Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 88
TJL DAGUGRA NOTA
£> o cb
©iiU & é’ilfnr f)/f
I.\l <. \\ l;< .1 :\s HIMvl.W IK S JlMtíll
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Grímumenn
hugðust
svæfa mann
með eter
MAÐUR á fertugsaldri vaknaói um
Kádegi.sbilið í gær upp við það, að
yfir honum stóðu tveir grimukUeddir
menn og hugðust leggja eterborinn
klút að vitum hans og þannig svæfa
hann. Maðurinn brást hart við og
lenti á átökum við menniua og end-
aði viðureignin með því, að þeir
flúðu þegar hann náði að svipta
grímunni af öðrum þeirra. Atburður-
inn átti sér stað í íbúð mannsins í
Kópavogi. Kona í næstu íbúð varð
vör við hávaða og sá mennina flýja.
Atvikið var kært til Rannsóknar-
lögreglu ríkisins, sem vinnur að
rannsókn málsins. Eterflaska
fannst í íbúðinni og þar var megn
mækja. Engar skýringar eru á árás-
inni og ekki bar maðurinn kennsl
á árásarmennina.
Morgunbladiö/Bjami
Jólasveinninn líturþá svona út
Undrunarsvipurinn leynir sér ekki á litlu hnátunni, sem virðir fyrir sér jólasveininn. Litlu jólin standa nú sem hæst í skólum og á barnaheimilum.
Á bls. 12 er sagt frá beimsókn á litlu jólin.
Strætisvagnar Reykjavfkur:
Frítt far yfír jólin
*
I athugun að taka upp mánaðarkort
Strætisvagnar Reykjavíkur hafa
ákveðið frítt far með strætisvögn-
'' fum borgarinnar frá sunnudeginum
22. desember til 26. desember að
báðum dögum meðtöldum.
Að undanförnu hefur verið
rætt um breytingar á fyrirkomu-
lagi fargjaldagreiðslna SVR,
meðal annars hugsanlega notkun
mánaðarkorta. A fundi stjórnar
SVR hinn 2. desember síðastlið-
inn var samþykkt tillaga Sigur-
jóns Fjeldsted, formanns stjórn-
arinnar, að fela forstjóra SVR
að kanna, hvori, unnt sé að breyta
gjaldskrá SVR, með hliðsjón af
afsláttarreglum og aldursskipt-
ingu farþega þannig, að far-
þegum SVR verði gefinn kostur
á mánaðarkortum án skerðingar
heildartekna SVR. Ennfremur
var samþykkt viðbótartillaga frá
Bergi H. ólafssyni þess efnis að
samhliða athugun á mánaðar-
kortum verði kannað, hvort ekki
sé hægt að hverfa frá notkun
skiptimiða.
-Hvít jól fyrir norðan
NORÐAUSTTANÁTT og frost verður
á öllu landinu á aðfangadag. Á
Norður- og Austurlandi verða él, en
bjart veður sunnanlands og vestan.
Norðlendingar mega því búast við
að fá hvít jól, en ólíklegt er að svo
^rði á Suðurlandi. Gert er ráð fyrir
aó norðaustanáttin haldist eitthvað
áfram.
í dag verður hvöss austan- og
norðaustanátt um allt land með
töluverðri snjókomu og éliagangi
fyrir norðan og austan og e.t.v.
slydduéljum á Suðurlandi. Smám
saman dregur úr vindi og hann
snýst í norðan- eða norðaustanátt
og þá kólnar í veðri.
34 % verðbólga frá
upphafi til loka árs
Viðskiptahallinn rúmir fimm milljarðar króna
Atvinnuástand 1985 einkenndist af mikilli eftirspurn eftir vinnuafli, segir
í desemberhefti Ágripa úr þjóðarbúskapnum, sem bjóðhagsstofnun gefur
út. Skráð atvinnuleysi árið 1985 er innan við 1% af fólki á vinnualdri en
var 1,3% á liðnu árí. Verðbólga verður hinsvegar nokkru meiri en spár
síðsumars stóðu til, eða 34% frá upphafi til loka árs í stað 30% eins og
spáð var.
í ljósi breyttra aðstæðna í verð-
lagsmálum hefur ríkisstjórnin
ákveðið að miða fjárlög komandi
árs við 28%—29% meðalhækkun
verðlags milli áranna 1985 og 1986.
Landsframleiðsla eykst um 2,5%
1985 eða nokkru minna en 1984.
Þjóðarframleiðsla vex enn hægar
vegna aukinna vaxtagreiðslna af
erlendum lánum. Spáð er 2%
hagvexti á mælikvarða lands-
framleiðslu en 1,5% miðað við
þjóðartekjur 1986. Hægur hag-
vöxtur á rætur í versnandi við-
skiptakjörum.
Tekjur heimila uxu um 36%
milli áranna 1984 og 1985 á sama
tíma og meðalbreyting fram-
færsluvísitölu er áætluð 32,5%.
Þetta þýðir að kaupmáttur tekna
árið 1985 er 3—4% hærri en á liðnu
ári. Kaupmáttur samningsbund-
inna kauptaxta stendur hinsvegar
í stað. 1 áætlunum stjórnvalda er
reiknað með því sem næst óbreytt-
um kaupmætti tekna á mann 1986.
í spám fyrir næsta ár er reiknað
með 5% aukningu fiskafla og sjáv-
arvöruframleiðslu eða 340—350
þúsund tonna þorskafla og 900
þúsund tonna loðnuafla.
Halli á viðskiptajöfnuði okkar
við umheiminn verður rúmlega
fimm milljarðar króna, þ.e. vöru-
skiptajöfnuði og þjónustujöfnuði
samtals, sem er rúmlega 4,5% af
landsframleiðslu. Spáð er
3,5%—4% viðskiptahalla á næsta
ári.
Jólasöfnun Hjálparstofnunan
Á fjórtándu milljón
hefur verið safnað
HALFRI þrettándu milljón króna hafði í gær verið safnað á vegum Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar til líknar sveltum og hrjáðum í Eþíópíu og Afganistan.
Þar af höfðu tæpar átta milljónir borist í peningaframlögum og að auki,
höfðu selst um fimmtán þúsund eintök af plötunni „Hjálpum þeim“. Hlutur
hjálparstarfsins í Eþíópíu af þeirri sölu nemur 4,5 milljónum króna. Samtals
hefur því safnast hálf þrettánda milljón króna til þessa, að sögn Gunnlaugs
Stefánssonar hjá Hjálparstofnun kirkjunnar.
Hann kvaðst vera afar ánægður
með gang söfnunarinnar „Brauð
handa hungruðum heimi" og sagði
að söfnunarféð nú væri með því
mesta, sem hingað til hefði safnast
í söfnunarátaki fyrir jól. Gunn-
laugur benti á, að á undanförnum
árum hefði safnast verulegt fé
allra síðustu dagana fyrir jól, síð-
asta laugardaginn og á Þorláks-
messu.
Söfnunarbílar Hjálparstofnun-
ar verða víðsvegar um borgina i
dag, hægt verður að leggja fé inn
á reikninga í bönkum og sparisjóð-
um og um jólin verður tekið á móti
framlögum í kirkjum landsins.
Sjá nánar á bls. 22.