að þeir hefðu áreiðanlega
drepið þá, ef þeir hefðu fundizt.
Þegar kommúnistar sögðu Bretum
stríð á hendur 1948 og fóra aftur inn
í framskóginn hafði ástandið breytzt.
Þá vildu skæraliðar ólmir taka við
japönskum strokumönnum og Hashi-
moto, Tanaka og félagar þeirra
gengu í flokkinn.
„Við vildum beijast gegn Evrópu-
mönnum,“ sagði Tanaka við japansk-
an sjónvarpsfréttamann í vor. Þeir
tóku sér nöfnin Ah Fook og Jim
Toey og notuðu verkfræðikunnáttu
sína til að gera við og búa til vopn.
Allir hinir japönsku félagar þeirra
era látnir — nokkrir féllu í bardögum
og aðrir dóu úr malaríu eða af öðram
eðlilegum orsökum.
Líklega era Hashimoto og Tanaka
síðustu Japanirnir úr stríðinu 1939-
1945, sem koma út úr frumskógum
Suðaustur-Asíu löngu eftir uppgjöf
keisarastjórnarinnar. Allmargir jap-
anskir hermenn urðu viðskila við
hersveitir sínar í lok stríðsins og
héldu kyrru fyrir í afskekktum bæki-
stöðvum í frumskógum Filippseyja
og Indónesíu. Sumir þeirra vissu
ekki að striðinu var lokið, en aðrir
neituðu að sætta sig við ósigur.
Nokkrum þeirra hefur verið fagnað
sem hetjum, þegar þeir hafa komið
aftur til Japans. Japönsk yfírvöld sáu
hins vegar til þess að Hashimoto og
Tanaka yrði tekið sem venjulegum
borgurum, þegar þeir kæmu aftur
til Tókýó nú eftir áramótin.
Framandi veröld
Gömlu mennirnir fengu ný vega-
bréf þegar þeir komu út úr frumskóg-
inum og japanskur stjómarerindreki
hefur verið þeim til trausts og halds.
Hann hefur til dæmis þurft að út-
skýra fyrir japönskum yfirvöldum
hvers vegna þeir hafa ekki skilað
skattskýrslum áratugum saman.
Hashimoto og Tanaka hafa fylgzt
vel með gangi mála í Japan með því
að hlusta á stuttbylgjuútvarp og
skoða myndbönd. Japanski frétta-
maðurinn, sem ræddi við þá í vor,
segir að þeir hafí kannazt við helztu
sumo-glímukappa Japana og spurt
um japanska sjónvarps-sápuóperu.
Þeir voru stirðir í japönskunni í
fyrstu, en náðu sér fljótt á strik.
Þó er óttazt að Hashimoto og
Tanaka, sem nú eru 72 og 76 ára
gamlir, verði fyrir „menningaráfalli“
eftir heimkomuna til Japans. „Þeir
hafa ekki einu sinni komið í smábæ
í 44 ár, hvað þá annað,“ sagði stjórn-
arerindrekinn, sem hefur verið þeim
innan handar, síðan þeir komu út
úr frumskóginum. Tanaka flýtti sér
að senda konu sinni í Japan skeyti
til að biðja hana afsökunar á þvi að
hafa ekki látið sjá sig í 45 ár.